Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 525. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 970  —  525. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 2/1995, um hlutafélög, og breytingu á lögum nr. 138/1994, um einkahlutafélög, með síðari breytingum.

Frá efnahags- og skattanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Maríönnu Jónasdóttur og Ingibjörgu Helgu Helgadóttur frá fjármálaráðuneyti. Þá hafa nefndinni borist umsagnir frá ríkisskattstjóra, Fjármálaeftirlitinu, Persónuvernd, Félagi löggiltra endurskoðenda, Kauphöll Íslands og CreditInfo Ísland.
    Með frumvarpinu eru lagðar til efnislega samsvarandi breytingar á lögum um hlutafélög, nr. 2/1995, og lögum um einkahlutafélög, nr. 138/1994, og er þeim ætlað að innleiða ákvæði um rafræna skráningu upplýsinga í hlutafélagaskrá samkvæmt Evróputilskipun nr. 2003/58/ EB. Aðrir þættir tilskipunarinnar hafa verið innleiddir með lögum nr. 18/2006.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt.
    Bjarni Benediktsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 6. maí 2008.



Pétur H. Blöndal,


form., frsm.


Ellert B. Schram.


Ögmundur Jónasson.



Gunnar Svavarsson.


Magnús Stefánsson.


Lúðvík Bergvinsson.



Paul Nikolov.


Kristján Þór Júlíusson.