Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 628. máls.

Þskj. 1040  —  628. mál.



Frumvarp til laga

um eftirlit með hlutum, tækni og þjónustu
sem hefur hernaðarlega þýðingu .

(Lagt fyrir Alþingi á 135. löggjafarþingi 2007–2008.)




1. gr.
Markmið.

    Með lögum þessum eru settar reglur um:
     a.      eftirlit með hlutum, tækni og þjónustu sem hefur hernaðarlega þýðingu, í þeim tilgangi að viðhalda friði og öryggi eða til varnar gegn brotum á hryðjuverka-, mannréttinda- eða mannúðarlögum,
     b.      örugga vörslu og geymslu gagna um hluti, tækni og þjónustu sem hefur hernaðarlega þýðingu,
     c.      viðurlög og stjórnsýsluleg úrræði gegn brotum á lögum þessum.

2. gr.

Gildissvið.

         Lög þessi taka til íslenskra ríkisborgara og útlendinga samkvæmt ákvæðum almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, um refsilögsögu, en gera að auki íslenskum ríkisborgurum refsiábyrgð fyrir verknað sem þeir fremja erlendis þrátt fyrir að verknaðurinn sé ekki refsiverður samkvæmt lögum þess ríkis þar sem brotið var framið.
    Lögin gilda gagnvart lögaðilum, sem eru skráðir eða stofnaðir samkvæmt íslenskum lögum, hvar sem þeir starfa eða eru staðsettir. Nú er lögaðili skráður eða stofnaður erlendis og taka þá lögin til starfsemi hans að því leyti sem hún fer fram innan íslenskrar lögsögu.
Nú leggja lög tiltekinn málaflokk til viðkomandi fagráðherra og skal það ekki vera því til fyrirstöðu að utanríkisráðuneytið veiti leyfi eða setji reglur samkvæmt lögum þessum, enda sé haft samráð um útgáfu leyfisins eða setningu reglnanna við viðkomandi ráðuneyti eða undirstofnun þess eftir atvikum. Lögreglustjóri veitir þó leyfi fyrir útflutningi á þeim vopnum sem falla undir gildissvið vopnalaga, að höfðu samráði við utanríkisráðuneyti.

3. gr.
Skilgreiningar.

    Merking orða í lögum þessum er sem hér segir:
     1.      Aðili er einstaklingur eða lögaðili, þ.m.t. ríkisstjórnir, fyrirtæki, samsteypur, stofnanir, sjóðir og samtök.
     2.      Bann við útflutningi merkir að aðilum hérlendis og íslenskum aðilum erlendis er óheimilt að selja, miðla, útvega eða flytja héðan eða um Ísland eða með íslenskum skipum eða loftförum, með beinum eða óbeinum hætti, hluti til annarra ríkja, hvort sem þeir eru upprunnir hér á landi eða ekki.
     3.      Hergögn eru vopn og skotfæri sem hafa hernaðarlega þýðingu, hernaðarökutæki, herbúnaður, m.a. herbúnaður sem er ekki ætlaður ríkisher, hernaðarleg tækni og varahlutir í framangreinda hluti.
     4.      Hlutur tekur til vöru, hugbúnaðar og tækni.
     5.      Hlutur með tvíþætt notagildi er hlutur sem má nota bæði í borgaralegum og hernaðarlegum tilgangi.
     6.      Útflutningur tekur til útflutnings og umflutnings í skilningi tollalaga, nr. 88/2005, með eða án endurgjalds. Hugtakið tekur einnig til miðlunar hugbúnaðar og tækni með rafrænum miðlum, bréfsíma eða gegnum síma til áfangastaða erlendis.
     7.      Þjónusta tekur m.a. til sölu, miðlunar, útvegunar, flutnings, fjármögnunar, aðstoðar, ráðgjafar og þjálfunar, með eða án endurgjalds.

4. gr.
Leyfisskyldur útflutningur.

    Enginn má flytja út hergögn eða hluti með tvíþætt notagildi nema með leyfi ráðherra, sbr. þó 2. málsl. 3. mgr. 2. gr. Skrár um slík hergögn og hluti skulu birtar í B-deild Stjórnartíðinda.
    Auk þess sem tilgreint er í 1. mgr. er óheimilt að flytja út, án leyfis ráðherra, hluti sem útflytjanda er kunnugt um, hann má ætla eða sem ráðuneytið tilkynnir honum að séu eða kunni að vera ætlaðir til notkunar í hernaðarlegum tilgangi, til hryðjuverka eða til bælingar innan viðkomandi landa sem brýtur í bága við alþjóðlegar skuldbindingar Íslands eða ógnar varnar- eða öryggishagsmunum þess eða bandalagsríkja þess.
    Nú ákveður ráðherra að banna útflutning samkvæmt þessari grein til tiltekinna landa eða landsvæða og er honum þá heimilt að kveða á um að útflutningsleyfi þurfi fyrir búnaði sem kynni að verða notaður til bælingar innan þessara landa eða landsvæða.

5. gr.
Leyfisskyld hergagnamiðlun og þjónusta.

    Enginn má stunda hergagnamiðlun eða þjónustuviðskipti í tengslum við útflutning hergagna og hluta skv. 4. gr. nema með leyfi ráðherra, enda hafi verið settar um þau nánari reglur.

6. gr.
Leyfisskilyrði.

    Ráðherra getur sett skilyrði í tengslum við útgáfu útflutnings- og þjónustuleyfa samkvæmt lögum þessum, þar á meðal varðandi upplýsingagjöf um sölukjör, greiðslukjör, lánskjör, flutningaleiðir, meðferð skjala og lokanotanda og/eða lokanot vöru og þjónustu.
    Ráðherra getur breytt leyfisskilyrðum eða afturkallað leyfi hvenær sem er, til bráðabirgða eða fyrir fullt og allt, ef:
     a.      forsendur fyrir útgáfu leyfisins eru brostnar,
     b.      leyfishafi hefur ekki farið eftir settum leyfisskilyrðum eða
     c.      brýna nauðsyn ber til
og skal þá leyfishafi skila leyfinu tafarlaust til ráðuneytisins.
    Aðili máls getur ávallt óskað eftir því að ákvörðun ráðherra um leyfisskilyrði, breytingu leyfisskilyrða, afturköllun eða synjun leyfis verði endurupptekin í samræmi við ákvæði 24. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.

