Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 498. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 1064  —  498. mál.




Nefndarálit


um till. til þál. um staðfestingu bókunar um breytingu á samningi um takmörkun ábyrgðar á sjóréttarkröfum.

Frá utanríkismálanefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Sigríði Eysteinsdóttur frá utanríkisráðuneyti, Svanhvíti Axelsdóttur frá samgönguráðuneyti, Guðmund Sigurðsson prófessor og Friðrik Arngrímsson frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna. Umsagnir bárust um málið frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna, Samtökum fjármálafyrirtækja og Siglingastofnun.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta bókun frá 1996 um breytingu á samningi um takmörkun ábyrgðar á sjóréttarkröfum frá 1976. Bókunin og samningurinn voru gerð á vegum Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar. Ísland er ekki aðili að samningnum heldur alþjóðasamþykkt frá 1957 um takmörkun á ábyrgð eigenda skipa sem á sjó sigla. Staðfesting bókunarinnar fellir samþykktina frá 1957 úr gildi. Í bókuninni er gert ráð fyrir því að ríki geti gerst aðili að henni án þess að vera aðili að samningnum frá 1976. Ríkið verður þá bundið af ákvæðum samningsins, með áorðnum breytingum samkvæmt bókuninni, gagnvart aðildarríkjum bókunarinnar, en óbundið af ákvæðum samningsins gagnvart ríkjum sem eingöngu eru aðilar að honum. Aðild að bókuninni felur í sér verulegar réttarbætur fyrir tjónþola.
    Nefndin vekur athygli á því að á yfirstandandi þingi voru samþykkt lög nr. 159/2007, sem breyta siglingalögum, nr. 34 19. júní 1985, og taka gildi 1. janúar 2009. Lögin gera Íslandi kleift að standa við skuldbindingar samkvæmt bókuninni. Nefndin tekur einnig fram að án staðfestingar bókunarinnar væri Ísland áfram bundið af samþykktinni frá 1957 gagnvart þeim ríkjum sem eru aðilar að henni, en hún takmarkar ábyrgð útgerðarmanna á sjóréttarkröfum mun meira en gildandi siglingalög gera ráð fyrir, sér í lagi eins og þau verða þegar breytingin frá 2007 hefur tekið gildi.
    Staðfesting bókunarinnar frá 1996 felur jafnframt í sér heimild til að gera fyrirvara um ábyrgðartakmarkanir vegna tiltekinna krafna. Slíkir fyrirvarar heimila íslenska ríkinu að ákveða sjálft hvaða bótareglur skuli gilda um þær kröfur, svo sem að ábyrgð sé ótakmörkuð eða miða eigi við hærri fjárhæðir en bókunin gerir að öðrum kosti ráð fyrir. Í þessu felst ekki að verið sé að setja efnisreglur heldur er einungis verið að áskilja íslenska ríkinu rétt til að víkja frá ákvæðum bókunarinnar í ákveðnum tilvikum.
    Þá vekur nefndin athygli á því að vinna við heildarendurskoðun siglingalaga stendur yfir. Í tengslum við þá vinnu mun fara fram skoðun á því hvort nýta eigi umrædda fyrirvara og þá gerðar tillögur að efnisreglum. Nefndin tekur fram að þótt ákveðið verði við endurskoðunina að nýta ekki fyrirvarana kemur það ekki í veg fyrir að þeir verði nýttir síðar. Sé bókunin hins vegar staðfest án fyrirvara getur ekki komið til breytinga á íslenskum siglingalögum frá því sem ákveðið var í lögum nr. 159/2007. Það er því mikilvægt fyrir þá vinnu sem nú fer fram vegna endurskoðunar siglingalaga að fyrirvararnir séu gerðir og gert ráð fyrir því að það verði gert í athugasemdum við málið. Nefndin gengur út frá því að fyrirvararnir verði gerðir þegar við staðfestingu bókunarinnar.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Alþingi, 21. maí 2008.


Bjarni Benediktsson,

form., frsm.

Árni Páll Árnason.

Steingrímur J. Sigfússon.


Ragnheiður E. Árnadóttir.

Ásta R. Jóhannesdóttir.

Siv Friðleifsdóttir.


Guðfinna S. Bjarnadóttir.

Lúðvík Bergvinsson.

Kristinn H. Gunnarsson.