Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 588. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 981  —  588. mál.




Svar



heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Samúels Arnar Erlingssonar um heilsurækt og íþróttaiðkun aldraðra.

     1.      Hverjar eru aðgerðir ráðuneytisins til stuðnings íþróttaiðkun og heilsurækt aldraðra?
    Heilbrigðisráðherra fer ekki með málefni er varða íþróttir í landinu. Hins vegar er almenn heilsurækt mikilvæg meðal aldraðra rétt eins og annarra til að viðhalda góðri heilsu og hreyfifærni. Lýðheilsustöð hefur fyrir hönd ráðuneytisins staðið að verkefninu ,,Hreyfing fyrir alla“ sem er tilraunaverkefni sem unnið er í samstarfi Lýðheilsustöðvar, Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, nokkurra sveitarfélaga og tveggja stéttarfélaga. Tilraunasvæðin í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ og Ísafirði/Bolungarvík/Súðavík hafa öll með einum eða öðrum hætti stutt við hreyfingu aldraðra.
    Í Reykjavík (Árbæ, Grafarholti og Grafarvogi) hefur verið boðið upp á gönguhópa, leikfimi, boccia, dans, pútt og kubb. Í Kópavogi hefur eldra fólki staðið til boða að taka þátt í gönguhópi auk þess sem fagaðilar hafa boðið upp á fræðsluerindi. Í Hafnarfirði hefur m.a. verði boðið upp á göngur og leikfimi. Verkefnið er tengt útgáfu vildarkorta fyrir +67 ára. Í Mosfellsbæ hefur m.a. verið boðið upp á göngur og golf. Á Vestfjörðum hefur m.a. verið boðið upp á stafgöngu og vatnsleikfimi. Öll þessi hreyfitilboð standa öldruðum til boða.
    Lýðheilsustöð hefur nýlega gefið út bækling með ráðleggingum um hreyfingu. Bæklingurinn inniheldur sérstakar ráðleggingar um hreyfingu roskins fólks og fjallar um hvers vegna hreyfing er mikilvæg fyrir þennan hóp, hversu mikil hreyfing er æskileg og hvers konar hreyfing hentar þessum hópi. Þannig hvetur Lýðheilsustöð og styður við heilsurækt aldraðra.
    Lýðheilsustöð styður Kvennahlaup ÍSÍ sem m.a. höfðar til roskinna kvenna.
    Lýðheilsustöð er ásamt ráðuneytinu samstarfsaðili að Lífshlaupinu sem stýrt er af Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands, en því er ætlað að virkja fólk á öllum aldri til að hreyfa sig í samræmi við ráðleggingar stöðvarinnar um hreyfingu.
    Ef rætt er um heilsurækt í víðari skilningi en hreyfingu þá eru fjölmargar aðrar aðgerðir Lýðheilsustöðvar sem geta fallið þar undir svo sem útgáfa á handbók um mataræði eldra fólks og fleira. Á hjúkrunarheimilum er gjarnan boðið upp á hópæfingar fyrir aldraða og heilbrigðisstarfsfólk hvetur aldraða til hreyfingar.

     2.      Hefur verið lagt fram fé og vinna til þessa? Ef svo er, með hvaða hætti?
    Verkefnið ,,Hreyfing fyrir alla“ hefur fengið 1 millj. kr. beint framlag frá heilbrigðisráðherra og 4 millj. kr. úr fjárframlagi til Lýðheilsustöðvar, samtals 5 millj. kr. Verkefnisstjóri hreyfingar hjá Lýðheilsustöð stýrir verkefninu í samvinnu við verkefnisstjóra frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands. Rannsóknasvið stöðvarinnar sér um úrvinnslu á rannsóknarþætti verkefnisins. Sú vinna er ekki greidd af framangreindu framlagi heldur af fjárveitingum Lýðheilsustöðvar.

     3.      Hver er stefna ráðherra hvað varðar stuðning við líkamsrækt aldraðra?
    Ráðherra telur afar mikilvægt að öldruðum sé gert kleift að sinna líkamsrækt með hreyfingu og hollu mataræði. Þetta er gert með framangreindum aðgerðum og fræðslu. Í heilbrigðisráðuneytinu er verið að vinna heilsustefnu (e. public health policy) fyrir Íslendinga og aðgerðaáætlun. Aðgerðaáætlunin inniheldur m.a. mælanleg markmið fyrir hverja aðgerð og verða drög að heilsustefnu og aðgerðaáætlun til ársloka 2009 kynnt innan skamms. Markmiðið með heilsustefnunni og aðgerðaáætluninni er að á Íslandi verði lögð stóraukin áhersla á forvarnir og heilsueflingu á öllum sviðum og stuðlað að heilbrigðari lífsháttum. Stefnan er að skapa þjóðfélag þar sem fólk á auðvelt með að taka heilsusamlegar ákvarðanir þegar kemur að næringu, hreyfingu og geðrækt. Þótt heilsustefnan beinist að allri þjóðinni þá eru þrír sérstaklega skilgreindir markhópar undir hverjum orsakaþætti sem unnið er út frá (sbr. t.d. hreyfing) og að sjálfsögðu eru aldraðir, þ.e. 67 ára og eldri, einn þeirra hópa.