Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 459. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 897  —  459. mál.




Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Kristins H. Gunnarssonar um sölu á Breiðafjarðarferjunni Baldri.

     1.      Hvers vegna var Breiðafjarðarferjan Baldur ekki auglýst til sölu í ljósi þess að Sæferðir ehf. gátu fest kaup á skipi í stað hennar innan fárra vikna frá sölu Baldurs til Sæferða ehf.?
     Vegagerðin var með rekstrarsamning við Sæferðir ehf. til loka árs 2010 um ferjusiglingar yfir Breiðafjörð. Í rekstrarsamningnum sem er gagnkvæmur samningur milli þessara aðila var að finna fjölmörg ákvæði um skyldur jafnt rekstraraðila sem Vegagerðarinnar vegna verkefnisins. Hluti af samkomulaginu var að gerður yrði þurrleigusamningur um ferjuna Baldur. Sá hluti samningsins sem fólst í leigu á skipinu og veiting umræddrar þjónustu var svo samofin að ekki hefði verið gerlegt að selja skipið til þriðja aðila án samþykkis Sæferða. Talið var að þær skyldur sem Vegagerðin tók á sig samkvæmt rekstrarsamningnum vegna skipsins væru þess eðlis að þær yrðu eðli máls samkvæmt ekki framseldar til þriðja aðila í slíku gagnkvæmu samningssambandi án samþykkis samningsaðila. Af hálfu ríkisins var það því metið svo að annaðhvort yrði skipið selt Sæferðum ehf. eða ríkið ætti skipið áfram út samningstímann. Með hliðsjón af mikilli óvissu um verðmæti skipsins í lok samningstímans og óskum rekstraraðila um kaup á skipinu var það metið svo að hagsmunir ríkisins yrðu best tryggðir með því að ganga til samninga við hann um kaup á skipinu. Í þessu sambandi var einnig haft í huga að auk þess að skjóta styrkari stoðum undir ferjurekstur á þessari leið losnaði ríkið þar með alfarið undan þeirri áhættu sem felst í skiparekstri sem þessum og þeim skuldbindingum sem snúa að ýmsum áhættuþáttum í rekstri skipsins samkvæmt rekstrarsamningnum. Þessi ákvörðun var tekin á grundvelli 9. gr. reglugerðar nr. 206/2003, um ráðstöfun eigna ríkisins, sem heimilar fjármálaráðherra að víkja frá þeim reglum sem gilda um framkvæmd og sölu eigna ríkisins.

     2.      Hvaða ákvæði samnings Vegagerðarinnar við Sæferðir ehf. frá 3. október 2005 meina ríkinu að selja Baldur án samþykkis Sæferða ehf.?
    Eins og fram kemur í svari við 1. lið eru mörg ákvæði í samningnum sem skilgreina skyldur ríkisins sem eiganda ferjunnar og koma þar með í veg fyrir að ríkið eða Vegagerðin geti selt skipið nema þá með sérstökum samningi við leigutaka. Ekkert eitt ákvæði samningsins fjallar um þetta sérstaklega en eðli samningsins alls leiðir af sér skyldur ríkis til að eiga og leggja til skipið eða útvega að öðrum kosti annað í þess stað. Má í því sambandi m.a. vísa til greina 4–6 í umræddum samningi. Að öðru leyti er vísað til svars við 1. lið hér að framan.

     3.      Hverjir voru þeir aðilar sem mátu verðmæti Baldurs annars vegar við sölu skipsins og hins vegar við lok samningstímans í árslok 2010, hvert var mat þeirra og hvenær var það gert? Hver var kostnaður ríkisins við verðmatið?
    Vegagerðin hafði forgöngu um að láta meta skipið til verðs vegna hugsanlegar sölu þess. Samkvæmt mati sérfræðinga Vegagerðarinnar sem byggðist á nokkrum mismunandi verðmötum var áætlað að verðmæti ferjunnar gæti legið á bilinu 70–80 millj. kr. miðað við mögulega sölu á þeim tíma. Vegagerðin taldi sig hins vegar ekki geta sagt til um verðið á Baldri í lok samningstíma. Fram kom að ef ekki yrði unnt að selja skipið mætti hugsanlega fá um 20 millj. kr. með því að selja hluti úr því.
    Ljóst var að mesta óvissan um verðmæti ferjunnar var tengd því hvort hún yrði seld á leigutímanum eða eftir að leigutíminn væri útrunninn. Óvissan fólst m.a. í því að ekki væri með góðu móti hægt að sjá fyrir í hvaða ástandi ferjan yrði við lok leigutímans. Jafnframt lá fyrir að öryggisreglur Evrópusambandsins um farþegaskip kynnu að leiða til þess að skipið yrði því sem næst ósöluhæft við lok leigutíma nema með miklum aðlögunum og breytingum auk óvissu um það hvort kaupandi gæti nýtt sér þann ísklassa sem skipið var hannað fyrir. Á grundvelli fyrirliggjandi upplýsinga frá Vegagerðinni og þeirrar óvissu sem lá fyrir um verðmæti ferjunnar við lok leigutímans var það mat ráðuneytisins að verðmæti ferjunnar gæti legið á bilinu 30–80 millj. kr. eftir því hvenær hún yrði seld. Kostnaður ríkisins vegna þeirra verðmata sem Vegagerðin aflaði sér var borinn af Vegagerðinni og var óverulegur.