7. gr.
Varsla hergagna, hluta og bókhaldsgagna.

    Útflytjendur, innflytjendur og vörsluaðilar hergagna og hluta skv. 4. gr. skulu tryggja örugga vörslu þeirra. Ráðherra getur sett nánari reglur þar að lútandi.
    Útflytjendur, innflytjendur og vörsluaðilar hergagna og hluta skv. 4. gr. og þjónustuaðilar skv. 5. gr. skulu geyma gögn um útflutning, innflutning og birgðahald þeirra í að minnsta kosti tíu ár. Ráðherra getur sett nánari reglur þar að lútandi.

8. gr.
Upplýsingaskylda.

    Útflytjendur hergagna og hluta skv. 4. gr. og þjónustuaðilar skv. 5. gr. skulu veita ráðuneytinu allar þær upplýsingar og alla þá aðstoð sem nauðsynleg er til þess að framfylgja lögum þessum og reglum settum samkvæmt þeim. Skal ráðuneytið miðla upplýsingum til ríkislögreglustjóra samkvæmt þessari grein, eftir því sem við á.
    Ráðuneytið og þeir opinberu aðilar sem það tilnefnir geta m.a. krafist:
     a.      aðgangs að öllum gögnum og bókhaldi sem snertir framkvæmd laga þessara,
     b.      aðgangs að öllu viðkomandi skrifstofuhúsnæði og allri tilheyrandi rekstraraðstöðu,
     c.      afrita og þýðingar á efni skv. a-lið, og
     d.      aðstoðar við vinnslu og túlkun á efni skv. a-lið.
    Ef ekki er orðið við kröfu ráðuneytisins samkvæmt þessari grein getur það ákveðið að sá eða þeir sem krafan beinist að greiði dagsektir þar til orðið er við henni. Ákvörðun um dagsektir skal tilkynnt bréflega og á sannanlegan hátt þeim sem hún beinist að. Dagsektir geta numið allt að 100.000 kr. á dag. Ákvarðanir ráðuneytisins um dagsektir eru aðfararhæfar skv. 6. tölul. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 90/1989, um aðför.

9. gr.
Tilkynningarskylda.

    Útflytjendur, innflytjendur og vörsluaðilar hergagna og hluta skv. 4. gr. skulu tilkynna ráðuneytinu um útflutning, innflutning og birgðahald samkvæmt nánari reglum sem ráðherra setur.
    Ráðherra getur sett reglur um að tilkynna skuli flugskeytaskot innan íslenskrar lofthelgi.

10. gr.
Þagnarskylda.

    Starfsmenn ráðuneytisins og þeir aðilar sem það tilnefnir skv. 8. gr. skulu gæta þagmælsku um allt það sem þeir fá vitneskju um samkvæmt þessum lögum og leynt á að fara. Þagnarskyldan helst eftir að látið er af starfi. Þagnarskyldan gildir ekki að svo miklu leyti sem nauðsynlegt er:
     a.      til þess að ná markmiðum laganna, m.a. í tengslum við lögreglurannsókn og saksókn máls,
     b.      milli þeirra aðila sem annast framkvæmd laganna, þar á meðal skjalavörslu, eða
     c.      vegna samráðs eða samvinnu við aðra eftirlits- og samstarfsaðila hérlendis sem erlendis.

11. gr.
Réttindi og skyldur sem fara í bága við lög þessi.

    Óheimilt er að efna samninga eða fullnægja öðrum réttindum og skyldum sem fara í bága við lög þessi og reglugerðir settar með stoð í þeim. Þetta á við hvort sem þessi réttindi og skyldur mynduðust fyrir eða eftir gildistöku þeirra nema annað sé tekið fram í þeim.
    Vanefnd á réttindum og skyldum skv. 1. mgr. leiðir ekki til skaðabótaskyldu.

12. gr.
Undanþágur frá útflutningsbanni.

    Nú ákveður ráðherra að banna tiltekinn útflutning skv. 4. eða 5. gr. og getur hann þá veitt undanþágu frá banninu þegar gildar ástæður eru fyrir hendi. Heimilt er að setja skilyrði vegna sérhverrar undanþágu til þess að tryggja að með henni sé ekki grafið undan eða komist fram hjá markmiði bannsins.

13. gr.
Viðurlög.

    Sá sem brýtur gegn boði eða banni, sem mælt er fyrir um í eftirgreindum ákvæðum eða í reglugerð sem er sett til nánari útfærslu á þeim, skal sæta sektum, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum:
     a.      7. gr. um vörslu hergagna, hluta og bókhaldsgagna,
     b.      9. gr. um tilkynningarskyldu.
    Sá sem brýtur gegn boði eða banni, sem mælt er fyrir um í eftirgreindum ákvæðum eða í reglugerð sem er sett til nánari útfærslu á þeim, skal sæta sektum eða fangelsi allt að 4 árum, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum. Sé brotið stórfellt varðar það sektum eða fangelsi allt að 6 árum:
     a.      4. gr. um bann við útflutningi án leyfis,
     b.      5. gr. um bann við hergagnamiðlun eða veitingu þjónustu án leyfis,
     c.      1. mgr. 6. gr. um leyfisskilyrði.
    Hafi brot, sem vísað er til í 2. mgr., verið framið af stórfelldu gáleysi varðar það sektum eða fangelsi allt að 1 ári.
    Þegar brot er framið í starfsemi lögaðila og í þágu hans má gera lögaðilanum sekt án tillits til þess hvort sök verður sönnuð á fyrirsvarsmann eða starfsmann lögaðilans. Hafi fyrirsvarsmaður eða starfsmaður gerst sekur um brot má samhliða ákvörðun um refsingu þeirra gera lögaðilanum sekt ef brotið var í þágu hans.
    Gera má upptæka hluti, samkvæmt ákvæðum almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, sem hafa verið notaðir við brot, hafa orðið til við brot eða með öðrum hætti tengjast því að brot er framið. Þá má gera upptækan ávinning af broti eða fjárhæð sem svarar til hans í heild eða að hluta.

