Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 482. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 1015  —  482. mál.




Svar



samgönguráðherra við fyrirspurn Kolbrúnar Halldórsdóttur um stuðning við frjáls félagasamtök.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvernig hefur stuðningi samgönguráðuneytis við frjáls félagasamtök verið háttað árin 2002–2007? Óskað er eftir því að í svarinu komi fram til hvers konar verkefna styrkir hafa verið veittir, hversu háir styrkir og hverjir ábyrgðaraðilar verkefnanna hafa verið, sundurliðað eftir fjárlagaliðum og árum.

     Samantekt.
    Á því árabili sem fyrirspurnin nær til veitti samgönguráðuneytið samtals 196 styrki. Heildarfjárhæð styrkjanna var 230.036.000 kr. Flestir voru styrkirnir árið 2002 eða 39 talsins en fæstir árið 2004, 21 talsins. Liðlega helmingur styrkjanna var veittur af ráðstöfunarfé ráðherra og sameiginlegu ráðstöfunarfé ríkisstjórnar, eða alls 110 styrkir. Aðra safnliði, sem veittir voru styrkir af, má flokka í tvennt. Í fyrri flokknum eru þrír safnliðir sem falla undir málaflokkinn ferðamál. Þeir eru í fyrsta lagi fjárlagaliðurinn markaðssókn í íslenskri ferðaþjónustu en af þeim lið voru veittar samtals 105.100.000 kr. í styrki frá ráðuneytinu á tímabilinu. Í öðru lagi er liðurinn gestastofur, söfn og markaðsstarf og í þriðja lagi liðurinn söfn tengd samgöngum og ferðaþjónustu. Styrkir af tveimur síðasttöldu safnliðunum voru ýmist veittir eftir ákvörðun Alþingis eða ráðuneytisins. Í seinni flokknum eru safnliðirnir ýmislegt og ýmis framlög samgönguráðuneytis en síðasttaldi liðurinn varð til við sameiningu safnliða með fjárlögum ársins 2007.

     Framgangsmáti styrkveitinga.
    Allar styrkbeiðnir sem berast ráðuneytinu og afgreiðsla þeirra eru bókuð í málaskrá ráðuneytisins. Litið er svo á að forsvarsmenn félagasamtaka séu ábyrgðaraðilar styrkja sem þeim er úthlutað.

    Eftirfarandi er yfirlit um veitta styrki á því timabili sem fyrirspurnin nær til.

Árið 2002 – styrkir samtals 25.202.000 kr.


Kr.
Atvinnuþróunarfélag Norðurlands vestra 1.000.000
Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða 1.650.000
Björgunarfélag Ísafjarðar 2.000.000
Björgunarsveitin Sæbjörg 1.000.000
Eiríksstaðanefnd 1.000.000
Eiríksstaðanefnd 600.000
Ferðamálasamtök Austurlands 1.000.000
Ferðamálasamtök höfuðborgarsvæðisins 1.000.000
Ferðamálasamtök Norðurlands eystra 1.000.000
Ferðamálasamtök Norðurlands vestra 1.000.000
Ferðamálasamtök Suðurlands 1.000.000
Ferðamálasamtök Suðurnesja 1.000.000
Ferðamálasamtök Vestfjarða 1.000.000
Ferðamálasamtök Vesturlands 2.000.000
Félag ferðamálafulltrúa 150.000
Félag íslenskra flugumferðarstjóra 130.000
Félagið Heyrnarhjálp 5.000
Gunnarsstofnun 200.000
Hestamiðstöð Íslands 1.200.000
Karlakór Rangæinga 500.000
Karlakórinn Heimir 300.000
Kómedíuleikhúsið, áhugamannafélag 50.000
Landsbyggðin lifi, félag 50.000
Leikfélagið Baldur 50.000
Norræna félagið 50.000
Samgönguminjasafnið Ystafelli 3.000.000
Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra 500.000
Skákfélag Grandrokks 100.000
Skemmtihúsið, áhugamannafélag 1.000.000
Slysavarnafélagið Landsbjörg 1.000.000
Umhyggja, félag til stuðnings langveikum börnum 10.000
Ungmennafélag Íslands 100.000
Verkefnastjórnunarfélagið 150.000
Ævintýraklúbburinn, áhugamannafélag 7.000
Ölversfélagið, áhugamannafélag 400.000

Árið 2003 – styrkir samtals 53.484.000 kr.


