Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 271. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 806 — 271. mál.
um upprunaábyrgð á raforku sem framleidd er með endurnýjanlegum orkugjöfum o.fl.
2. Lífmassi: Lífbrjótanlegur hluti afurða, úrgangs og efnaleifa frá landbúnaði (þ.m.t. efni úr bæði jurta- og dýraríkinu), skógrækt og tengdum atvinnugreinum, auk lífbrjótanlegs hluta iðnaðarúrgangs og húsasorps.
3. Raforka sem er framleidd með endurnýjanlegum orkugjöfum: Raforka frá orkuverum sem eingöngu nota endurnýjanlega orkugjafa, auk raforku sem er framleidd með endurnýjanlegum orkugjöfum í verum með blandaðri tækni þar sem notaðir eru óendurnýjanlegir orkugjafar auk endurnýjanlegra orkugjafa.
4. Upprunaábyrgð á raforku sem framleidd er með endurnýjanlegum orkugjöfum: Staðfesting á að raforka sé framleidd með endurnýjanlegum orkugjöfum, þ.m.t. vindorku, sólarorku, jarðvarmaorku, öldu- og sjávarfallaorku, vatnsorku og orku úr lífmassa, hauggasi, gasi frá skólphreinsunarstöðvum og lífgasi, en ekki orkugjöfum úr jarðefnaeldsneyti.
Landsnet hf. hefur eftirlit með því að raforka, sem það gefur út upprunaábyrgð fyrir, sé í raun framleidd með endurnýjanlegum orkugjöfum í skilningi laga þessara í samræmi við viðmiðanir sem eru hlutlægar, gagnsæjar og án mismununar og hafa hlotið staðfestingu Orkustofnunar.
Upprunaábyrgð, staðfest og gefin út á Evrópska efnahagssvæðinu, í samræmi við 4. gr., skal viðurkennd gagnkvæmt sem sönnun á þeim þáttum eingöngu sem um getur í 6. gr. Synjun þess að viðurkenna upprunaábyrgð sem slíka sönnun, einkum af ástæðum sem tengjast því að koma í veg fyrir svik, verður að byggjast á viðmiðunum sem eru hlutlægar, gagnsæjar og án mismununar.
Landsneti hf. er heimilt með samþykki iðnaðarráðherra að framselja hlutverk sitt til útgáfu upprunaábyrgða samkvæmt lögum þessum.
Upprunaábyrgð er eingöngu heimilt að veita vegna liðinna almanaksmánaða. Upprunaábyrgð getur, samkvæmt vali framleiðanda raforku frá endurnýjanlegum orkugjöfum, verið gefin út vegna nýliðins almanaksmánaðar eða vegna síðustu 3, 6 eða 12 almanaksmánaða.
Gefa skal út eina upprunaábyrgð fyrir hverja MWst sem framleidd er.
Umsækjandi skal veita Landsneti hf. allar upplýsingar sem Landsnet hf. telur nauðsynlegar viðvíkjandi útgáfu upprunaábyrgðar. Landsnet hf. skal gæta jafnræðis við starfrækslu sína og trúnaðar um upplýsingar er varða viðskiptahagsmuni og aðrar upplýsingar sem sanngjarnt er og eðlilegt að leynt fari.
Landsneti hf. er heimilt að krefja umsækjanda um greiðslu vegna útgáfu upprunaábyrgðar. Fyrirtækið skal setja gjaldskrá um framangreinda þjónustu.
Framleiðanda raforku frá endurnýjanlegum orkugjöfum er heimilt að veita þriðja aðila skriflegt umboð bæði til þess að óska eftir útgáfu upprunaábyrgðar á raforku sem er framleidd með endurnýjanlegum orkugjöfum og til að taka á móti slíkri upprunaábyrgð.
1. Upplýsingar um viðkomandi orkuver.
2. Með hvaða orkugjafa raforka var framleidd.
3. Hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa af heildarframleiðslu raforku í viðkomandi orkuveri í samræmi við það tímabil sem kveðið er á um í 2. mgr. 4. gr.
4. Vinnslugetu orkuversins ef um er að ræða raforku framleidda í orkuveri.
5. Upplýsingar um útgefanda upprunaábyrgðarinnar, útgáfudag og útgáfustað.
6. Upplýsingar um hvað felist í upprunaábyrgð sem og tilvísun til tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2001/77/EB frá 27. september 2001 um að auka framleiðslu rafmagns með endurnýjanlegum orkugjöfum til notkunar á innri raforkumarkaði.
