Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 499. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 1021 — 499. mál.
um till. til þál. um fullgildingu þriggja Haag-samninga á sviði réttarfars.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Sigríði Eysteinsdóttur frá utanríkisráðuneyti, Gunnar Narfa Gunnarsson frá dómsmálaráðuneyti og Benedikt Bogason frá réttarfarsnefnd. Umsagna var leitað hjá nokkrum aðilum, en engar bárust.
Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til fullgildingar á þremur samningum á sviði réttarfars. Þeir varða einkamálaréttarfar, birtingu erlendis á réttarskjölum og utanréttarskjölum í einkamálum og verslunarmálum og öflun sönnunargagna erlendis í einkamálum og verslunarmálum. Samningarnir þrír koma í stað samnings sem gerður var á vegum Haag-ráðstefnunnar um einkamálaréttarfar frá árinu 1905. Meginmarkmið þeirra er að efla samvinnu milli ríkja til að greiða fyrir rekstri dómsmála. Þannig verði rutt úr vegi hindrunum milli ríkja vegna ólíkra réttarkerfa og réttaröryggi eflt þegar dómsmál varða aðila og hagsmuni í fleiri ríkjum.
Nefndin vekur athygli á því að dómsmálaráðherra hefur lagt fram frumvarp til laga um breytingar á lögum um meðferð einkamála, en breytingarnar leiðir af samningunum þremur. Það frumvarp er nú til meðferðar í allsherjarnefnd.
Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 1021 — 499. mál.
Nefndarálit
um till. til þál. um fullgildingu þriggja Haag-samninga á sviði réttarfars.
Frá utanríkismálanefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Sigríði Eysteinsdóttur frá utanríkisráðuneyti, Gunnar Narfa Gunnarsson frá dómsmálaráðuneyti og Benedikt Bogason frá réttarfarsnefnd. Umsagna var leitað hjá nokkrum aðilum, en engar bárust.
Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til fullgildingar á þremur samningum á sviði réttarfars. Þeir varða einkamálaréttarfar, birtingu erlendis á réttarskjölum og utanréttarskjölum í einkamálum og verslunarmálum og öflun sönnunargagna erlendis í einkamálum og verslunarmálum. Samningarnir þrír koma í stað samnings sem gerður var á vegum Haag-ráðstefnunnar um einkamálaréttarfar frá árinu 1905. Meginmarkmið þeirra er að efla samvinnu milli ríkja til að greiða fyrir rekstri dómsmála. Þannig verði rutt úr vegi hindrunum milli ríkja vegna ólíkra réttarkerfa og réttaröryggi eflt þegar dómsmál varða aðila og hagsmuni í fleiri ríkjum.
Nefndin vekur athygli á því að dómsmálaráðherra hefur lagt fram frumvarp til laga um breytingar á lögum um meðferð einkamála, en breytingarnar leiðir af samningunum þremur. Það frumvarp er nú til meðferðar í allsherjarnefnd.
Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
Alþingi, 19. maí 2008.
Bjarni Benediktsson,
form., frsm.
Árni Páll Árnason.
Steingrímur J. Sigfússon.
Ragnheiður E. Árnadóttir.
Ásta R. Jóhannesdóttir.
Siv Friðleifsdóttir.
Guðfinna S. Bjarnadóttir.
Lúðvík Bergvinsson.
Kristinn H. Gunnarsson.