     4.      Hverjir voru ráðgjafar ráðuneytisins við söluna á Baldri og hvað var þeim greitt fyrir ráðgjöfina?
    Sérfræðingar ráðuneytisins sáu um þá þætti sem sneru að sölunni, auk þess sem byggt var á fyrirliggjandi gögnum, m.a. frá Vegagerðinni. Ekki var greitt sérstaklega fyrir ráðgjöfina.

     5.      Hvert var söluverð Baldurs til Sæferða ehf., sbr. samning frá 31. janúar 2006, hverjir voru greiðsluskilmálar og önnur ákvæði, svo sem um ráðstöfun hagnaðar Sæferða ehf. af sölu Baldurs, hver var afhendingardagur skipsins og aðrir afhendingarskilmálar?
    Söluverð Baldurs til Sæferða ehf. var 37,8 millj. kr. að meðtöldum 1,8 millj. kr. sem greiðast skyldu vegna smurolíu, brennsluolíu, og kosts samkvæmt uppgjöri á þurrleigusamningi aðila. Auk þess skyldi kaupandi greiða seljanda 30% mismun á söluverði skipsins og nettó endursöluverði þess ef það yrði selt til þriðja aðila. Mælt var fyrir um að ríkissjóður skyldi fá þær greiðslur í samræmi við greiðslur þess söluandvirðis. Söluverð skipsins var greitt með verðtryggðu skuldabréfi að fjárhæð 37,8 millj. kr. með 5,0% vöxtum til 5 ára með veði í skipinu. Afhending skipsins var ákveðin 31. janúar 2006.

     6.      Hvaða upplýsingar hafði ráðuneytið um áform Sæferða ehf. um sölu á Baldri úr landi þegar gengið var frá samningnum 31. janúar 2006 og um mögulegt verð á skipinu við endursöluna? Lá þá fyrir hvaða skip Sæferðir ehf. hugðust kaupa?
    Ráðuneytinu var ekki kunnugt um verð á Baldri við endursölu hans þegar gengið var frá kaupsamningnum við rekstraraðilann né hvaða skip Sæferðir hygðust kaupa í hans stað. Ráðuneytinu var hins vegar kunnugt um þá vankanta sem voru á Baldri, m.a. gluggalausri veitingaaðstöðu og að ferjan tæki of fáar bifreiðar. Jafnframt var ráðuneytinu kunnugt um áhuga rekstraraðila á því að reyna selja Baldur og reyna að finna annað hentugra skip sem uppfyllti betur kröfur rekstraraðilans á þessari siglingaleið.

     7.      Kom ríkið að einhverju leyti að sölu Sæferða ehf. á Baldri eða kaupum fyrirtækisins á annarri ferju og ef svo er, þá hvernig?
    Fjármálaráðuneytið kom ekki að sölu Sæferða ehf. á Baldri né kaupum fyrirtækisins á annarri ferju. Vegagerðin hafði tiltekin samskipti við Sæferðir ehf. vegna kaupa á nýrri ferju enda þurfti hin nýja ferja að uppfylla þær kröfur sem gerðar eru í rekstrarsamningi aðila.

     8.      Hvert var verð Baldurs við söluna úr landi, hverjum var selt og hvenær, hver var afhendingardagur skipsins, hverjir voru greiðsluskilmálar og hver var hlutur ríkissjóðs í söluverðinu? Hverjir eru þeir aðilar sem fengu greitt fyrir sölu skipsins?

