Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 426. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 785  —  426. mál.




Svar



iðnaðarráðherra við fyrirspurn Álfheiðar Ingadóttur um olíuhreinsunarstöð.

     1.      Hver er aðkoma ríkisstjórnarinnar að athugun á byggingu olíuhreinsunarstöðvar á Vestfjörðum?
    Í júní 2007 óskuðu forsvarsmenn Íslensks hátækniiðnaðar ehf. eftir fundi með iðnaðarráðuneytinu til að kynna hugmyndir sínar um olíuhreinsunarstöð á Vestfjörðum. Í framhaldi hans vísaði ráðuneytið málinu til Fjárfestingarstofu sem hefur það hlutverk að veita erlendum fjárfestum upplýsingar um íslenskt viðskiptaumhverfi. Fjárfestingarstofan aðstoðaði m.a. við að skipuleggja kynnisferð fyrir sveitarstjórnarmenn á Vestfjörðum til Hollands og Þýskalands í júlí 2007.
    Fjórðungssamband Vestfirðinga hefur einnig vakið máls á verkefninu við ráðuneytið sem kom á samstarfi þeirra við Fjárfestingastofuna. Iðnaðarráðuneytið hefur að öðru leyti ekki haft afskipti af því.

     2.      Hve miklu fé hefur þegar verið varið til þessarar athugunar og hversu stór er hlutur ríkissjóðs?
    Fjárfestingarstofan hefur bókfært 1.604.841 kr. kostnað vegna verkefnisins á árinu 2007 og það sem af er þessu ári. Þar sem um ófyrirséðan kostnað var að ræða lagði ráðuneytið 1 millj. kr. til stofunnar upp í útlagðan kostnað.
    Samkvæmt bréfi Fjórðungssambands Vestfirðinga, 27. september 2007, til fjárlaganefndar Alþingis var áætlaður heildarkostnaður fjórðungssambandsins vegna staðarvalsathugunar 8,5 millj. kr. án vsk. Fjárlaganefnd Alþings veitti 5 millj. kr. í fjáraukalögum 2007 til verkefnisins.
    Engar upplýsingar liggja fyrir um hve miklu fé aðrir hafa varið til þessara athugana.

     3.      Hvaða fjárfestar, innlendir og erlendir, koma að verkefninu og hverjar eru viðskiptalegar forsendur þess?
    
Forsvarsmenn Íslensks hátækniiðnaðar hafa opinberlega upplýst um að baki verkefninu standi rússneskir og bandarískir fjárfestar úr olíuiðnaði í báðum löndum. Þeir hafa ekki verið nafngreindir og ráðuneytið hefur ekki vitneskju um hverjir þeir eru.
    Um viðskiptalegar forsendur segir svo í bréfi Íslensks hátækniiðnaðar, 9. apríl 2007, til nefndar um leiðir til að styrkja atvinnulíf á Vestfjörðum:
    „Þegar kannað var fyrir nokkrum áratugum, hvort forsendur væru fyrir starfrækslu olíuhreinsistöðvar á Íslandi, kom fram að það yrði varla hagkvæmt nema landið yrði í framtíðinni í flutningaleið óunninnar olíu. Þessi tími er nú runninn upp, eins og alkunna er af fréttum um vaxandi siglingar olíuflutningaskipa við strendur landsins bæði norðan og sunnan. Nyrðri siglingaleið þessara olíuflutningaskipa kemur næst landinu út af Vestfjarðakjálkanum. Undirritaðir hafa um skeið haft sérstakan áhuga á málum er snerta hugsanlega byggingu nýtízku olíuhreinsistöðvar hér á landi og unnið ýmsa undirbúningsvinnu. Við höfum verið í sambandi við reynda og virta erlenda aðila sem eru þaulkunnugir olíuiðnaðinum á norðurhveli og hafa um árabil átt virkan þátt í að koma á samstarfi milli þekktra vestrænna fyrirtækja og forystufyrirtækja í olíuframleiðslulöndum A-Evrópu. Hafa þeir m.a. tekið beinan þátt í byggingu olíuhreinsistöðva. Það er eindregin skoðun þessara samstarfsaðila, svo og undirritaðra, að nú sé rétti tíminn til að reisa olíuhreinsistöð á Íslandi.“
    Enn fremur segir í bréfinu:
    „Framleiðslugeta olíuhreinsunarstöðva í heiminum fullnægir ekki heimseftirspurn eftir unninni olíu. Síaukið magn jarðolíu fæst í norðurhluta Rússlands og í Norðursjó. Óunnin olía er flutt framhjá Íslandi til hreinsunar í Evrópu og N-Ameríku. Staðsetning Íslands er miðs vegar milli meginlands Evrópu og N-Ameríku – tveggja mikilvægra markaða fyrir hreinsaðar olíuafurðir.“

     4.      Hversu afkastamikil er olíuhreinsunarstöð sú sem nú er til athugunar?
    Eftir því sem ráðuneytið kemst næst eru athuganir ekki komnar á það stig að fyrir liggi niðurstaða um framleiðslutækni eða afköst. Forsvarsmenn Íslensks hátækniiðnaðar hafa í kynningum sínum á verkefninu rætt um stöð, sem unnið gæti úr 8 milljón tonna af hráolíu á ári.

