Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 560. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Prentað upp.

Þskj. 861  —  560. mál.
    Málsnúmer.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um utanferðir ráðherra frá myndun núverandi ríkisstjórnar.

Frá Álfheiði Ingadóttur.



     1.      Hversu oft hefur hver ráðherra farið til útlanda í opinberum erindagjörðum frá myndun núverandi ríkisstjórnar?
     2.      Hvert var tilefni hverrar ferðar og hvert var farið?
     3.      Hversu margir voru í fylgdarliði ráðherra hverju sinni, svo sem frá ráðuneyti, stofnunum ráðuneytis, fjölmiðlum, fyrirtækjum o.s.frv.?
     4.      Hver var heildarkostnaður við hverja ferð og hverjir greiddu hann?
     5.      Var farið á kostnað annarra aðila en ráðuneytisins í ferð og þá hverra?
    Svar óskast sundurliðað eftir kostnaði við ferðir til og frá Íslandi og innan landa sem heimsótt voru. Einnig er óskað upplýsinga um risnu, dvalarkostnað og dagpeninga.


Skriflegt svar óskast.