Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 493. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 1022  —  493. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um fullgildingu Palermó-samnings gegn fjölþjóðlegri skipulagðri glæpastarfsemi.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Sigríði Eysteinsdóttur frá utanríkisráðuneyti, Gunnar Narfa Gunnarsson frá dómsmálaráðuneyti og Þorstein A. Jónsson frá refsiréttarnefnd. Umsögn barst um málið frá ríkissaksóknara.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til fullgildingar á samningi gegn fjölþjóðlegri skipulagðri glæpastarfsemi sem samþykktur var af allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York árið 2000. Megintilgangur samningsins er að stuðla að samvinnu milli ríkja með það að markmiði að berjast gegn fjölþjóðlegri skipulagðri glæpastarfsemi með skilvirkum hætti. Því er nauðsynlegt að draga úr mismun á réttarkerfum sem torveldar samstarf ríkja og gera lágmarkskröfur til landsréttar aðildarríkjanna til að efla alþjóðlegt samstarf. Meðal þess sem aðildarríki samningsins skuldbinda sig til að gera refsivert í landsrétti sínum er þátttaka í skipulögðum glæpasamtökum, þvætti ávinnings af glæp, spilling og hindrun á framgangi réttvísinnar.
    Nefndin bendir á að þrjár bókanir hafa þegar verið gerðar við samninginn og unnið er að fullgildingu tveggja þeirra hér á landi. Nefndin leggur áherslu á að þeirri vinnu verði hraðað eftir megni til að styrkja framkvæmd samningsins.
    Nefndin vekur athygli á því að dómsmálaráðherra hefur lagt fram frumvarp til laga um breytingar á almennum hegningarlögum, en breytingarnar sem lagðar eru til leiðir að hluta til af Palermó-samningnum. Það frumvarp er nú til meðferðar í allsherjarnefnd.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Alþingi, 19. maí 2008.



Bjarni Benediktsson,


form., frsm.


Árni Páll Árnason.


Steingrímur J. Sigfússon.



Ragnheiður E. Árnadóttir.


Ásta R. Jóhannesdóttir.


Siv Friðleifsdóttir.



Guðfinna S. Bjarnadóttir.


Lúðvík Bergvinsson.


Kristinn H. Gunnarsson.