Kr.
Arnfirðingafélagið 100.000
Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða 13.000.000
Á senunni, félag 200.000
Bindindisfélag ökumanna 100.000
Ferðamálasamtök Íslands 17.200.000
Félag ferðamálafulltrúa 150.000
Félag leiðsögumanna 50.000
Gay pride – hinsegin dagar, félag 100.000
Grettistak ses. 1.000.000
Gunnarsstofnun 100.000
Handverkshús – Gallerí Sól 100.000
Hestamiðstöð Íslands 1.200.000
Íslenski alpaklúbburinn 300.000
Jass- & blúsklúbbur Stykkishólms 300.000
Kolkuós, sjálfseignarstofnun 250.000
Landvernd 300.000
Látrabjarg, áhugamannafélag 2.000.000
Miðstöð símenntunar -20.000
Reykholtskirkja 1.000.000
Reykholtskirkja 3.000.000
Samgönguminjasafnið Ystafelli 5.000.000
Samtök ferðaþjónustunnar 1.000.000
Samtök iðnaðarins 250.000
Sjálfsbjörg, höfuðborgarsvæðinu 140.000
Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra 400.000
Skákfélagið Hrókurinn 1.000.000
Söngfélagið Sunnan heiða 250.000
Þórbergssetur 5.000.000
Ævintýraklúbburinn, áhugamannafélag 14.000

Árið 2004 – styrkir samtals 41.460.000 kr .

Kr.
Karlakórinn Heimir
Styrkur vegna tónleikahalds til eflingar menningartengdri ferðaþjónustu 150.000
Sögusetrið á Hvolsvelli
Styrkur 3.000.000
Félag áhugamanna um víkingaverkefni
Styrkur vegna uppbyggingar á menningartengdri ferðaþjónustu á Vestfjörðum á slóðum Gísla Súrssonar 1.000.000
Sauðanesnefnd
Styrkur vegna þróunarverkefnis í Sauðaneshúsi 1.500.000
Ferðamálafélag Dalasýslu/Reykhólahrepps
Styrkur vegna útsýnisskífu á Reykhólum, söguskilta í Dalabyggð og Grettislaugar á Reykhólum 400.000
Félag íslenskra bifreiðaeigenda
Styrkur vegna fundar norrænna félaga FÍB hér á landi í maí 2004 150.000
Svifflugfélag Íslands
Framlag samkvæmt fjárlögum 2.000.000
Sjómannadagsráð Reykjavíkur/Hafnarfjarðar
Styrkur vegna Hátíðar hafsins 200.000
Skákfélag Grandrokks
Styrkur vegna alþjóðlegs skákmóts 1.000.000
Þórbergssetur
Framlag samkvæmt fjárlögum 7.000.000
Hestamiðstöð Íslands ses.
Framlag samkvæmt fjárlögum 5.000.000
Vestfirðir á miðöldum
Styrkur vegna uppbyggingar ferðaþjónustunnar í Vatnsfirði 2.000.000
Íþróttasamband fatlaðra
Styrkur vegna Hvata- og Ólympíumóta fatlaðra 2004 100.000
Ferðamálasamtök Íslands
Styrkur 16.000.000
Verkefnisstyrkur 1.200.000
Framfarafélag Snæfellsbæjar
Minnisvarði um Ottó A. Árnason 200.000
Ævintýraklúbburinn, áhugamannafélag
Styrkur vegna starfsemi Ævintýraklúbbsins 10.000
Ferðamálaskóli Íslands
Vegna þátttöku skólans í nemakeppni AEHT í Blad í Slóveníu 100.000
Lionsklúbbur Búðardals – Reykhóladeild
Styrkur vegna minnismerkis um Jón Thoroddsen á Reykhólum 150.000
Interpride á Íslandi, félag
Styrkur vegna heimsþings Interpride 7.–10. október 100.000
Eiríksstaðanefnd
Styrkur vegna lagfæringa og endurbóta á vegslóða við Eiríksstaði í Haukadal 200.000


Árið 2005 – styrkir samtals 34.060.000 kr
.