14. gr.
Nánari reglur o.fl.

    Utanríkisráðherra fer með framkvæmd laga þessara og er heimilt:
     a.      að setja nánari reglur þar að lútandi,
     b.      að fela Varnarmálastofnun að annast útgáfu útflutnings- og þjónustuleyfa og aðra tilgreinda framkvæmd laga þessara,
     c.      að láta birta frumtexta skrár um hergögn og hluti skv. 4. gr. á erlendu tungumáli í B-deild Stjórnartíðinda,
     d.      að fella niður gjald fyrir útgáfu útflutningsleyfis, sbr. 50. tölul. 11. gr. laga um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991, þegar hergögn, eða aðrir hlutir sem undir lög þessi heyra, eru flutt tímabundið til eða frá landinu til prófana, sýningar eða í öðrum tilgangi.

15. gr.
Gildistaka.

    Lög þessi öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi lög um útflutningsleyfi o.fl., nr. 4/1988.

Ákvæði til bráðabirgða.

    Útflutningur til aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins skal undanþeginn ákvæðum laga þessara til 15. september 2008.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Núverandi eftirlit með útflutningi, sem hefur hernaðarlega þýðingu, er byggt á lögum um útflutningsleyfi, nr. 4/1988. Eftirlit þetta er viðhaft vegna alþjóðlegra skuldbindinga á þessu sviði sem miða að því að hefta sölu hefðbundinna vopna, gjöreyðingarvopna og hættulegra hluta til ákveðinna aðila eða landa eða til þess að forðast að þau nýtist til hryðjuverka eða annarrar ólögmætrar starfsemi. Auk öryggissjónarmiða eiga mannréttinda- og mannúðarsjónarmið við þegar ákvörðun er tekin um að hefta útbreiðslu hættulegra hluta eða tækni.
    Eftir hryðjuverkaárásina, sem var gerð á Bandaríkin árið 2001, hefur alþjóðleg samvinna um útflutningseftirlit aukist verulega. Lagafrumvarpi þessu er ætlað að uppfæra gildandi reglur varðandi eftirlit með útflutningi á hernaðarlega mikilvægri vöru og tækni og að styrkja lagagrundvöll þeirra. Einnig eru settar reglur um eftirlit með hernaðarlega mikilvægri þjónustu. Loks eru sett heimildarákvæði um setningu reglna um örugga vörslu og gagnafærslu um hluti, tækni og þjónustu sem undir frumvarpið heyrir.
    Meðal þeirra alþjóðaskuldbindinga um útflutningseftirlit sem eiga við um Ísland má nefna fyrirmæli öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, efnavopnasamninginn frá 3. september 1992, skuldbindingar sem fylgja aðild Íslands að svonefndum Ástralíuhópi (efna- og lífefnavopn), fyrirkomulag takmarkana á flugskeytatækni (MTCR – Missile Technology Control Regime), öryggisfrumkvæðið gegn útbreiðslu gereyðingarvopna (PSI – Proliferation Security Initiative) og Haag-starfsreglur gegn útbreiðslu skotflauga (HCOC – Hague Code of Conduct).
    Með alþjóðasamstarfi, eins og fram fer í Ástralíuhópnum, MTCR, PSI og HCOC, sammælast þátttökuríkin um samræmdar aðgerðir sem þeim er ætlað að koma í framkvæmd innan lögsögu sinnar án þess að formlegir alþjóðasamningar séu gerðir þar um.
    Fyrirmæli öryggisráðsins binda öll aðildarríki Sameinuðu þjóðanna. Dæmi er ályktun nr. 1540 frá 28. apríl 2004 sem fjallar um gjöreyðingarvopn. Þar segir m.a. að ríki skuli hafa virkt eftirlit með útflutningi á kjarnorku-, efna- og lífefnavopnum og burðarkerfum þeirra, svo og flutningi, umskipun og fjármögnun. Einnig skal kveðið á um viðurlög gegn brotum á útflutningslöggjöfinni.
    Við undirbúning þessa frumvarps hefur m.a. verið tekið tillit til reglna í nágrannalöndunum, þar á meðal á Norðurlöndunum og í Evrópusambandinu. Frjálst flæði vöru gildir innan Evrópska efnahagssvæðisins. Samræmdar reglur minnka hættuna á umflutningi ólöglegrar vöru frá EES-ríkjum um íslenskt landsvæði.
    Frumvarpið miðar að því að fyrirkomulag eftirlits sé eins hagkvæmt og kostur er og að þekking samstarfsríkja verði nýtt eftir atvikum. Virkt útflutningseftirlit er til þess fallið að styrkja stöðu íslenskra útflutningsfyrirtækja, einkum þeirra sem stunda útflutning á hlutum sem hafa tvíþætt notagildi. Þeim verður auðveldara um vik að flytja inn vissa hátæknivöru í eigin framleiðslu ef betur er tryggt að hún verði ekki endurútflutt til landa sem eru á bannlistum annarra ríkja. Það er eftirsóknarvert fyrir útflutningsfyrirtæki að geta með auðveldum hætti fullvissað sig um að útflutningur brjóti ekki í bága við alþjóðlegar skuldbindingar, enda getur slíkt haft alvarlegar afleiðingar, bæði fyrir þau og fyrir stjórnvöld.
    Í gildandi lögum er ekki almenn heimild til að leyfisskylda þjónustu í tengslum við hergagnaviðskipti. Samkvæmt vopnalögum þarf leyfi lögreglustjóra til verslunar með skotvopn, skotfæri, sprengiefni og skotelda, en þeir vöruflokkar ná aðeins yfir brot af þeim hlutum sem falla undir efni þessa frumvarps. Samkvæmt loftferðalögum þarf leyfi samgönguráðherra til að flytja hergögn í loftförum, en þar eru hergögn skilgreind sem skotvopn og skotfæri. Í frumvarpinu er lögð til almenn heimild til þess að leyfisskylda vissa þjónustu í tengslum við hergögn, einkum miðlunarstarfsemi, hliðstætt því sem gildir t.d. í nágrannalöndum, enda nauðsynlegt til þess að tryggja virkar takmarkanir á viðskiptum með vopn erlendis. Mikilvægt er að tryggja að slík þjónusta brjóti ekki í bága við alþjóðlegar skuldbindingar Íslands eða öryggishagsmuni.
    Ákvörðun um útflutningsleyfi á hergögnum og skyldri vöru fer fram í þremur meginskrefum. Fyrst þarf að fara fram tæknilegt mat á vörunni, þ.e. hvort hún sé í gildandi skrá. Það mat getur kallað á sérfræðiþekkingu, bæði hvað varðar vöruna sjálfa og notkunarmöguleika hennar, svo og á hinum mismunandi heitum sem kunna að vera notuð yfir hana. Næst fer fram áhættumat, þ.e. hvert er móttökuríkið, eru t.d. stríðsátök á svæðinu og hver er hinn endanlegi notandi? Varðandi þessi tvö fyrstu skref geta íslensk stjórnvöld reitt sig á alþjóðlega samvinnu ef á þarf að halda. Síðasta skrefið er hin pólitíska ákvörðun um hvort heimila eigi útflutninginn, þ.e. ef hann er ekki beinlínis bannaður samkvæmt alþjóðlegum skuldbindingum. Í þessu efni fylgja nágrannaríkin ekki alltaf samræmdri stefnu, jafnvel t.d. innan Evrópusambandsins. Hinar alþjóðlegu samstarfsreglur kveða almennt á um að neitun um útflutningsleyfi skuli tilkynnt öllum aðildarríkjum. Ætlast er til að öll samstarfsríki hafni hliðstæðum útflutningi.
    Núverandi eftirlit með hergagnaútflutningi er í megindráttum þríþætt. Í fyrst lagi er það í höndum utanríkisráðuneytisins, sem veitir útflutningsleyfi samkvæmt samnefndum lögum þar um. Í öðru lagi er það hlutverk tollstjóra að hafa eftirlit með útflutningi og umflutningi samkvæmt tollalögum. Í þriðja lagi hafa lögregluyfirvöld eftirlit með brotum á útflutningslöggjöfinni. Einnig koma önnur ráðuneyti að eftirliti með útflutningi á hættulegum hlutum, t.d. umhverfisráðuneytið, heilbrigðisráðuneytið og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið, á grundvelli laga sem undir þau heyra. Nauðsynlegt er að stjórnvöld eigi góða samvinnu sín á milli til þess að tryggja nauðsynlega samhæfingu.
    Rétt er að taka fram að þótt samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið fjalli m.a. um frjáls vöruviðskipti, þá er sérstaklega tekið fram í honum að ekkert í samningnum hindri samningsaðila í að gera ráðstafanir sem snerta framleiðslu á eða viðskipti með vopn, skotfæri, hergögn o.fl. Sameiginlegar reglur Evrópusambandsins um eftirlit með útflutningi hergagna eru ekki hluti af EES-samningnum, en engu að síður getur verið æskilegt að innleiða hliðstæðar reglur í því skyni að tryggja betra samræmi.
    Gjöld fyrir útflutningsleyfi fara eftir lögum um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991.
    Með frumvarpi þessu fylgja umsagnir fjármálaráðuneytisins um kostnaðaráhrif (fylgiskjal V) og ráðgjafarnefndar um opinberar eftirlitsreglur (fylgiskjal IV).