Landsnet hf. skal veita til þess bærum erlendum útgefendum upprunaábyrgða á raforku sem er framleidd með endurnýjanlegum orkugjöfum upplýsingar varðandi þær ábyrgðir sem fyrirtækið hefur gefið út hér á landi.
Landsnet hf. skal veita Orkustofnun upplýsingar um staðfestingar þær sem um er getið í 1. og 2. mgr.
Landsnet hf. skal í samráði við framleiðendur raforku frá endurnýjanlegum orkugjöfum setja reglur um skráningu upplýsinga um útgefnar upprunaábyrgðir á raforku sem er framleidd með endurnýjanlegum orkugjöfum, sbr. 1. mgr., sem Orkustofnun staðfestir.
Landsneti hf. er skylt að veita stjórnvöldum, viðskiptavinum og almenningi upplýsingar sem nauðsynlegar eru við mat á því hvort fyrirtækið fullnægi skyldum sínum samkvæmt lögum þessum. Landsneti hf. er þó heimilt að halda eftir viðskiptaupplýsingum er varða viðskiptahagsmuni og öðrum upplýsingum sem sanngjarnt er og eðlilegt að leynt fari nema viðskiptavinir veiti skriflegt samþykki.
1. Raforkulög, nr. 65/2003, með síðari breytingum: 1. málsl. 5. mgr. 8. gr. laganna orðast svo: Flutningsfyrirtækið má ekki stunda aðra starfsemi en þá sem því er nauðsynleg til að geta rækt skyldur sínar samkvæmt lögum þessum eða samkvæmt öðrum lögum.
2. Lög um stofnun Landsnets hf., nr. 75/2004: 1. málsl. 2. gr. laganna orðast svo: Hlutverk Landsnets hf. er að annast flutning raforku og kerfisstjórnun samkvæmt ákvæðum III. kafla raforkulaga, nr. 65/2003, og er því óheimilt að stunda aðra starfsemi en þá sem því er nauðsynleg til að geta rækt skyldur sínar samkvæmt raforkulögum eða öðrum lögum.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 806 — 271. mál.
Frumvarp til laga
um upprunaábyrgð á raforku sem framleidd er með endurnýjanlegum orkugjöfum o.fl.
(Eftir 2. umr., 31. mars.)
I. KAFLI
1. gr.
Markmið.
2. gr.
Skilgreiningar.
2. Lífmassi: Lífbrjótanlegur hluti afurða, úrgangs og efnaleifa frá landbúnaði (þ.m.t. efni úr bæði jurta- og dýraríkinu), skógrækt og tengdum atvinnugreinum, auk lífbrjótanlegs hluta iðnaðarúrgangs og húsasorps.
3. Raforka sem er framleidd með endurnýjanlegum orkugjöfum: Raforka frá orkuverum sem eingöngu nota endurnýjanlega orkugjafa, auk raforku sem er framleidd með endurnýjanlegum orkugjöfum í verum með blandaðri tækni þar sem notaðir eru óendurnýjanlegir orkugjafar auk endurnýjanlegra orkugjafa.
4. Upprunaábyrgð á raforku sem framleidd er með endurnýjanlegum orkugjöfum: Staðfesting á að raforka sé framleidd með endurnýjanlegum orkugjöfum, þ.m.t. vindorku, sólarorku, jarðvarmaorku, öldu- og sjávarfallaorku, vatnsorku og orku úr lífmassa, hauggasi, gasi frá skólphreinsunarstöðvum og lífgasi, en ekki orkugjöfum úr jarðefnaeldsneyti.
II. KAFLI
3. gr.
Upprunaábyrgð á raforku sem er framleidd með
endurnýjanlegum orkugjöfum.
Landsnet hf. hefur eftirlit með því að raforka, sem það gefur út upprunaábyrgð fyrir, sé í raun framleidd með endurnýjanlegum orkugjöfum í skilningi laga þessara í samræmi við viðmiðanir sem eru hlutlægar, gagnsæjar og án mismununar og hafa hlotið staðfestingu Orkustofnunar.
