Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 611. máls.
Þskj. 951 — 611. mál.
Lög um sértryggð skuldabréf tóku gildi 14. mars sl. Fjármálaeftirlitið vinnur að gerð reglna sem því er heimilt að setja skv. 25. gr. laganna. Tiltekin fjármálafyrirtæki fyrirhuga útgáfu sértryggðra skuldabréfa. Af því tilefni hafa komið fram ýmsar ábendingar og fyrirspurnir sem varða efni laganna. Meðal annars hafa komið fram ábendingar um að í 14. gr. laganna sé sérstaklega tekið fram að sértryggð skuldabréf falli ekki í gjalddaga þótt bú útgefanda sé tekið til gjaldþrotaskipta, enda sé þetta nauðsynlegt þar sem ella ætti við hin almenna regla 1. mgr. 99. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl., nr. 21/1991. Á hinn bóginn sé þess ekki getið að afleiðusamningar, sem gerðir kunna að hafa verið samkvæmt lögunum, falli ekki í gjalddaga. Ástæða þess að ekki þótti rétt að taka þetta fram í 14. gr. laganna er sú að tilvitnuð regla 1. mgr. 99. gr. laga nr. 21/1991 tekur til einhliða krafna á hendur þrotamanni, sem þó getur vissulega sprottið af samningi sem upphaflega var gagnkvæmur. Afleiðusamningar eru gagnkvæmir samningar sem eiga undir XV. kafla laga nr. 21/1991. Samkvæmt 1. mgr. 91. gr. laga nr. 21/1991 getur því skiptastjóri tekið ákvörðun um að þrotabúið gangi inn í afleiðusamning. Ljóst er að það ber skiptastjóra að gera í slíkum tilvikum, ella gæti hann bakað sér skaðabótaábyrgð. Bent hefur verið á að óheppilegt geti verið að skiptastjóri hafi val um það hvort þrotabúið gangi inn í afleiðusamninga eða ekki, auk þess sem bent hefur verið á að afleiðusamningar séu oft þannig að um einn aðalsamning sé að ræða og marga undirsamninga og geti staða þeirra verið mismunandi, þannig að það kunni að vera hagstætt fyrir þrotabúið að skiptastjórinn ákveði að þrotabúið skuli ganga inn í suma undirsamninga en ekki aðra. Þótt ekki sé líklegt að þessi staða komi upp má taka undir að ekki sé víst að það sé heppilegt að skiptastjóri hafi val um það hvort þrotabúið skuli ganga inn í afleiðusamninga eða ekki og öruggast væri að mælt væri fyrir um það í lögunum að þrotabúið gangi inn í slíka samninga, án fyrirvara. Með því móti má komast hjá því að skiptastjóri lendi í þeirri stöðu að þurfa að velja á milli hagsmuna kröfuhafa samkvæmt sértryggðu skuldabréfi og hagsmuna annarra kröfuhafa. Þess vegna er lagt til í frumvarpi þessu að bætt sé málslið við 14. gr. þar sem tekið sé af skarið um að búið taki við réttindum og skyldum samkvæmt afleiðusamningum sem gerðir hafa verið á grundvelli laganna.
Þá hefur verið vakin athygli á því að lög um sértryggð skuldabréf geri ráð fyrir að bæði hin sértryggðu skuldabréf og afleiðusamningar njóti fullnusturéttar í tryggingasafninu. Ekki sé hins vegar tekið fram í lögunum hver innbyrðis staða þessara skuldbindinga er, m.a. hvort skuldbindingar samkvæmt afleiðusamningum njóti stöðu skv. 111. gr. gjaldþrotaskiptalaga, líkt og sértryggðu skuldabréfin, eða hvort staða afleiðusamninganna sé önnur.