Kr.
Arnfirðingafélagið
Menningarhátíð Bíldudals 2005 100.000
Seljum norðurljósin
Styrkur vegna Aurora experience 200.000
Ferðaleikhúsið
Styrkur vegna sýningar ferðaleikhússins í Honolulu á Hawaii 50.000
Félag áhugamanna um víkingaverkefni
Verkefni á slóðum Gísla Súrssonar – Víkingar á Vestfjörðum 2.500.000
Hollvinasamtök Þórðar Halldórss
Styrkur, fyrsti hluti 400.000
Þingeyskur sagnagarður
Styrkur að beiðni Jóns Aðalsteins, biskups, vegna móttöku ferðamanna við Ljósavatnskirkju 400.000
Ferðamálafélag Dalasýslu/Reykhólahrepps
Framlag samkvæmt fjárlögum 1.000.000
SÁÁ Reykjavík
Styrkur til starfsemi SÁÁ 10.000
Félag íslenskra flugumferðarstjóra
Styrkur vegna skipulagningar á Evrópumeistaramóti flugumferðarstjóra í golfi á Íslandi sumarið 2006 200.000
Sjómannadagsráð Reykjavíkur/Hafnarfjarðar
Styrkur vegna Hátíðar hafsins 300.000
Landsbyggðin lifi
Styrkur vegna útgáfu á kynningarriti um starfsemi samtakanna Landsbyggðin lifi 50.000
Landsbyggðarvinir í Reykjavík og nágrenni
Styrkur vegna verkefnisins til eflingar og framþróunar byggða 75.000
Þórbergssetur
Framlag samkvæmt fjárlögum 3.000.000
Lionsklúbbur Stykkishólms
Styrkur vegna 160 ára afmælis samfelldra veðurathugana í Stykkshólmi 350.000
Ferðamálasamtök Íslands
Styrkur 1.200.000
Verkefnisstyrkur til samtakanna vegna átaks í markaðsmálum á landinu 16.000.000
Á senunni, félag
Styrkur vegna ferðar leikhópsins Á senunni til London 100.000
Ævintýraklúbburinn, áhugamannafélag
Styrkur vegna tómstundastarfs fyrir fatlaða einstaklinga 10.000
Félag íslenskra aflraunamanna
Styrkur vegna þátttöku í keppninnni „Sterkasti maður heims 2005“ í Kína 150.000
Landvernd
Styrkur vegna Bláfánans 150.000
Styrkur vegna umhverfismenntunar í ferðaþjónustu 300.000
Styrkur vegna verkefnisins leitin að þjóðarblóminu 50.000
Drangeyjarfélagið
Framlag samkvæmt fjárlögum 1.000.000
Ungmennafélag Íslands
Styrkur til útgáfu bæklingsins „Göngum um Ísland“ 15.000
Sumartónleikar og kórastefna
Styrkur vegna alþjóðlegrar kórahátíðar við Mývatn 150.000
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands
Alþjóðleg keppnisleyfi á Íslandi 6.000.000
Félag ferðaþjónustubænda
Styrkur vegna verkefnisins „Aðgengi fyrir alla innan ferðaþjónustu bænda“ 200.000
Starfsmannafélag SVR
Styrkur vegna 70 ára afmælis starfsmannafélags SVR 100.000

Árið 2006 – styrkir samtals 44.445.000 kr.