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.


    Gerð er grein fyrir markmiðssetningu frumvarpsins í almennum athugasemdum hér að framan.

Um 2. gr.

    Lög þessi taka til allra aðila innan íslenskrar lögsögu og íslenskra aðila erlendis, hvar sem þeir eru staddir.
    Utanríkisráðherra fer með mál er varða útflutningsverslun skv. 11. tölul. 14. gr. reglugerðar um Stjórnarráð Íslands, nr. 3/2004, sem er sett á grundvelli samnefndra laga nr. 73/ 1969. Hins vegar er kveðið á um leyfisskyldan útflutning í nokkrum lögum sem heyra undir aðra ráðherra, t.d. vopnalögum nr. 16/1998, 1 lögum um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, lögum um varnir gegn sjúkdómum og meindýrum í plöntum, nr. 51/1981, og lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993, svo dæmi séu tekin.
    Með þessu frumvarpi er lagt til að utanríkisráðuneytið geti veitt útflutningsleyfi fyrir alla vöru, tækni og þjónustu sem hefur hernaðarlegt gildi, en í þeim örfáu tilvikum, þegar slíkur útflutningur kann að falla einnig undir önnur lög, þá verði haft samráð við viðkomandi ráðuneyti eða undirstofnun áður en nánari reglur eru settar til þess að tryggja samræmi í framkvæmd. Dæmi um slíka nánari útfærslu er samræming við 78. gr. laga um loftferðir, nr. 60/1998, sem kveður á um að hergögn, þ.m.t. skotvopn og skotfæri, megi ekki flytja í loftförum án leyfis samgönguráðherra.
    Í frumvarpi þessu er þó lagt til að lögreglustjóri veiti áfram leyfi fyrir útflutningi á þeim vopnum sem falla undir gildissvið vopnalaga, að höfðu samráði við utanríkisráðuneyti. Skv. 1. mgr. 6. gr. vopnalaga má enginn flytja úr landi skotvopn, skotfæri, sprengiefni eða skotelda nema með leyfi lögreglustjóra og þykir eðlilegt að sá háttur verði áfram hafður á varðandi útflutning vopna sem falla undir gildissvið vopnalaga. Hins vegar er gert ráð fyrir að lögreglustjóri muni hafa samráð við utanríkisráðuneytið þegar um varanlegan útflutning vopna er að ræða. Tímabundinn útflutningur vopna, t.d. til iðkunar skotfimi og til notkunar við veiðar erlendis, er áfram háður leyfi lögreglustjóra án þess að samráð við utanríkisráðuneytið þurfi að koma til.