Sú regla gildir að þegar þrotabú gengur inn í gagnkvæman samning samkvæmt reglum XV. kafla laga um gjaldþrotaskipti o.fl., nr. 21/1991, gildir regla 3. mgr. 91. gr. laganna um rétthæð greiðslna sem inna á af hendi smátt og smátt. Slíkar greiðslur njóta stöðu skv. 3. tölul. 110. gr., þ.e. sem skiptakostnaður. Í þessu sambandi verður að vekja athygli á 3. mgr. 111. gr. laganna en samkvæmt henni njóta greiðslur samkvæmt afleiðusamningum, tengdum útgáfu sértryggðra skuldabréfa, aðeins stöðu eins og þær væru skiptakostnaður af verðmæti hinnar veðsettu eignar. Í þessu felst í stuttu máli að greiðslur samkvæmt afleiðusamningum njóta sömu stöðu og kröfur samkvæmt sértryggðu skuldabréfi.
Til að taka af öll tvímæli, þ.e. ef ekki yrði talið að afleiðusamningur uppfyllti það skilyrði að greiðslur ætti að inna af hendi smátt og smátt, er lagt til í frumvarpi þessu að skýrt sé tekið fram hver sé staða krafna samkvæmt afleiðusamningum sem gerðir hafa verið samkvæmt lögum nr. 11/2008. Er því lagt til að bætt sé við 14. gr. laganna sérstökum málslið þar sem tekið er af skarið um þetta. Samkvæmt þeirri reglu njóta kröfur samkvæmt afleiðusamningum sömu stöðu í skuldaröð og kröfur samkvæmt sértryggðu skuldabréfi.
Að öðru leyti þarfnast reglur frumvarpsins ekki skýringa.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Verði frumvarpið óbreytt að lögum verður ekki séð að það muni hafa í för með sér aukin útgjöld fyrir ríkissjóð.
Þskj. 951 — 611. mál.
Frumvarp til laga
um breyting á lögum um sértryggð skuldabréf, nr. 11/2008.
(Lagt fyrir Alþingi á 135. löggjafarþingi 2007–2008.)
1. gr.
Við 14. gr. laganna bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Þrotabúið tekur við réttindum og skyldum útgefanda samkvæmt afleiðusamningum sem gerðir hafa verið á grundvelli laga þessara. Kröfur samkvæmt slíkum afleiðusamningum njóta rétthæðar skv. 3. tölul. 110. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl., sbr. 3. mgr. 111. gr. sömu laga.2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Lög um sértryggð skuldabréf tóku gildi 14. mars sl. Fjármálaeftirlitið vinnur að gerð reglna sem því er heimilt að setja skv. 25. gr. laganna. Tiltekin fjármálafyrirtæki fyrirhuga útgáfu sértryggðra skuldabréfa. Af því tilefni hafa komið fram ýmsar ábendingar og fyrirspurnir sem varða efni laganna. Meðal annars hafa komið fram ábendingar um að í 14. gr. laganna sé sérstaklega tekið fram að sértryggð skuldabréf falli ekki í gjalddaga þótt bú útgefanda sé tekið til gjaldþrotaskipta, enda sé þetta nauðsynlegt þar sem ella ætti við hin almenna regla 1. mgr. 99. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl., nr. 21/1991. Á hinn bóginn sé þess ekki getið að afleiðusamningar, sem gerðir kunna að hafa verið samkvæmt lögunum, falli ekki í gjalddaga. Ástæða þess að ekki þótti rétt að taka þetta fram í 14. gr. laganna er sú að tilvitnuð regla 1. mgr. 99. gr. laga nr. 21/1991 tekur til einhliða krafna á hendur þrotamanni, sem þó getur vissulega sprottið af samningi sem upphaflega var gagnkvæmur. Afleiðusamningar eru gagnkvæmir samningar sem eiga undir XV. kafla laga nr. 21/1991. Samkvæmt 1. mgr. 91. gr. laga