135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 1116 — 288. mál.
Frumvarp til laga
um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla.
(Eftir 2. umr., 26. maí.)
I. KAFLI
Gildissvið.
1. gr.
Gildissvið.
2. gr.
Markmið.
II. KAFLI
Menntun kennara, starfsheiti, leyfisbréf.
3. gr.
Starfsheitið leikskólakennari.
Leyfi til þess að nota starfsheitið leikskólakennari má aðeins veita þeim sem lokið hefur:
1. meistaraprófi frá háskóla sem hlotið hefur viðurkenningu ráðherra á grundvelli laga um háskóla, nr. 63/2006, á fræðasviði sem ráðherra viðurkennir til kennslu á leikskólastigi; eða
2. öðru námi sem jafngildir meistaraprófi skv. 1. tölul. og ráðherra viðurkennir til kennslu á leikskólastigi.
4. gr.
Starfsheitið grunnskólakennari.
Leyfi til þess að nota starfsheitið grunnskólakennari má aðeins veita þeim sem lokið hefur:
1. meistaraprófi frá háskóla sem hlotið hefur viðurkenningu ráðherra á grundvelli laga um háskóla, nr. 63/2006, á fræðasviði sem ráðherra viðurkennir til kennslu á grunnskólastigi; eða
2. öðru námi sem jafngildir meistaraprófi skv. 1. tölul. og ráðherra viðurkennir til kennslu á grunnskólastigi; eða
3. meistararéttindum í iðngrein sem nýtist til kennslu á grunnskólastigi í skilgreindri námsgrein eða á skilgreindu námssviði, enda komi slík sérhæfing fram í leyfisbréfi, auk 60 eininga náms í kennslu- og uppeldisfræði; eða
4. fullgildu lokaprófi í listgrein, tæknigrein eða verkgrein sem nýtist til kennslu á grunnskólastigi í skilgreindri námsgrein eða á skilgreindu námssviði, enda komi slík sérhæfing fram í leyfisbréfi. Skal menntun a.m.k. vera 270–300 námseiningar, þar af að lágmarki 60 námseiningar í kennslu- og uppeldisfræði.
5. gr.
Starfsheitið framhaldsskólakennari.
Leyfi til þess að nota starfsheitið framhaldsskólakennari má aðeins veita þeim sem lokið hefur:
1. meistaraprófi frá háskóla sem hlotið hefur viðurkenningu ráðherra á grundvelli laga nr. 63/2006, á fræðasviði sem ráðherra viðurkennir til kennslu á framhaldsskólastigi; eða
2. öðru námi sem jafngildir meistaraprófi skv. 1. tölul. og ráðherra viðurkennir til kennslu á framhaldsskólastigi; eða
3. meistararéttindum í iðngrein sem nýtist til kennslu á framhaldsskólastigi í skilgreindri námsgrein eða á skilgreindu námssviði, auk 60 eininga náms í kennslu- og uppeldisfræði; eða
4. fullgildu lokaprófi í listgrein, tæknigrein eða verkgrein sem nýtist til kennslu á framhaldsskólastigi í skilgreindri námsgrein eða á skilgreindu námssviði, enda komi slík sérhæfing fram í leyfisbréfi. Skal menntun a.m.k. vera 270–300 námseiningar, þar af að lágmarki 60 námseiningar í kennslu- og uppeldisfræði.
6. gr.
Réttindi sem aflað er í ríki innan EES eða í aðildarríki EFTA.
Samkvæmt umsókn frá ríkisborgara aðildarríkis stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu skal ráðherra staðfesta leyfi til að nota starfsheitið leikskólakennari, grunnskólakennari eða framhaldsskólakennari með sömu skilyrðum og tilgreind eru í 1. mgr., enda leggi viðkomandi fram vottorð um viðurkennd kennsluréttindi í aðildarríki samtakanna.
7. gr.
Matsnefnd.
Matsnefnd skal skipuð fimm fulltrúum, einum fulltrúa tilnefndum af samstarfsnefnd um háskólastigið, tveimur fulltrúum tilnefndum af heildarsamtökum kennara, einum fulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga og einum fulltrúa án tilnefningar og skal hann vera formaður nefndarinnar. Jafnmarga varamenn skal skipa á sama hátt.
Nánar skal kveðið á um starfshætti nefndarinnar í reglugerð.
8. gr.
Um inntak menntunar leik-, grunn- og framhaldsskólakennara.
Með námseiningum er í lögum þessum átt við ECTS-einingar eða staðlaðar námseiningar, sbr. lög nr. 63/2006, um háskóla.
III. KAFLI
Starfsréttindi og ráðningar í leikskólum.
9. gr.
Leikskólakennarar og ráðning þeirra.
Að lágmarki 2/ 3hlutar stöðugilda við kennslu, umönnun og uppeldi barna í hverjum leikskóla skulu teljast til stöðugilda leikskólakennara.
Sveitarstjórn, eða sá sem sveitarstjórn felur umboð sitt, eða aðrir rekstraraðilar, ráða leikskólakennara og skólastjórnendur við leikskóla í samræmi við lög þessi, fyrirmæli laga um leikskóla og ákvæði sveitarstjórnarlaga.
10. gr.
Ráðning skólastjóra í leikskólum.
11. gr.
Auglýsingar og ráðningar.
