Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 595. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Prentað upp.

Þskj. 919  —  595. mál.
Skriflegt svar.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um fellihýsi, tjaldvagna og húsvagna í umferð.

Frá Álfheiði Ingadóttur.



     1.      Hversu mörg fellihýsi, tjaldvagnar og húsvagnar eru í umferð hér á landi?
     2.      Hver hefur fjölgunin verið undanfarin fimm ár?
     3.      Hversu mörg fellihýsi, tjaldvagnar eða húsvagnar hafa tengst umferðarslysum, þ.m.t. banaslysum, undanfarin fimm ár?
     4.      Telur ráðherra þörf á að herða eftirlit með þessum farartækjum og gera þau skoðunarskyld?


Skriflegt svar óskast.