Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 184. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 988  —  184. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á almennum hegningarlögum, nr. 19 12. febrúar 1940, með síðari breytingum (upptaka, hryðjuverk, skipulögð brotastarfsemi, mansal og peningaþvætti).

Frá meiri hluta allsherjarnefndar.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Helga Magnús Gunnarsson frá Ákærendafélagi Íslands, Gunnar Narfa Gunnarsson og Rögnu Árnadóttur frá dómsmálaráðuneyti, Jóhönnu K. Eyjólfsdóttur frá Íslandsdeild Amnesty International, Hólmstein Gauta Sigurðsson frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, Brynhildi Flóvenz frá Mannréttindaskrifstofu Íslands, Þórð Sveinsson frá Persónuvernd, Róbert R. Spanó fyrir hönd refsiréttarnefndar, Jón Bjartmarz og Sigríði Björk Guðjónsdóttur frá ríkislögreglustjóra, Valtý Sigurðsson ríkissaksóknara og Bryndísi Kristjánsdóttur skattrannsóknarstjóra.
    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ákvæðum almennra hegningarlaga, nr. 19/ 1940, um hryðjuverk, peningaþvætti og mansal. Þá eru lagðar til breytingar á ákvæði laganna um upptöku eigna og lagt til að lögfest verði nýtt ákvæði um skipulagða brotastarfsemi. Leitast er við að endurskoða ákvæði laganna með það í huga, í fyrsta lagi, að fullgilda samning Sameinuðu þjóðanna gegn fjölþjóðlegri, skipulagðri brotastarfsemi frá 15. nóvember 2000 (Palermó-samningur) og bókun við þann samning um að koma í veg fyrir, berjast gegn og refsa fyrir verslun með fólk, einkum konur og börn. Í öðru lagi með það í huga að gera nauðsynlegar ráðstafanir til að unnt sé að fullgilda Evrópuráðssamning um varnir gegn hryðjuverkum frá 3. maí 2005 og Evrópuráðssamning um aðgerðir gegn mansali frá sama tíma. Hvað síðastnefnda samninginn varðar þá kann efni hans að kalla á aðrar lagabreytingar svo unnt verði að fullgilda hann. Hvað varðar endurskoðun ákvæða um upptöku eigna hefur einnig verið tekið tillit til athugasemda í annarri matsskýrslu GRECO (Samtök ríkja gegn spillingu, e. Group of States Against Corruption) frá 2. júlí 2004. Einnig er með frumvarpinu komið til móts við athugasemdir um gildandi löggjöf um peningaþvætti sem koma fram í skýrslu FATF (Financial Action Task Force) um aðgerðir gegn peningaþvætti á Íslandi frá 13. október 2006.
    Helstu breytingar frumvarpsins eru eftirfarandi: Í fyrsta lagi er í 2. gr. lagt til að lögfestur verði nýr kafli um upptöku eigna í stað 69. gr. almennra hegningarlaga. Breytingarnar taka að verulegu leyti mið af gildandi ákvæðum í dönskum og norskum hegningarlögum, sbr. 76. gr. a dönsku hegningarlaganna og 68. gr. norsku hegningarlaganna. Kaflinn felur í sér ýmis nýmæli en 69. gr. almennra hegningarlaga hefur að mestu staðið óbreytt frá gildistöku þeirra. Veigamesta breytingin felst í c-lið 2. gr. frumvarpsins. Þar er lagt til að lögfest verði rýmri heimild til upptöku verðmæta hafi einstaklingur gerst sekur um alvarlegt brot sem er til þess fallið að hafa í för með sér verulegan ávinning og er hugsanlegt að gera upptæk verðmæti sem tilheyra öðrum en honum sjálfum. Unnt verður að gera upptæk verðmæti án þess að sýnt sé fram á að þau megi rekja til tiltekins refsiverðs brots hafi viðkomandi gerst sekur um brot sem er til þess fallið að hafa í för með sér verulegan ávinning og brotið geti varðað a.m.k. 6 ára fangelsi. Við þessar aðstæður er gert ráð fyrir fráviki frá meginreglunni um sönnunarbyrði ákæruvaldsins. Verðmæti sem tilheyra viðkomandi er því unnt að gera upptæk, nema hann sýni fram á að þeirra hafi verið aflað með lögmætum hætti. Í þessu sambandi koma til skoðunar ákvæði stjórnarskrárinnar og jafnframt ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu sem hefur lagagildi hér á landi, sbr. lög nr. 62/1994. Með öðrum orðum þarf að gaumgæfa hvort ákvæði frumvarpsins um frávik frá sönnunarbyrði ákæruvaldsins samrýmist 2. