Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 394. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 721 — 394. mál.
fjármálaráðherra við fyrirspurn Rósu Guðbjartsdóttur um tollamál íslenskra ferðamanna.
1. Hversu margir Íslendingar voru teknir með of mikinn varning við komu til landsins á árinu 2007, en samkvæmt reglugerð mega ferðamenn sem búsettir eru á Íslandi hafa með sér tollfrjálsan varning fyrir allt að 46.000 kr. og verðmæti hvers hlutar má ekki vera meira en 23.000 kr.?
Samkvæmt upplýsingum frá tollstjóranum á Akureyri, tollstjóranum í Reykjavík, tollstjóranum á Suðurnesjum og tollstjóranum á Seyðisfirði var heildarfjöldi Íslendinga sem stöðvaðir voru með varning umfram tollfrjálsar heimildir 2.459 á árinu 2007. Fimm íslenskir ferðamenn voru stöðvaðir í umdæmi tollstjórans á Akureyri, 56 í umdæmi tollstjórans á Seyðisfirði, enginn í umdæmi tollstjórans í Reykjavík og 2.398 á Keflavíkurflugvelli í umdæmi tollstjórans á Suðurnesjum.
Það skal tekið fram að í tölvukerfi tollstjóra er ekki hægt að greina á milli þeirra ferðamanna sem stöðvaðir eru með ólöglega vöru og þeirra sem stöðvaðir eru með varning umfram tollfrjálsar heimildir og eru því þeir aðilar sem stöðvaðir voru með ólöglega vöru einnig inni í heildarfjöldanum.
2. Hve háar upphæðir greiddu viðkomandi í virðisaukaskatt annars vegar og sektir hins vegar?
Í tölvukerfi tollstjóra er ekki hægt að greina á milli Íslendinga og útlendinga hvað varðar fjárhæð sekta.
Heildarfjárhæð sekta einstaklinga sem stöðvaðir voru í grænu hliði með varning umfram tollfrjálsar heimildir eða með ólöglega vöru nam 27.056.288 kr. en heildarfjárhæð greiddra aðflutningsgjalda vegna varnings sem var umfram tollfrjálsar heimildir en var ekki gerður upptækur nam 4.986.132. kr.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 721 — 394. mál.
Svar