Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 503. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 898  —  503. mál.




Svar



dómsmálaráðherra við fyrirspurn Bjarna Harðarsonar um löggæslu á Austurlandi.

     1.      Telur ráðherra að markmið um sparnað og hagræðingu hafi náðst með sameiningu lögregluembætta þvert yfir kjördæmamörk á Austurlandi?
    Meginmarkmið með nýskipan lögreglumála, sem tók gildi 1. janúar 2007, var efling löggæslu í landinu með því að auka sýnileika lögreglu, bæta gæði og hraða rannsóknum mála. Markmið breytingarinnar laut hvorki að sparnaði né hagræðingu. Hvorki var gert ráð fyrir hækkun né lækkun útgjalda vegna breytingarinnar.

     2.      Telur ráðherra stöðu löggæslumála í sveitarfélaginu Hornafirði viðunandi eftir þessar breytingar?
    Með stækkun umdæma varð liðsheild lögreglu stærri og þar með styrkari. Á þetta almenna sjónarmið við um Sveitarfélagið Hornafjörð jafnt og aðra staði. Fjarlægð frá lögreglustjóra ræður ekki styrk lögregluliðs heldur skipulag þess, umgjörð og mannafli. Á þetta við um löggæslu í Sveitarfélaginu Hornafirði og er lögregluliðið þar vel í stakk búið til að takast á við verkefni sín.
    Þegar tetrafjarskipti komu til sögunnar fengu allir lögreglumenn embættisins tetrastöðvar, sem enn hefur aukið styrk liðsheildarinnar. Auk þess var innleitt IP-símkerfi til að auðvelda öll samskipti innan embættisins og draga úr kostnaði við þau. Innri málefni hafa verið samræmd, sérstaklega varðandi rannsóknir, samskipti við ákærendur embættisins, rannsóknaraðstoð og tækjabúnað almennt.
    Að mati ráðherra er staða lögreglumála í sveitarfélaginu Hornafirði viðunandi, þótt alltaf megi gera betur. Til dæmis hefur það verið orðað við ráðherra að eðlilegra sé að lögregla í sveitarfélaginu sé hluti af liði á Suðurlandi en Austurlandi, án þess að í því felist nokkur gagnrýni á lögreglustjórnina á Eskifirði, sem er til fyrirmyndar. Sé það vilji heimamanna og lögreglu að tengjast lögreglustjóra innan sama kjördæmis er ráðherra tilbúinn að ræða þá hugmynd. Er eðlilegt að gera það á grundvelli úttektarskýrslu um reynsluna af nýskipan lögreglumála, sem birt verður á næstunni.