Um 3. gr.


    „Herbúnaður sem er ekki ætlaður ríkisher“ er þýðing á enska orðinu „paramilitary“.
    „Hlutur með tvíþætt notagildi“ tekur m.a. til hluta sem nota má þannig að þeir springi ekki og þannig að þeir nýtist við framleiðslu kjarnavopna eða annars kjarnasprengibúnaðar.
    „Útflutningur“ á jafnframt við um munnlegan flutning tækni í gegnum síma, ef tæknina er að finna í skjali þar sem viðeigandi hluti þess er lesinn í síma eða honum lýst í síma á þann hátt að útkoman sé sú sama. Ekki er stefnt að því að leyfisbinda tímabundinn útflutning heldur aðeins varanlegan. Um þetta yrði nánar kveðið á í reglugerð.

Um 4. gr.


    Samkvæmt þessu ákvæði verða birtar skrár yfir leyfisskylda vöru. Þær geta þó aldrei orðið tæmandi. Samkvæmt alþjóðareglum verður að gera ráð fyrir heildarákvæði (svonefndu „catch-all“ ákvæði) til þess að tryggja að reglurnar nái til allra þeirra hluta sem til er ætlast.
Ákvæði þetta útilokar ekki að ráðherra veiti þeim fyrirtækjum sem uppfylla sett skilyrði, t.d. um innra eftirlit, almennt útflutningsleyfi, þ.e. ekki þurfi að sækja um leyfi fyrir hverri sendingu.
    Við útfærslu þessa ákvæðis er gert ráð fyrir að mestallur útflutningur til helstu viðskiptalanda og samstarfsríkja, þ.m.t. aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins og Evrópska efnahagssvæðisins, verði undanþeginn útflutningsleyfum.
    Í fylgiskjölum I–III eru kaflafyrirsagnir skráa yfir hergögn og hluti með tvíþætt notagildi og skrá yfir búnað sem kynni að verða notaður til bælingar innan viðkomandi landa. 2

Um 5. gr.


    Í gildandi lögum um útflutningsleyfi er ekki fjallað um þjónustu. Með þessu ákvæði er lagt til að heimilt verði að leyfisbinda þjónustu í tengslum við útflutning eða miðlun þeirra hluta sem heyra undir frumvarpið. Slíkt er nauðsynlegt af öryggisástæðum og er þáttur í baráttu ríkja gegn útbreiðslu vígbúnaðar, mannréttindabrotum og alþjóðlegum afbrota- og hryðjuverkasamtökum. Einnig þarf að vera hægt að takmarka yfirfærslu tækniþekkingar í hernaðarlegum tilgangi með ýmiss konar þjónustusamningum. Þessi skipan mála er í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar sem vísað hefur verið til.
    Þess skal getið að ákvæði 5. gr. verða ekki virk fyrr en ráðherra hefur sett reglur um framkvæmd þeirra.

Um 6. gr.


    Hér er ráðherra veitt heimild til að binda útflutningsleyfi nauðsynlegum skilyrðum og er þetta ákvæði fyrst og fremst sett í öryggisskyni til að tryggja að útflutningur fari fram í samræmi við lög og alþjóðlegar skuldbindingar.

Um 7. gr.


    Þetta ákvæði heimilar að settar séu reglur um varðveislu gagna og örugga vörslu á hlutum, tækni og þjónustu sem undir frumvarpið heyrir. Hið fyrra er til þess að tryggja raunhæft eftirlit og gera skýrslugjöf kleifa samkvæmt alþjóðlegum skuldbindingum. Hið síðara er af öryggisástæðum, til þess að hindra aðgang óviðkomandi aðila, fyrst og fremst hryðjuverkamanna. Þegar eru í lögum vissar skyldur á þessu sviði, en engin heildarákvæði ná yfir allar þær vörur og þjónustu sem frumvarpið tekur til. Heimildin er því til frekari uppfyllingar á gildandi reglum og yrði henni aðeins beitt að svo miklu leyti sem nauðsyn krefur og þá í samráði við önnur viðkomandi stjórnvöld til þess að forðast tvítekningu.

Um 8. gr.


    Margir aðilar koma að útflutningi, t.d. framleiðendur, umboðsmenn og farmflytjendur. Af öryggisástæðum kann að vera nauðsynlegt að fá upplýsingar um samninga sem útflutningi tengjast, þ.m.t. um aðila að þeim og efnisákvæði þeirra. Í ljósi þessa þykir nauðsynlegt að mæla fyrir um heimildir ráðherra til að krefja útflytjendur og þjónustuaðila þeirra upplýsinga um samninga sem tengjast leyfisskyldum útflutningi, svo og annað sem skiptir máli við framkvæmd laganna. Einnig er talið nauðsynlegt að mæla fyrir um að upplýsingum samkvæmt þessu ákvæði verði miðlað til ríkislögreglustjóra, eftir því sem við á. Mikilvægt er að tryggja aðgang ríkislögreglustjóra að upplýsingum og aðkomu hans að eftirliti er varðar innri öryggismál ríkisins og alþjóðlegar skuldbindingar á þessu sviði.
    Til þess að unnt sé að framfylgja virku útflutningseftirliti verður að vera hægt að fylgja því eftir með tryggilegum hætti. Því er lögð til heimild til þess að leggja dagsektir á þá aðila sem standa að útflutningi á leyfisskyldum hlutum eða þjónustu samkvæmt lögunum og ekki sinna upplýsingaskyldu sinni. Brot á þessu ákvæði varða stjórnsýsluviðurlögum, en ekki refsingum, þ.e. sektum eða fangelsi.