    Kaupandi Baldurs var Rosita Oy og dagsetning kaupsamnings var 21. mars 2006. Afhendingardagur ferjunnar var 31. mars 2006 og fór afhending fram í Stykkishólmi. Söluverð Baldurs úr landi var 100 þús. nkr. eða u.þ.b. 107,5 millj. kr. miðað við gengi á afhendingardegi skipsins. Greiða átti 10% af kaupverði innan 3 daga frá dagsetningu kaupsamnings og lokagreiðslu við afhendingu. Hreinn söluhagnaður að frádregnu kaupverði Baldurs og sölulaunum nam um 63 millj. kr. Samkvæmt uppgjöri bar ríkinu 30% af hreinum söluhagnaði eða um 19 millj. kr. Að frádregnum 2 millj. kr. niðurfellingu sem samið var um við Sæferðir ehf. stóðu eftir 17 millj. kr. sem Sæferðir ehf. greiddu ríkinu.
    Skipasali seljanda var Bruusgaard Shipbroker og Norwegian Shipsales a/s. Sölulaun voru 5% af andvirði skipsins, um 500 þús. nkr. eða u.þ.b. 6,1 millj. kr. miðað við gengi á afhendingardegi skipsins.

     9.      Hvert var eigið fé Sæferða ehf. samkvæmt síðasta ársreikningi fyrir sölu Baldurs til Sæferða ehf.?
    Ráðuneytið aflaði sér ekki upplýsinga um eigið fé Sæferða samkvæmt síðasta ársreikningi fyrir sölu Baldurs til Sæferða né taldi sér skylt að gera það. Þær upplýsingar liggja því ekki fyrir í ráðuneytinu. Söluverð eignarinnar var hins vegar tryggt með veði í skipinu og rekstrarsamningnum.

     10.      Hvers vegna fól ráðuneytið Vegagerðinni að innheimta hlut ríkissjóðs í söluhagnaði Sæferða ehf. á Baldri og hvaða fyrirmæli, leiðbeiningar eða umboð gaf ráðuneytið við þá innheimtu? Hvers vegna féllst ráðuneytið á það að skuldin yrði vaxtalaus frá söludegi til uppgjörsdags, í um 15 mánuði?
    Vegagerðin er samningsaðili Sæferða ehf. á grundvelli hins gagnkvæma samnings. Þar sem salan á ferjunni Baldri til Sæferða ehf. fór fram á grundvelli hins gagnkvæma samnings var talið rétt að Vegagerðin héldi einnig utan um söluþátt málsins. Til tryggingar greiðslum var auk veðs í skipinu möguleiki á að halda eftir greiðslum samkvæmt rekstrarsamningi við vanefndir. Ástæður þessa fyrirkomulags var að tryggja að greiðslur Sæferða ehf. vegna kaupa á skipinu og greiðslur Vegagerðarinnar til Sæferða ehf. á grundvelli rekstrarsamnings færu um sömu hendur en væru ekki á hendi mismunandi ríkisaðila. Á grundvelli framangreinds fól ráðuneytið Vegagerðinni með bréfum, dags. 27. febrúar 2006, innheimta skuldabréf vegna sölu á Baldri til Sæferða ehf. og með bréfi, dags. 2. maí 2006, að sjá um uppgjör á söluverði Baldurs til þriðja aðila í samræmi við kaupsamning aðila.
    Við uppgjör vegna sölu Sæferða ehf. á Baldri kom upp ágreiningur milli Sæferða og Vegagerðarinnar vegna frádráttarliða við endursöluna og krafna Sæferða á hendur ríkinu er sneru að afnotum ferjunnar Baldurs sem afleysingaskips fyrir Herjólf. Umrædd niðurfelling vaxta var liður í því að ná sáttum í ágreiningi milli aðila án þess að til málaferla þyrfti að koma.

     11.      Hvert var það samráð sem ráðuneytið hafði við samgönguráðuneytið og Vegagerðina þegar ákveðið var að ganga til samninga við Sæferðir ehf. um sölu á ferjunni Baldri, sbr. fréttatilkynningu ráðuneytisins frá 26. febrúar 2008?
    Mál þetta hófst á þá leið að Sæferðir ehf. óskuðu eftir því við samgönguráðuneytið og Vegagerðina að félagið fengi heimild til að kaupa skipið. Þar sem fjármálaráðuneytið fer með sölu eigna ríkisins hóf fjármálaráðuneytið viðræður við Sæferðir ehf. í samráði við samgönguráðuneytið og Vegagerðina.