Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 596. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 1028 — 596. mál.
dómsmálaráðherra við fyrirspurn Marðar Árnasonar um meðferð hælisumsóknar.
1. Hvaða breytingar telur ráðherra nauðsynlegar á meðferð hælisumsóknar í Útlendingastofnun í ljósi dóms Héraðsdóms Reykjavíkur 15. apríl sl. í máli hælisleitanda, einkum á rannsókn aðstæðna sem umsækjandi ber fyrir sig?
2. Hvaða breytingar telur ráðherra í ljósi dómsins nauðsynlegar á meðferð kærumáls vegna synjaðrar hælisumsóknar í dómsmálaráðuneytinu, einkum á rannsókn aðstæðna sem umsækjandi ber fyrir sig?
Tekin hefur verið ákvörðun um áfrýjun dóms héraðsdóms í máli þessu til Hæstaréttar. Í því ljósi er ótímabært að draga ályktanir um nauðsyn breytinga af máli þessu.
3. Telur ráðherra að við meðferð slíkra mála eigi að meta vafa hælisleitanda í hag þegar rannsókn leiðir ekki í ljós bresti í framburði hans?
Almennt verður að meta vafa í málum hælisleitenda þeim í hag ef rannsókn leiðir ekki í ljós neina bresti í framburðinum. Rétt er þó að halda því til haga að hér er um ákaflega margbrotin mál að ræða og sönnunarstaða mjög ólík í einstökum málum. Ekki er heldur sjálfgefið að rangur framburður um eitthvert afmarkað atriði leiði til þess að framburður í heild verði metinn ótrúverðugur.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 1028 — 596. mál.
Svar