Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 637. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Prentað upp.

Þskj. 1096  —  637. mál.
Skriflegt svar .




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um lokun póstafgreiðslna og fækkun póstburðardaga.

Frá Jóni Bjarnasyni.



     1.      Hefur orðið stefnubreyting af hálfu stjórnvalda hvað varðar póstdreifingu og starfrækslu póstafgreiðslna, einkum í dreifbýli?
     2.      Hvernig hyggst ráðherra bregðast við kæru Vesturbyggðar og Reykhólahrepps vegna áforma Íslandspósts um fækkun vikulegra póstburðardaga?
     3.      Er ráðherra kunnugt um að Íslandspóstur áformi að fækka póstburðardögum víðar og ef svo er, þá hvar?
     4.      Hve mörgum póstafgreiðslum hefur verið lokað sl. tvö ár, hvar voru þær og hvaða póstafgreiðslum áformar Íslandspóstur að loka á næstu mánuðum og missirum?
     5.      Hvernig hyggst ráðherra bregðast við áformum um lokun póstafgreiðslna, t.d. í Varmahlíð og víðar?


Skriflegt svar óskast.