nr. 21/1991 getur því skiptastjóri tekið ákvörðun um að þrotabúið gangi inn í afleiðusamning. Ljóst er að það ber skiptastjóra að gera í slíkum tilvikum, ella gæti hann bakað sér skaðabótaábyrgð. Bent hefur verið á að óheppilegt geti verið að skiptastjóri hafi val um það hvort þrotabúið gangi inn í afleiðusamninga eða ekki, auk þess sem bent hefur verið á að afleiðusamningar séu oft þannig að um einn aðalsamning sé að ræða og marga undirsamninga og geti staða þeirra verið mismunandi, þannig að það kunni að vera hagstætt fyrir þrotabúið að skiptastjórinn ákveði að þrotabúið skuli ganga inn í suma undirsamninga en ekki aðra. Þótt ekki sé líklegt að þessi staða komi upp má taka undir að ekki sé víst að það sé heppilegt að skiptastjóri hafi val um það hvort þrotabúið skuli ganga inn í afleiðusamninga eða ekki og öruggast væri að mælt væri fyrir um það í lögunum að þrotabúið gangi inn í slíka samninga, án fyrirvara. Með því móti má komast hjá því að skiptastjóri lendi í þeirri stöðu að þurfa að velja á milli hagsmuna kröfuhafa samkvæmt sértryggðu skuldabréfi og hagsmuna annarra kröfuhafa. Þess vegna er lagt til í frumvarpi þessu að bætt sé málslið við 14. gr. þar sem tekið sé af skarið um að búið taki við réttindum og skyldum samkvæmt afleiðusamningum sem gerðir hafa verið á grundvelli laganna.
Þá hefur verið vakin athygli á því að lög um sértryggð skuldabréf geri ráð fyrir að bæði hin sértryggðu skuldabréf og afleiðusamningar njóti fullnusturéttar í tryggingasafninu. Ekki sé hins vegar tekið fram í lögunum hver innbyrðis staða þessara skuldbindinga er, m.a. hvort skuldbindingar samkvæmt afleiðusamningum njóti stöðu skv. 111. gr. gjaldþrotaskiptalaga, líkt og sértryggðu skuldabréfin, eða hvort staða afleiðusamninganna sé önnur.
Sú regla gildir að þegar þrotabú gengur inn í gagnkvæman samning samkvæmt reglum XV. kafla laga um gjaldþrotaskipti o.fl., nr. 21/1991, gildir regla 3. mgr. 91. gr. laganna um rétthæð greiðslna sem inna á af hendi smátt og smátt. Slíkar greiðslur njóta stöðu skv. 3. tölul. 110. gr., þ.e. sem skiptakostnaður. Í þessu sambandi verður að vekja athygli á 3. mgr. 111. gr. laganna en samkvæmt henni njóta greiðslur samkvæmt afleiðusamningum, tengdum útgáfu sértryggðra skuldabréfa, aðeins stöðu eins og þær væru skiptakostnaður af verðmæti hinnar veðsettu eignar. Í þessu felst í stuttu máli að greiðslur samkvæmt afleiðusamningum njóta sömu stöðu og kröfur samkvæmt sértryggðu skuldabréfi.
Til að taka af öll tvímæli, þ.e. ef ekki yrði talið að afleiðusamningur uppfyllti það skilyrði að greiðslur ætti að inna af hendi smátt og smátt, er lagt til í frumvarpi þessu að skýrt sé tekið fram hver sé staða krafna samkvæmt afleiðusamningum sem gerðir hafa verið samkvæmt lögum nr. 11/2008. Er því lagt til að bætt sé við 14. gr. laganna sérstökum málslið þar sem tekið er af skarið um þetta. Samkvæmt þeirri reglu njóta kröfur samkvæmt afleiðusamningum sömu stöðu í skuldaröð og kröfur samkvæmt sértryggðu skuldabréfi.
Að öðru leyti þarfnast reglur frumvarpsins ekki skýringa.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um breyting á lögum
um sértryggð skuldabréf, nr. 11/2008.