Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 332. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 908 — 332. mál.
félags- og tryggingamálaráðherra við fyrirspurn Sivjar Friðleifsdóttur um félagslega þjónustu sveitarfélaga.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hversu stórt hlutfall íbúa einstakra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu nýtur félagslegrar þjónustu sveitarfélags síns?
2. Hversu stórt hlutfall íbúa Reykjanesbæjar, Ísafjarðarbæjar, Akureyrar, Fljótsdalshéraðs, Árborgar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar nýtur félagslegrar þjónustu sveitarfélags síns?
Í svarinu er byggt á upplýsingum frá viðkomandi sveitarfélögum um það hversu margir íbúar nýttu eftirtalda félagslega þjónustu á vegum sveitarfélagsins: Ferðaþjónustu fyrir aldraða og fatlaða, félagslegar íbúðir, fjárhagsaðstoð og ráðgjöf, heimaþjónustu og félagslega liðveislu og húsaleigubætur. Þar sem ekki bárust samræmdar upplýsingar frá öllum sveitarfélögum reyndist ekki unnt að bera alla þætti félagslegrar þjónustu saman með ítarlegri hætti en fram kemur í svari þessu enda eru dæmi um að innbyrðis samsetning félagslegrar þjónustu einstakra sveitarfélaga sé mismunandi. Í félags- og tryggingamálaráðuneytinu er nú unnið að frekari greiningu á félagslegri þjónustu á vegum sveitarfélaga um land allt.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 908 — 332. mál.
Svar

Tafla 1.
| Sveitarfélag | Hlutfall íbúa | Viðmiðunarár |
| Reykjavíkurborg | 14% | 2006 |
| Kópavogsbær | 7% | 2006 |
| Seltjarnarneskaupstaður | 7% | 2007 |
| Hafnarfjarðarkaupstaður | 7% | 2006 |
| Garðabær | 6% | 2007 |
| Mosfellsbær | 5% | 2007 |
Tafla 2.
| Sveitarfélag | Hlutfall íbúa | Viðmiðunarár |
| Reykjanesbær | 15% | 2006 |
| Ísafjarðarbær | 14% | 2007 |
| Akureyrarkaupstaður | 12% | 2007 |
| Fljótsdalshérað | 6% | 2007 |
| Sveitarfélagið Hornafjörður | 12% | 2006 |
| Sveitarfélagið Árborg | 10% | 2006 |