Um 9. gr.


    Til þess að tryggja betur eftirlit með ákvæðum laganna er lagt til að heimilt verði að kveða á um tilkynningarskyldu um innflutning á hlutum sem undir þau heyra. Að svo miklu leyti sem önnur lög kveða á um slíkt, þá yrði upplýsingunum safnað frá stjórnvöldum, til þess að forðast tvítekningu. Alþjóðlegar skuldbindingar kveða á um tilkynningarskyldu, svo og að gerðar séu ráðstafanir til að tryggja að óviðkomandi aðilar hafi ekki aðgang að hlutum sem má nota í hernaðarlegum tilgangi.

Um 10. gr.


    Með þessu ákvæði er áréttað að eftirlitsaðilar verði að gæta fyllstu þagmælsku um atriði sem þeir komast að í starfi og leynt eiga að fara, sérstaklega ef um viðskiptaleyndarmál er að ræða. Með viðskiptaleynd er átt við leynd yfir upplýsingum sem, væru þær látnar af hendi, mundu grafa undan viðskiptahagsmunum einstaklings eða lögaðila, þ.m.t. hugverkaréttur. Um viðurlög við brotum á þagnarskyldu gilda ákvæði 136. gr. almennra hegningarlaga.

Um 11. gr.


    Útflytjandi getur aldrei borið fyrir sig t.d. samning sem hann hefur þegar gert þegar sótt er um útflutningsleyfi. Vanefndir leiða ekki til bótaskyldu.

Um 12. gr.


    Nauðsynlegt getur verið að banna tiltekinn útflutning eða útflutning ákveðinna landa eða landsvæða á grundvelli þjóðréttarlegra skuldbindinga. Hins vegar getur verið nauðsynlegt að veita undanþágur frá slíkum bönnum, hvort heldur er vegna alþjóðlegra skuldbindinga eða af öðrum ástæðum. Ákvæði stjórnsýslulaga gilda um framkvæmdina en þau tryggja jafna málsmeðferð gagnvart öllum leyfisumsækjendum.

Um 13. gr.


    Lagt er til að refsiramminn verði hækkaður frá fjórum árum upp í sex ár fyrir stórfelld brot, enda geta brot á lögunum haft ríkar afleiðingar fyrir öryggishagsmuni landsins og annarra þjóða.

Um 14. gr.


    Ráðherra er hér heimilað að setja nánari reglur um framkvæmd laganna, fyrst og fremst til að innleiða alþjóðlegar skuldbindingar á sviði þeirra.
    Ráðherra er einnig heimilað að fela varnarmálastofnun vissa framkvæmd laganna, verði hún stofnsett. Ákvarðanir hennar verða kæranlegar til utanríkisráðuneytisins skv. 26. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.
    Gert er ráð fyrir að haldnar séu skrár yfir leyfisskyldan útflutning skv. 1. mgr. 4. gr. til þess að auðvelda bæði útflytjendum og stjórnvöldum framkvæmd laganna. Í framkvæmd er líklegast að skrárnar verði samhljóða þeim skrám sem Evrópusambandsríkin nota, enda heppilegast bæði fyrir útflytjendur og stjórnvöld að sömu reglur gildi vegna reglna um frjálsan flutning vöru innan Evrópska efnahagssvæðisins. Í fylgiskjölum I–III eru tilgreindar kaflafyrirsagnir þeirra eða efni.
    Að því er varðar gerðir Evrópusambandsins varðandi útflutningseftirlit, þá eru þær ekki hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið þar sem þær fjalla um öryggismál. Mörg rök hníga hins vegar að því, eins og rakið er að framan, að samræma beri reglur á þessu sviði milli Íslands og Evrópusambandslanda.
    Samkvæmt lögum um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, fer birting laga og stjórnvaldsfyrirmæla fram í Stjórnartíðindum eða í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins. Heimilt að innleiða reglur á erlendri tungu að vissum skilyrðum uppfylltum. Nýlegt dæmi um það eru lög nr. 170/2006, um breyting á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, en þau lög heimiluðu birtingu EES-gerða í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
    Lagt er til að utanríkisráðherra verði heimilt að fella niður gjald fyrir útflutningsleyfi samkvæmt lögum um aukatekjur ríkissjóðs þegar það á við. Erlendur liðsafli sem dvelst hér á landi nýtur skattfrelsis með ákveðnum skilyrðum, sbr. t.d. lög um réttarstöðu liðsafla aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins og Samstarfs í þágu friðar o.fl., nr. 72/2007. Hins vegar geta komið upp önnur tilvik þar sem sambærileg undanþága er nauðsynleg og eðlileg, svo sem þegar hergögn eða aðrir hlutir, sem undir lög þessi heyra, eru fluttir til landsins tímabundið til prófana, sýningar eða í öðrum tilgangi. Getur þá verið nauðsynlegt að undanskilja endurútflutninginn frá gjaldtöku fyrir útflutningsleyfi.

Um 15. gr.


    Greinin þarfnast ekki skýringa.

Um ákvæði til bráðabirgða.


    Ákveðið hefur verið að tilkynna þessi lög á grundvelli EES-samningsins í samræmi við ákvæði tilskipunar 98/34/EB sem setur reglur um tilhögun upplýsingaskipta vegna tæknilegra reglna, sbr. reglugerð um tilkynningar á tæknilegum reglum um vörur og fjarþjónustu nr. 733/2000.