Upprunaábyrgð, staðfest og gefin út á Evrópska efnahagssvæðinu, í samræmi við 4. gr., skal viðurkennd gagnkvæmt sem sönnun á þeim þáttum eingöngu sem um getur í 6. gr. Synjun þess að viðurkenna upprunaábyrgð sem slíka sönnun, einkum af ástæðum sem tengjast því að koma í veg fyrir svik, verður að byggjast á viðmiðunum sem eru hlutlægar, gagnsæjar og án mismununar.
Landsneti hf. er heimilt með samþykki iðnaðarráðherra að framselja hlutverk sitt til útgáfu upprunaábyrgða samkvæmt lögum þessum.
4. gr.
Útgáfa upprunaábyrgða.
Upprunaábyrgð er eingöngu heimilt að veita vegna liðinna almanaksmánaða. Upprunaábyrgð getur, samkvæmt vali framleiðanda raforku frá endurnýjanlegum orkugjöfum, verið gefin út vegna nýliðins almanaksmánaðar eða vegna síðustu 3, 6 eða 12 almanaksmánaða.
Gefa skal út eina upprunaábyrgð fyrir hverja MWst sem framleidd er.
5. gr.
Umsókn.
Umsækjandi skal veita Landsneti hf. allar upplýsingar sem Landsnet hf. telur nauðsynlegar viðvíkjandi útgáfu upprunaábyrgðar. Landsnet hf. skal gæta jafnræðis við starfrækslu sína og trúnaðar um upplýsingar er varða viðskiptahagsmuni og aðrar upplýsingar sem sanngjarnt er og eðlilegt að leynt fari.
Landsneti hf. er heimilt að krefja umsækjanda um greiðslu vegna útgáfu upprunaábyrgðar. Fyrirtækið skal setja gjaldskrá um framangreinda þjónustu.
Framleiðanda raforku frá endurnýjanlegum orkugjöfum er heimilt að veita þriðja aðila skriflegt umboð bæði til þess að óska eftir útgáfu upprunaábyrgðar á raforku sem er framleidd með endurnýjanlegum orkugjöfum og til að taka á móti slíkri upprunaábyrgð.
6. gr.
Efni upprunaábyrgðar.
1. Upplýsingar um viðkomandi orkuver.
2. Með hvaða orkugjafa raforka var framleidd.
3. Hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa af heildarframleiðslu raforku í viðkomandi orkuveri í samræmi við það tímabil sem kveðið er á um í 2. mgr. 4. gr.
4. Vinnslugetu orkuversins ef um er að ræða raforku framleidda í orkuveri.
5. Upplýsingar um útgefanda upprunaábyrgðarinnar, útgáfudag og útgáfustað.
6. Upplýsingar um hvað felist í upprunaábyrgð sem og tilvísun til tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2001/77/EB frá 27. september 2001 um að auka framleiðslu rafmagns með endurnýjanlegum orkugjöfum til notkunar á innri raforkumarkaði.
III. KAFLI
7. gr.
Erlendar upprunaábyrgðir.
Landsnet hf. skal veita til þess bærum erlendum útgefendum upprunaábyrgða á raforku sem er framleidd með endurnýjanlegum orkugjöfum upplýsingar varðandi þær ábyrgðir sem fyrirtækið hefur gefið út hér á landi.
Landsnet hf. skal veita Orkustofnun upplýsingar um staðfestingar þær sem um er getið í 1. og 2. mgr.
IV. KAFLI
8. gr.
Stjórnsýsla og eftirlit.
Landsnet hf. skal í samráði við framleiðendur raforku frá endurnýjanlegum orkugjöfum setja reglur um skráningu upplýsinga um útgefnar upprunaábyrgðir á raforku sem er framleidd með endurnýjanlegum orkugjöfum, sbr. 1. mgr., sem Orkustofnun staðfestir.
Landsneti hf. er skylt að veita stjórnvöldum, viðskiptavinum og almenningi upplýsingar sem nauðsynlegar eru við mat á því hvort fyrirtækið fullnægi skyldum sínum samkvæmt lögum þessum. Landsneti hf. er þó heimilt að halda eftir viðskiptaupplýsingum er varða viðskiptahagsmuni og öðrum upplýsingum sem sanngjarnt er og eðlilegt að leynt fari nema viðskiptavinir veiti skriflegt samþykki.
9. gr.
Viðurlög.
V. KAFLI
10. gr.
Innleiðing á tilskipun.
11. gr.
Gildistaka.
12. gr.
Breytingar á öðrum lögum.