Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 474. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 754  —  474. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um fæðubótarefni.

Frá Lúðvík Bergvinssyni.



     1.      Hvernig er háttað heimildum Lyfjastofnunar til að meina matvöruverslunum að selja fæðubótarefni eftir að stofnunin hefur flokkað það sem lyf, eins og glucosamine sem hefur verið selt í matvöruverslunum í hátt í tuttugu ár?
     2.      Hvaða reglur gilda um mat á því hvort efni flokkast sem lyf eða fæðubótarefni?
     3.      Hvað er átt við þegar talað er um lyfjavirk efni í fæðubótarefnum?
     4.      Eru dæmi þess að Lyfjastofnun banni jurt, t.d. salvíu, sem fæðubótarefni en leyfi hana sem krydd?


Skriflegt svar óskast.