Fylgiskjal I.

Skrá I: Hergögn. – Kaflafyrirsagnir.


     1.      Vopn með óriffluðu hlaupi og hlaupvídd sem er minni en 20 mm, önnur vopn og sjálfvirk vopn með 12,7 mm hlaupvídd (0,5 tommu hlaupvídd) eða minni og fylgihlutir og sérhannaðir íhlutir til þeirra.
     2.      Vopn með óriffluðu hlaupi og hlaupvídd sem er meiri en 20 mm, önnur vopn og vopnabúnaður með meiri en 12,7 mm (0,5 tommu hlaupvídd), vörpur og fylgihlutir og sérhannaðir íhlutir til þeirra.
     3.      Skotfæri og kveikistillingarbúnaður og sérhannaðir íhlutir til þeirra.
     4.      Sprengjur, tundurskeyti, eldflaugar, flugskeyti, annar sprengibúnaður og sprengihleðslur og tengdur búnaður og fylgihlutir, sérstaklega hannað til hernaðarnota og sérhannaðir íhlutir til þeirra.
     5.      Skotstýribúnaður og tengdur vöktunar- og viðvörunarbúnaður og tengd kerfi, prófunar-, stilli- og gagnárásarbúnaður, sérstaklega hannaður til hernaðarnota og sérhannaðir íhlutir og fylgihlutir.
     6.      Landfarartæki og íhlutir.
     7.      Efnafræðileg eða líffræðileg eiturefni, „efni til að bæla niður óeirðir“, geislavirk efni, tengdur búnaður, íhlutir og smíðaefni.
     8.      „Orkurík efni (energetic materials)“ og skyld efni.
     9.      Herskip, sérstakur búnaður fyrir sjóher og fylgihlutir og íhlutir, sérhannaðir til nota í hernaði.
     10.      „Loftfar“, „loftför sem eru léttari en andrúmsloft (lighter than air vehicles)“, ómönnuð loftför, flughreyflar og búnaður í loftför, tengdur búnaður og íhlutir sérhannaðir eða sem breytt hefur verið til nota í hernaði.
     11.      Rafeindabúnaður sem ekki er tilgreindur annars staðar í sameiginlegri skrá Evrópusambandsins yfir vörur og tækni sem geta nýst í hernaðarlegum tilgangi og sérhannaðir íhlutir í hann.
     12.      Vopnakerfi sem nota háhraðahreyfiorku og tengdur búnaður og sérhannaðir íhlutir í þau.
     13.      Brynvarinn búnaður og hlífðarbúnaður og hlífðarhlutir og íhlutir.
     14.      Sérhæfður búnaður til herþjálfunar eða til að herma eftir aðstæðum í hernaði, hermar sem eru sérhannaðir til þjálfunar í notkun allra skotvopna eða vopna sem er að finna í lið 1 eða 2 í þessari skrá og sérhannaðir íhlutir og fylgihlutir fyrir hann.
     15.      Myndatöku- og myndvinnslubúnaður og búnaður til gagnaðgerða, sérhannaður til nota í hernaði og sérhannaðir íhlutir og fylgihlutir.
     16.      Smíðaðar, steyptar og aðrar ófullunnar vörur sem hægt er að þekkja af samsetningu smíðaefnis, lögun eða virkni þegar þær eru notaðar í hlutum sem lúta útflutningseftirliti og sem eru sérhannaðar fyrir allar vörur sem eru tilgreindar í liðum 1, 4, 6, 9, 10, 12 eða 19.
     17.      Ýmiss konar búnaður, smíðaefni og gagnasöfn og sérhannaðir íhlutir þeirra.
     18.      Búnaður til framleiðslu á hlutum sem tilgreindir eru í sameiginlegri hergagnaskrá Evrópusambandsins.
     19.      Vopn sem nota stefnuvirka orku (directed energy weapons (DEW)) og tengdur búnaður eða búnaður til gagnaðgerða og prófunarlíkön og sérhannaðir íhlutir í þau.
     20.      Lághitabúnaður og ofurleiðarabúnaður og sérhannaðir íhlutir og fylgihlutir þeirra.
     21.      „Hugbúnaður“.
     22.      „Tækni“.


Fylgiskjal II.

Skrá II: Hlutir og tækni sem hafa
tvíþætt notagildi. – Kaflafyrirsagnir.


    0.     Kjarnorkuefni, aðstaða, tæki.
    1.     Efni, kemísk efni, sýklar og eiturefni.
    2.     Vinnsla efna.
    3.     Rafeindabúnaður.
    4.     Tölvubúnaður.
    5.     Fjarskipti og upplýsingaöryggi.
    6.     Nemar og leysibúnaður.
    7.     Leiðsögu- og flugbúnaður.
    8.     Siglingabúnaður.
    9.     Knúningskerfi, geimbúnaður o.fl.



Fylgiskjal III.

Skrá III: Búnaður sem kynni að vera notaður
til bælingar innan tiltekinna landa eða landsvæða.