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar og 2. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Jafnframt verður að íhuga hvort ákvæðið gangi nærri 72. gr. stjórnarskrárinnar um friðhelgi eignarréttar, sbr. einnig 1. gr. 1. viðauka við mannréttindasáttmála Evrópu. Ákvæði 2. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar á rætur að rekja til 2. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Í dómi Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Phillips gegn Bretlandi frá 5. júlí 2001 reyndi á ákvæði breskra laga um upptöku. Kærandi í málinu hafði verið sakfelldur fyrir innflutning fíkniefna og var í framhaldinu höfðað upptökumál á hendur honum. Var kæranda gert að sæta upptöku á ákveðinni fjárhæð og honum gerð vararefsing. Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að ekki reyndi á 2. mgr. 6. gr. við þessar aðstæður þar sem kærandi hefði í upptökumálinu ekki verið „borinn sökum um refsiverða háttsemi“. Hvað varðar það fyrirkomulag sem lagt er til í c-lið 2. gr. frumvarpsins er því rétt að benda á að sá sem krafa um upptöku beinist að er í því tilfelli ekki borinn sökum um annað brot en hann hefur þegar verið sakfelldur fyrir. Í framangreindum dómi Mannréttindadómstóls Evrópu reyndi einnig á það hvort heimild til upptöku samkvæmt ákvæði breskrar fíkniefnalöggjafar væri það víðtæk að hún bryti gegn ákvæði mannréttindasáttmálans um friðhelgi eignarréttar. Dómurinn vísaði til þess að ákvörðun um upptöku í þessu tilviki væri „viðurlög“ í skilningi 2. mgr. ákvæðisins og að aðildarríkjum væri heimilt að fullnægja þeim lögum sem það teldi nauðsynlegt til að tryggja greiðslu viðurlaga. Hins vegar yrði kröfum meðalhófsreglunnar að vera fullnægt. Í ljósi þess markmiðs upptökunnar að berjast gegn útbreiðslu fíkniefna og annarra atvika málsins var ekki talið að brotið hefði verið gegn meðalhófsreglunni í máli kæranda og að því væri ekki um að ræða brot gegn 1. gr. 1. viðauka mannréttindasáttmálans. Að framangreindu virtu og í ljósi þess markmiðs c-liðar 2. gr. frumvarpsins að berjast gegn skipulagðri brotastarfsemi er hér lagt til grundvallar að ákvæðið brjóti ekki gegn umræddum ákvæðum enda sé í hverju tilviki gætt meðalhófs að virtum atvikum máls. Í hinum nýja upptökukafla er einnig fjallað um upptöku hafi ávinningi verið blandað saman við eignir sem hefur verið aflað með lögmætum hætti. Einnig er fjallað um tengsl skaðabótakröfu þess sem hefur beðið tjón við brot og upptöku verðmæta vegna sama brots en mælt er fyrir um að nýta megi andvirði verðmæta sem hafa verið gerð upptæk til greiðslu skaðabótakröfu. Þá er í kaflanum ákvæði um það hjá hverjum upptaka geti farið fram og jafnframt er mælt fyrir um heimild dómsmálaráðherra til að ákveða að því sem er gert upptækt verði skipt milli íslenska ríkisins og annars ríkis eða ríkja.
