Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 581. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 1094  —  581. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Guðnýjar Hrundar Karlsdóttur um kostnað heilbrigðiskerfisins vegna slysa á Reykjanesbraut.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hver er áætlaður kostnaður heilbrigðiskerfisins vegna þeirra slysa sem orðið hafa á Reykjanesbraut síðastliðna þrjá mánuði?

    Frá byrjun desember 2007 til febrúarloka 2008 skráði Umferðarstofa 21 umferðaróhapp á Reykjanesbraut og komu þar við sögu 42 einstaklingar. Af þeim voru 5 skráðir með alvarleg meiðsli og 37 voru metnir með minni háttar meiðsli.
    Aldur þeirra sem lentu í slysunum var 7–85 ára en meðalaldurinn var um 27,5 ár.
    Kostnaður vegna þeirra sem urðu fyrir minni háttar áverkum felst fyrst og fremst í flutningi á slysa- eða bráðamóttöku sjúkrahúsanna til rannsóknar og meðferðar.
    Kostnað vegna þeirra sem urðu fyrir verulegum áverkum er ekki hægt að meta að svo komnu máli þar sem ekki liggur fyrir, að svo skömmum tíma liðnum, hver hinn endanlegi kostnaður verður. Rétt er að benda á að þar sem um mjög fáa er að ræða gæti verið hægt að tengja kostnað við ákveðna einstaklinga og því ekki rétt að birta slíkt á þessum vettvangi.