Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 609. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 1032  —  609. mál.




Svar



umhverfisráðherra við fyrirspurn Þuríðar Backman um eftirlit með útsölustöðum tóbaks o.fl.

     1.      Hafa heilbrigðisnefndir sveitarfélaganna samræmdar vinnureglur hvað varðar eftirlit, undanþágur og viðurlög við brotum á lögum og reglugerð um tóbaksvarnir hvað varðar sölu í verslunum og eftirlit með reykingabanni á veitingahúsum (kaffihúsum, veitinga- og skemmtistöðum)?
    Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna hafa ekki samræmdar vinnureglur hvað þessi atriði varðar. Reglugerð nr. 325/2007, um sölu tóbaks, og reglugerð um takmarkanir á tóbaksreykingum, nr. 326/2007, sem settar eru af heilbrigðisráðherra, mæla fyrir um hvernig með þessi mál skuli farið.

     2.      Í hve ríkum mæli óska smávöruverslanir eftir undanþágu frá aldurstakmörkum afgreiðslufólks?
    Breytilegt er eftir heilbrigðiseftirlitssvæðum hversu margar beiðnir berast um undanþágu frá aldurstakmörkum afgreiðslufólks. Aðallega hefur verið sótt um undanþágur á þremur heilbrigðiseftirlitssvæðum og virðist það vera vegna atvinnuástandsins undanfarin ár. Á sumum heilbrigðiseftirlitssvæðum hafa engar undanþágur verið veittar. Þar sem undanþágur hafa verið veittar er það hins vegar einungis eftir að auglýsingar eftir starfsfólki eldra en 18 ára hafa ekki borið árangur. Á heildina litið sækja fáir útsölustaðir um undanþágu.

     3.      Telur ráðherra að heilbrigðiseftirlit sveitafélaganna hafi bolmagn til að sinna eftirliti með útsölustöðum tóbaks með tilliti til aukinna verkefna?
    Samkvæmt þeim upplýsingum sem ráðuneytið hefur aflað frá Umhverfisstofnun er talið ótvírætt að heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga hafi bolmagn til að sinna reglubundnu eftirliti með útsölustöðum tóbaks. Þó þekkist það að farið er í sérstakar eftirlitsferðir á útsölustaði til að kanna framkvæmd á smásölu tóbaks, auk reglubundins eftirlits. Á öllum heilbrigðiseftirlitssvæðum er kvörtunum sinnt með sérstöku eftirliti, sem síðan geta leitt til áminningar eða ábendinga um úrbætur.

     4.      Hvaða viðurlögum er beitt við brotum á umræddum ákvæðum tóbaksvarnarlaga og í hve ríkum mæli er það gert?
    Í VIII. kafla laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, er fjallað um þau viðurlög sem heilbrigðiseftirlit getur gripið til. Ábendingar um lagfæringar og eftirlitsferðir eru algengasta úrræðið við brotum og duga oft vel. Fáum áminningum hefur verið beitt undanfarin ár. Vitað er um a.m.k. eitt dæmi þar sem útsölustað hefur verið lokað vegna brota á reglugerð um smásölu tóbaks.