    Í öðru lagi er í 3.–5. gr. lagt til að gerðar verði breytingar á ákvæðum almennra hegningarlaga um hryðjuverk. Verknaðarlýsing hryðjuverka í 1. mgr. 100. gr. almennra hegningarlaga er gerð skýrari með því að lagt er til að lok upphafsmálsliðar 1. mgr. 100. gr. a falli brott en orðalagið þar hefur sætt gagnrýni fyrir að vera of matskennt og óljóst. Þá er einnig gert ljóst að hvers konar fjármögnun hryðjuverka eða annað liðsinni við slíka brotastarfsemi telst refsivert. Í 5. gr. er lagt til að lögfest verði sérstakt ákvæði sem bannar opinbera hvatningu til að fremja hryðjuverk. Í 1. mgr. 121. gr. almennra hegningarlaga er almennt ákvæði um refsinæmi opinberrar hvatningar til refsiverðra verka. Refsirammi þess er fangelsi allt að tveimur árum eða sektir ef málsbætur eru, nema brot varði þyngri refsingu að lögum. Í ljósi 5. gr. Evrópuráðssamnings um varnir gegn hryðjuverkum og eðli og alvarleika þess brots sem felst í hryðjuverki skv. 100. gr. a verður að telja að rök standi til þess að lögfesta sérrefsiákvæði um þessa tegund opinberrar hvatningar. Lagt er til að við slíku broti geti legið allt að þriggja ára fangelsi. Meiri hlutinn telur rétt að taka fram að ummæli sem falla í hálfkæringi heyra ekki undir þetta ákvæði frumvarpsins. Ásetningur verður að taka til allra efnisþátta brots eins og því er lýst í verknaðarlýsingu refsiákvæðis.
    Í þriðja lagi er í 6. gr. frumvarpsins lagt til að lögfest verði sérstakt refsiákvæði um skipulagða brotastarfsemi þar sem lagt er bann við þátttöku í skipulagðri brotastarfsemi. Hugtakið „skipulögð brotasamtök“ er skilgreint og er byggt á skilgreiningu Palermó-samningsins og að hluta 162. gr. c norsku hegningarlaganna.
    Í fjórða lagi er í 7. gr. frumvarpsins lagt til að gerðar verði ýmsar breytingar á 227. gr. almennra hegningarlaga um mansal. Skilgreining á mansalsbroti er gerð skýrari og í samræmi við Evrópuráðssamning um aðgerðir gegn mansali og bókun við samning Sameinuðu þjóðanna um fjölþjóðlega skipulagða brotastarfsemi (Palermo-bókun) er bætt við málsgrein þar sem lýst er refsinæmi tiltekinna athafna sem tengjast ferða- og persónuskilríkjum.
    Í fimmta lagi er lagt til að gerðar verði breytingar á 264. gr. almennra hegningarlaga um peningaþvætti. M.a. er lagt til að almenn verknaðarlýsing peningaþvættis verði gerð skýrari og gildissvið hennar rýmkað. Þá er refsihámark fyrir peningaþvættisbrot hækkað úr fjórum árum í sex.
    Í umsögn skattrannsóknarstjóra ríkisins um frumvarpið er fjallað um það grundvallaratriði skattaréttar að aðila hafi hlotnast skattlögð verðmæti, sbr. 7. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, þess efnis að aðilar telji sér til tekna þau verðmæti sem þeim hafi hlotnast. Í skattalöggjöf er ekki tekið á því álitaefni hvaða réttaráhrif það hafi á ákvarðaðan skattstofn að skattlögð verðmæti séu gerð upptæk. Telur skattrannsóknarstjóri að með hliðsjón af framangreindu ákvæði laga um tekjuskatt sé a.m.k. vafa undirorpið að eignaupptöku og skattlagningu verði beitt samhliða. Meiri hlutinn beinir því til fjármálaráðherra að kannað verði hvort gera þurfi breytingar á skattalöggjöf hvað þetta atriði varðar.
    Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Ellert B. Schram var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 9. maí 2008.



Birgir Ármannsson,


form., frsm.


Katrín Júlíusdóttir.


Sigurður Kári Kristjánsson.



Bjarni Harðarson.


Ólöf Nordal.


Karl V. Matthíasson.



Kjartan Eggertsson.