Kr.
Við Djúpið, félag
Styrkur vegna tónlistarhátíðarinnar Við Djúpið 200.000
Atvinnu- og ferðamálanefnd Flóa
Ekki skýringar í bókhaldi 1.000.000
Hollvinafélag Iðnaðarsafns Akureyrar
Styrkur vegna Húna II 60.000
Íslenska vitafélagið
Stuðningur við ráðstefnu um strandmenningu og vita 300.000
Sniglar, bifhjólasamtök lýðveldisins
Vegna umferðarátaks bifhjólasamtaka lýðveldisins, Snigla 100.000
Grettistak ses.
Framlag samkvæmt fjárlögum 6.000.000
Hollvinasamtök Þórðar Halldórssonar
Styrkur vegna Hollvinasamtaka Þórðar Halldórssonar á Dagverðará 200.000
Ferðamálafélag Dalasýslu/Reykhólahrepps
Framlag samkvæmt fjárlögum 1.000.000
Ferðafélag Íslands
brúargerð yfir Farið, neðan Langjökuls 2.500.000
Svifflugfélag Íslands
Framlag samkvæmt fjárlögum 2.000.000
Strandagaldur ses.
Styrkur vegna stofnunar Þjóðtrúarstofu á Ströndum 500.000
Flugmálafélag Íslands
Styrkur til reksturs skrifstofu Flugmálafélags Íslands 1.500.000
Sjálfsbjörg, höfuðborgarsvæðinu
Styrkur vegn hjálparmanns í ferðir fatlaðra 200.000
Sjómannadagsráð Reykjavíkur/Hafnarfjarðar
Styrkur vegna Hátíðar hafsins 200.000
SSVÞ, samtök verslunar og þjónustu
Styrkur við ímyndarátak þjónustugreina 500.000
Skíðasamband Íslands
Styrkur til uppbyggingar sumarskoðunar á Snæfellsjökli 1.000.000
Skógræktarfélag Íslands
Styrkur til Skógræktarritsins 2006 20.000
Félag heyrnarlausra
Styrkur vegna ráðstefnu um samskiptatækni heyrnarlausra 50.000
Þórbergssetur
Framlag samkvæmt fjárlögum 2.700.000
Skákfélagið Hrókurinn
Styrkur til áframhaldandi kraftmikils starfs 50.000
Vestfirðir á miðöldum
Styrkur vegna 2005 2.000.000
Ferðamálasamtök Íslands
Framlag samkvæmt fjárlögum 1.200.000
Verkefnisstyrkur til samtakanna vegna átaks í markaðsmálum á landinu 16.000.000
Fræðsluráð hótel- og matvælagreina
Styrkur vegna norrænnar nemakeppni 100.000
Landvernd
Styrkur vegna Bláfánans 2006 150.000
Styrkur vegna verkefnisins „Íslandsgátt“ 300.000
Drangeyjarfélagið
Framlag samkvæmt fjárlögum 1.000.000
Taflfélag Snæfellsbæjar
Styrkur vegna minningarmóts í skák 200.000
Ungmennafélag Íslands
Styrkur til Ungmennafélags Íslands, Skinfaxi 15.000
Sumartónleikar og kórastefna
Styrkur vegna kórastefnu við Mývatn sumarið 2006 150.000
Félag skipstjórnarmanna
Styrkur til þátttöku í ILO-þingi 450.000
Slysavarnadeild Öræfa
Framlag samkvæmt fjárlögum 1.000.000
Samtök atvinnulífsins
Styrkur til þátttöku í ILO-þingi 450.000
Tæknivísir, félag byggtæknifræðinemema TÍ
Styrkur til útgáfu Tæknivísis 50.000
Ferðaklúbburinn 4x4
Framlag samkvæmt fjárlögum 800.000
Ferðamálasamtök Austurlands
Styrkur vegna afmælisfundar 500.000

Árið 2007 til 27. maí, styrkir samtals 20.545.000 kr.