    Skráin nær ekki yfir hluti sem hafa verið sérhannaðir eða eru sérstaklega breyttir til hernaðarnota.
     1.      Skotheldir hjálmar, óeirðahjálmar, óeirðaskildir og skotheldir skildir, ásamt sérhönnuðum íhlutum þeirra.
     2.      Sérhannaður tækjabúnaður til fingrafararannsókna.
     3.      Aflstýrð leitarljós.
     4.      Skotheldar vinnuvélar.
     5.      Veiðihnífar.
     6.      Sérhannaður búnaður til framleiðslu haglabyssna.
     7.      Búnaður til þess að handhlaða vopn.
     8.      Búnaður til að hlera samskipti.
     9.      Hálfleiðaraljósskynjarar.
     10.      Myndskerpupípur.
     11.      Sjónaukasigti fyrir vopn.
     12.      Vopn með óriffluðu hlaupi og tilheyrandi skotföng, önnur en þau sem eru sérhönnuð til hernaðarnota, ásamt sérhönnuðum íhlutum þeirra, að undanskildum:
                   merkjabyssum,
                   loftbyssum og byssum með skothylkjum sem eru gerðar til iðnaðarnota eða til þess að deyfa dýr á mannúðlegan hátt.
     13.      Hermar fyrir þjálfun í meðferð skotvopna ásamt sérhönnuðum eða sérstaklega breyttum íhlutum þeirra og aukahlutum.
     14.      Sprengjur og handsprengjur, aðrar en þær sem eru sérhannaðar til hernaðarnota, ásamt sérhönnuðum íhlutum þeirra.
     15.      Líkamshlífar, aðrar en þær sem eru framleiddar eftir hernaðarstöðlum eða tæknilýsingum, ásamt sérhönnuðum íhlutum þeirra.
     16.      Ökutæki til sérstakra nota með drifi á öllum hjólum, sem unnt er að nota utan vega og hafa verið framleidd með eða búin skotheldri vörn, ásamt straumlínulagaðri hlíf fyrir slík ökutæki.
     17.      Vatnsbyssur, ásamt sérhönnuðum eða sérstaklega breyttum íhlutum þeirra.
     18.      Ökutæki búin vatnsbyssum.
     19.      Ökutæki, sem eru sérhönnuð eða er sérstaklega breytt til þess að unnt sé að rafmagna þau í því skyni að hrekja árásarmenn brott, ásamt íhlutum þeirra sem eru sérhannaðir eða sérstaklega breytt í þeim tilgangi.
     20.      Hljóðtæknilegur búnaður, sem viðkomandi framleiðandi eða birgir lýsir sem nothæfum til þess að stöðva óeirðir, ásamt sérhönnuðum íhlutum hans.
     21.      Fótleggjafjötrar, keðjur til að hlekkja saman menn, fótjárn og rafstuðsbelti, sérhönnuð til þess að halda aftur af mönnum, að undanskildum:
                   handjárnum að hámarksheildarmáli, að keðju meðtalinni, sem er 240 mm eða minna þegar þau eru læst.
     22.      Færanlegur búnaður, sem er hannaður eða breytt til þess að stöðva óeirðir eða vera til sjálfsvarnar með því að beita efni sem gerir menn óvirka (t.d. táragasi eða piparúða), ásamt sérhönnuðum íhlutum hans.
     23.      Færanlegur búnaður, sem er hannaður eða breytt til þess að stöðva óeirðir eða vera til sjálfsvarnar með því að gefa rafstuð (t.d. rafstuðskylfur, rafstuðsskildir, deyfingarbyssur og rafstuðspílubyssur), ásamt íhlutum hans sem eru sérhannaðir eða er sérstaklega breytt í fyrrnefndum tilgangi.
     24.      Rafeindabúnaður, sem getur fundið leynd sprengiefni, ásamt sérhönnuðum íhlutum hans, að undanskildum:
                   sjónvarps- eða röntgeneftirlitsbúnaði.



Fylgiskjal IV.

Ráðgjafarnefnd
um opinberar eftirlitsreglur:


Umsögn um frumvarp til laga um eftirlit með hlutum,
tækni og þjónustu sem hefur hernaðarlega þýðingu.

    Vísað er til tölvupósts yðar, dags. 22. febrúar sl., þar sem ráðuneytið óskar eftir umsögn ráðgjafarnefndarinnar um endurbætt drög að frumvarpi til laga um eftirlit með hlutum, tækni og þjónustu sem hefur hernaðarlega þýðingu. Þetta er efnislega sama frumvarpið og nefndin hefur áður fjallað um, en gerðar hafa verið breytingar vegna athugasemda frá nefndinni.
    Ráðgjafarnefndin gerir ekki athugasemdir við frumvarpsdrögin.


Fylgiskjal V.

Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:


Umsögn um frumvarp til laga um eftirlit með hlutum, tækni og þjónustu
sem hefur hernaðarlega þýðingu.

    Meginmarkmið með frumvarpinu er að setja reglur um utanríkisviðskipti með vörur, tækni og þjónustu sem hefur hernaðarlega þýðingu fyrir öryggi landsins og til þess að viðhalda alþjóðafriði og alþjóðaöryggi. Jafnframt hefur frumvarpið í för með sér að settar verða reglur um eftirlit og gagnafærslu um slík viðskipti og viðurlög gegn ólögmætum viðskiptum með slíkar vörur, tækni og þjónustu. Í frumvarpinu verður einnig lögð til sú almenna heimild að leyfisskylda viss utanríkisviðskipti með vörur, tækni og þjónustu sem getur nýst í hernaðarlegum tilgangi eða til hryðjuverka.
    Eftirlit með útflutningi hergagna og skyldra hluta er í megindráttum þríþætt. Í fyrsta lagi er slíkt eftirlit á vegum utanríkisráðuneytisins sem veitir útflutningsleyfi samkvæmt lögum um útflutningsleyfi. Í öðru lagi annast tollyfirvöld landamæravörslu. Í þriðja lagi er það lögreglan og lögregluyfirvöld sem sjá um eftirlitið.
     Verði frumvarpið óbreytt að lögum munu útgjöld ríkissjóðs aukast óverulega og gert er ráð fyrir að það muni rúmast innan fjárlagaramma viðkomandi ráðuneytis. Matið er byggt á þeim fyrirvara að lagafrumvarp þetta muni ekki leiða til frekari aukningar á núverandi eftirlitsskyldu.
Neðanmálsgrein: 1
    1     Eitt til tvö varanleg útflutningsleyfi munu hafa verið gefin út árlega samkvæmt vopnalögum undanfarin ár.
Neðanmálsgrein: 2
    2 Þýðing úr ensku á „equipment which might be used for internal repression“.