     5.      Hversu mikið losar slík stöð af gróðurhúsalofttegundum og hversu hátt hlutfall er það af losun á Íslandi viðmiðunarárið 1990?
    
Samkvæmt kynningu forsvarsmanna Íslensks hátækniiðnaðar á málþingi á Vestfjörðum 23. og 24. febrúar 2008 eru gróðurhúsalofttegundir aðallega koltvíoxíð (CO 2), og er gert ráð fyrir að stöð, sem árlega vinnur úr 8 milljón tonnum af hráolíu, losi um 560.000 tonn af koltvíoxíði á ári. Viðmiðunarárið 1990 var heildarlosun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi talin vera um 3.450.000 milljón tonn (sbr. Stefnumörkun í loftslagsmálum, umhverfisráðuneytið febrúar 2007). Hlutfall losunar frá olíuhreinsunarstöðinni miðað við heildarlosunina 1990 væri því 16,23%.

     6.      Hversu mikið magn jarðolíu er unnið á viku í olíuhreinsunarstöð af þessari stærð og hvað krefst sú vinnsla mikillar skipaumferðar, þ.e. aðflutninga á sjó og flutninga afurða frá stöðinni?
    Byggt á upplýsingum sem fram koma í svari við 4. spurningu gæti framleiðsla stöðvarinnar verið nærri 150.000 tonn af hreinsaðri olíu á viku. Engar upplýsingar liggja fyrir um skipaumferð og skipastærðir. Samkvæmt upplýsingum frá Siglingastofnun er talið að 225 olíuskip hafi farið yfir Norður-Atlantshafið frá Rússlandi til austurstrandar Bandaríkjanna árið 2006. 80% þeirra var af stærð 30–75.000 tonn og 20% með burðargetu 75–125.000 tonn.
    Sé gert ráð fyrir að olía komi frá Rússlandi með ísstyrktum flutningaskipum af fullkomnustu gerð með 100.000 tonna burðargetu má búast við um 80 skipum á ári til landsins. Olíuflutningar frá landinu mundu að öllum líkindum eiga sér stað með minni skipum og skipaferðir héðan því fleiri en 80 á ári.

     7.      Hvaða föst og fljótandi úrgangsefni verða einkum til við slíka framleiðslu og í hve miklu magni?
    Á kynningarfundi um olíuhreinsunarstöð á Ísafirði 22. maí 2007 kom fram í erindi Línuhönnunar, verkfræðiráðgjafa Íslensks hátækniiðnaðar ehf., að úrgangsefni frá 8 milljón tonna olíuhreinsunarstöð gætu verið eftirfarandi:

Loftkennd efni: Koltvíoxíð CO2: 560 þús. tonn/ári
Brennisteinsoxíð SOx: 1136 tonn/ári
Rokgjörn lífræn efni VOC: 616 tonn/ári
Ýmis nituroxíð NOx: 410 tonn/ári
Agnir, ryk, sót o.þ.h. PM: 45 tonn/ári
Í frárennsli: Brennisteinsvetni H2S: <0,5 mg/l
Niturvetni NHx: <10 mg/l
Fenól <0,1 mg/l
Olía <5 mg/l

    Engar upplýsingar um magn eða eðli fasts úrgangs liggja fyrir, en að sögn forráðamanna Íslensks hátækniiðnaðar og verkfræðiráðgjafa þeirra er í nútímalegum erlendum olíuhreinsunarstöðvum slíkur úrgangur endurunninn og nýttur eins og kostur er á staðnum, þannig að lítið verður eftir.
    Iðnaðarráðuneytið hefur engar forsendur til að staðfesta eða vefengja framagreindar upplýsingar.

     8.      Hefur verið gert áhættumat vegna rekstrar olíuhreinsunarstöðvar á Vestfjörðum með tilliti til mengunar á landi og olíuflutninga á sjó?
    Samkvæmt upplýsingum frá Siglingastofnun hefur henni ekki borist beiðni um áhættumat vegna olíuflutninga á sjó í tengslum við þetta verkefni. Olíuhreinsunarstöðvar eru matsskyldar samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000, viðauka 1. Gera má ráð fyrir að áhættumat með tilliti til mengunar á landi og olíuflutninga á sjó af völdum olíuhreinsunarstöðvarinnar þurfi að fara fram í tengslum við mat á umhverfisáhrifum.

     9.      Fara áform um að reisa olíuhreinsunarstöð á Vestfjörðum saman við loftslagsstefnu Íslands?

    Þrátt fyrir að ekki liggi fyrir haldgóðar upplýsingar hver losun gróðurhúsalofttegunda gæti verið frá olíuhreinsunarstöð svipaðri þeirri sem hér er til umfjöllunar, er ljóst að losunin rúmast ekki innan losunarheimilda samkvæmt skuldbindingum Íslands fyrir árin 2008–2012. Því þyrfti annað tveggja að koma til, förgun/nýting koltvísýrings eða aðkeypt losunarheimild erlendis frá af hálfu framkvæmdaraðila.