Kr.
Félag áhugamanna um víkingaverkefni
Styrkur vegna uppbyggingar menningartengdrar ferðaþjónustu á Vestfjörðum 1.000.000
Grettistak ses.
Styrkur samkvæmt samningi dags. 30. mars 2006 6.000.000
Ferðamálafélag Dalasýslu/Reykhólahrepps
Framlag samkvæmt fjárlögum 2.700.000
Norðurlandsdeild TFÍ
Styrkur vegna ráðstefnu um sjálfbærar samgöngur 150.000
SÍM, samband íslenskra myndlistarmanna
Styrkur til reksturs gestavinnustofu fyrir erlenda myndlistarmenn 150.000
Sjálfsbjörg, höfuðborgarsvæðinu
Styrkur vegna hjálparmanns í ferðir fatlaðra 160.000
Ferðamálasamtök Íslands
Styrkur vegna ferðasýningarinnar 2007 1.000.000
Kammerkór Suðurlands
Styrkur vegna þátttöku á menningarhátíð í Frakklandi í júní 2007 150.000
Kómedíuleikhúsið, áhugamannfélag
Styrkur vegna sýningar á leikverkinu Gísli Súrsson og til gerðar kynningarefnis 150.000
Landvernd
Styrkur til að taka þátt í ráðstefnu um vistvæna ferðaþjónustu 135.000
Drangeyjarfélagið
Framlag samkvæmt fjárlögum 1.000.000
Samtök um sögutengda ferðaþjónustu
Framlag samkvæmt fjárlögum 2.000.000
Ferðafélag Akureyrar
Styrkur vegna uppbyggingar Hálendismiðstöðvarinnar við Drekagil 5.000.000
Krabbameinsfélag Íslands
Styrkur vegna útgáfu tímarinsins Heilbrigðismál 15.000
Ferðaklúbburinn 4x4
Framlag samkvæmt fjárlögum 800.000
Kvenréttindafélag Íslands
Styrkur vegna afmælisráðstefnu Kvenréttindafélags Íslands 100.000
Sjómannadagsráð Ólafsvíkur
Styrkur til sjómannadagsráðs Ólafsvíkur 35.000

Árið 2007 frá 27. maí, styrkir samtals 10.840.000 kr.


Kr.
Sumartónleikar og kórastefna
Styrkur vegna kórastefnu við Mývatn sumarið 2007 100.000
Hjálpræðisherinn í Reykjavík
Styrkur til Hjálpræðishersins í Reykjavík af sameiginlegu ráðstöfunarfé ríkisstjórnarinnar 250.000
Hollvinasamtök Þórðar Halldórssonar
Styrkur 400.000
Ferðafélag Íslands
Framlag samkvæmt fjárlögum 5.000.000
Fiskidagurinn mikli
Styrkur vegna „Fiskidagsins mikla 2007“ 100.000
Samtök ferðaþjónustunnar
Styrkur vegna kynningarfundar um Norðurlöndin 100.000
Félag íslenskra flugumferðarstjóra
Styrkur vegna Norðurlandaþings Félags íslenskra flugumferðarstjóra 100.000
Sjómannadagsráð Reykjavíkur/Hafnarfjarðar
Styrkur vegna Hátíðar hafsins 200.000
Örnefnafélagið Snókur
Styrkur til örnefnaskráningar 500.000
Skákfélagið Hrókurinn
Styrkur vegn skákhátíðar á Grænlandi 75.000
Félag um Þjóðlagasetur Bjarna Þorsteinssonar
Styrkur til Félags um Þjóðlagasetur Bjarna Þorsteinssonar af sameiginlegu ráðstöfunarfé ríkisstjórnarinnar 1.000.000
Krabbameinsfélag Íslands
Styrkveiting vegna Heilbrigðismála haust 2007 15.000
Félag áhugamanna um Hrafnkelssögu
Framlag samkvæmt fjárlögum 1.000.000
BUGL, barna og unglingageðdeild
Styrkur til íbúðakaupa af sameiginlegu ráðstöfunarfé ríkisstjórnarinnar 2.000.000