Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 576. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 892  —  576. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um rannsóknaboranir í Gjástykki.

Frá Þuríði Backman.



    Hyggst ráðherra beita sér fyrir frestun á fyrirhuguðum rannsóknaborunum í Gjástykki með tilliti til verndargildis svæðisins og ólíkra hagsmuna einstakra atvinnugreina þar nyrðra uns niðurstöður liggja fyrir úr yfirstandandi rannsóknum á mögulegri orkunýtingu frá Þeistareykjum, Bjarnarflagi og Kröflu?