Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 459. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 729 — 459. mál.
til fjármálaráðherra um sölu á Breiðafjarðarferjunni Baldri.
1. Hvers vegna var Breiðafjarðar ferjan Baldur ekki auglýst til sölu í ljósi þess að Sæferðir ehf. gátu fest kaup á skipi í stað hennar innan fárra vikna frá sölu Baldurs til Sæferða ehf.?
2. Hvaða ákvæði samnings Vegagerðarinnar við Sæferðir ehf. frá 3. október 2005 meina ríkinu að selja Baldur án samþykkis Sæferða ehf.?
3. Hverjir voru þeir aðilar sem mátu verðmæti Baldurs annars vegar við sölu skipsins og hins vegar við lok samningstímans í árslok 2010, hvert var mat þeirra og hvenær var það gert? Hver var kostnaður ríkisins við verðmatið?
4. Hverjir voru ráðgjafar ráðuneytisins við söluna á Baldri og hvað var þeim greitt fyrir ráðgjöfina?
5. Hvert var söluverð Baldurs til Sæferða ehf., sbr. samning frá 31. janúar 2006, hverjir voru greiðsluskilmálar og önnur ákvæði, svo sem um ráðstöfun hagnaðar Sæferða ehf. af sölu Baldurs, hver var afhendingardagur skipsins og aðrir afhendingarskilmálar?
6. Hvaða upplýsingar hafði ráðuneytið um áform Sæferða ehf. um sölu á Baldri úr landi þegar gengið var frá samningnum 31. janúar 2006 og um mögulegt verð á skipinu við endursöluna? Lá þá fyrir hvaða skip Sæferðir ehf. hugðust kaupa?
7. Kom ríkið að einhverju leyti að sölu Sæferða ehf. á Baldri eða kaupum fyrirtækisins á annarri ferju og ef svo er, þá hvernig?
8. Hvert var verð Baldurs við söluna úr landi, hverjum var selt og hvenær, hver var afhendingardagur skipsins, hverjir voru greiðsluskilmálar og hver var hlutur ríkissjóðs í söluverðinu? Hverjir eru þeir aðilar sem fengu greitt fyrir sölu skipsins?
9. Hvert var eigið fé Sæferða ehf. samkvæmt síðasta ársreikningi fyrir sölu Baldurs til Sæferða ehf.?
10. Hvers vegna fól ráðuneytið Vegagerðinni að innheimta hlut ríkissjóðs í söluhagnaði Sæferða ehf. á Baldri og hvaða fyrirmæli, leiðbeiningar eða umboð gaf ráðuneytið við þá innheimtu? Hvers vegna féllst ráðuneytið á það að skuldin yrði vaxtalaus frá söludegi til uppgjörsdags, í um 15 mánuði?
11. Hvert var það samráð sem ráðuneytið hafði við samgönguráðuneytið og Vegagerðina þegar ákveðið var að ganga til samninga við Sæferðir ehf. um sölu á ferjunni Baldri, sbr. fréttatilkynningu ráðuneytisins frá 26. febrúar 2008?
Skriflegt svar óskast.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 729 — 459. mál.
Fyrirspurn
til fjármálaráðherra um sölu á Breiðafjarðarferjunni Baldri.
Frá Kristni H. Gunnarssyni.