Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 605. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Prentað upp.

Þskj. 934  —  605. mál.
Skriflegt svar .




Fyrirspurn



til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um vísindaveiðar á hrefnu.

Frá Jóni Gunnarssyni.



     1.      Liggja fyrir einhverjar vísbendingar um fæðuvistfræði hrefnu úr vísindaveiðum sem voru stundaðar á árunum 2003–2007?
     2.      Hvenær er áætlað að endanlegar niðurstöður rannsókna á fæðuvistfræði hrefnunnar liggi fyrir?


Skriflegt svar óskast.