Ekki er skylt að auglýsa störf sem eiga að standa í tvo mánuði eða skemur eða tímabundin störf í minna en 1/ 3 hluta starfs.
Ráða skal til starfa skv. 1. og 2. mgr. með ráðningarsamningi með þriggja mánaða gagnkvæmum uppsagnarfresti sem er þó einn mánuður á fyrstu þremur mánuðum í starfi, enda sé ráðningu ætlað að standa í a.m.k. þrjá mánuði.
IV. KAFLI
Starfsréttindi og ráðningar í grunnskólum.
12. gr.
Ráðning grunnskólakennara og sérfræðinga.
Sveitarstjórn, eða sá sem sveitarstjórn felur umboð sitt, eða aðrir rekstraraðilar, ráða grunnskólakennara og skólastjórnendur við grunnskóla í samræmi við ákvæði laga þessara, fyrirmæli grunnskólalaga og ákvæði sveitarstjórnarlaga.
Skólastjórar ráða grunnskólakennara til tímabundinnar forfallakennslu eða afleysinga og aðra sérfræðinga, sbr. 4. mgr.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er heimilt að ráða sérfræðing tímabundið að hámarki eitt skólaár í senn til að kenna sérgrein sína, enda sé aðeins um að ræða kennslu sem nemur 240 mínútum eða minna á viku.
13. gr.
Ráðning skólastjóra í grunnskólum.
14. gr.
Auglýsingar og ráðningar.
15. gr.
Sérstök tilvik.
Heimilt er að ráða án auglýsingar grunnskólakennara til kennslustarfa sem eiga að standa tvo mánuði eða skemur sem og til tímabundinna starfa í minna en 1/ 3hluta starfs.
Ráða skal til starfa skv. 1. og 2. mgr. með ráðningarsamningi með þriggja mánaða gagnkvæmum uppsagnarfresti sem er þó einn mánuður fyrstu þrjá mánuði í starfi, enda sé ráðningu ætlað að standa í a.m.k. þrjá mánuði.
V. KAFLI
Starfsréttindi og ráðningar í framhaldsskólum.
16. gr.
Starfsfólk framhaldsskóla og ráðning þess.
Skólameistari framhaldsskóla ræður starfsfólk framhaldsskóla í samræmi við ákvæði laga um framhaldsskóla og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er skólameistara heimilt að ráða sérfræðing tímabundið að hámarki eitt skólaár í senn til að kenna sérgrein sína, enda sé aðeins um að ræða kennslu sem nemur 240 mínútum eða minna á viku.
17. gr.
Skólastjórnendur framhaldsskóla.
18. gr.
Auglýsingar og ráðningar.
19. gr.
Sérstök tilvik.
Þá er heimilt að ráða framhaldsskólakennara til kennslustarfa sem eiga að standa tvo mánuði eða skemur sem og til tímabundinna starfa í minna en 1/ 4hluta starfs.
Ráða skal til starfa skv. 1. og 2. mgr. með ráðningarsamningi með þriggja mánaða gagnkvæmum uppsagnarfresti sem er þó einn mánuður fyrstu þrjá mánuði í starfi, enda sé ráðningu ætlað að standa í a.m.k. þrjá mánuði.
VI. KAFLI
Undanþágur.
20. gr.
Undanþáguheimild fyrir leikskóla.
21. gr.
Undanþágunefnd grunnskóla.
Óheimilt er að ráða aðra en þá sem uppfylla ákvæði laga þessara til kennslu við grunnskóla á vegum opinberra aðila eða hliðstæða skóla, sbr. lög um grunnskóla.
Nú sækir enginn grunnskólakennari um auglýst kennslustarf þrátt fyrir endurtekna auglýsingu og getur skólastjóri þá sótt um heimild til undanþágunefndar grunnskóla um að lausráða tiltekinn starfsmann til kennslustarfa til bráðabirgða, þó aldrei lengur en til eins árs í senn. Undanþágunefnd er heimilt að víkja frá kröfu um endurtekna auglýsingu þegar sótt er um undanþágu til að endurráða einstakling sem er í námi til kennsluréttinda. Slíkri umsókn skal fylgja staðfesting á að viðkomandi sé í námi og áætlun um námsframvindu. Skólastjóra er ekki skylt að leita til undanþágunefndar sé um að ræða kennslu sem nemur 240 mínútum á viku eða minna, sbr. 4. mgr. 12. gr.
Málsaðili getur skotið ákvörðun undanþágunefndar til ráðherra. Málskot frestar ekki réttaráhrifum ákvörðunar undanþágunefndar.
Ef hvorki skólastjóri né að minnsta kosti tveir skólanefndarmenn mæla með ráðningu grunnskólakennara í kennslustarf getur skólastjóri þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. leitað til undanþágunefndar og óskað eftir heimild nefndarinnar til að lausráða annan einstakling.
Nú fæst heimild frá undanþágunefnd til að lausráða einstakling skv. 3. eða 5. mgr. og skal hann þá ráðinn með sérstökum ráðningarsamningi til ákveðins tíma með þriggja mánaða gagnkvæmum uppsagnarfresti sem er þó einn mánuður á fyrstu þremur mánuðum í starfi. Slíkur starfsmaður má ekki bera starfsheitið grunnskólakennari og ekki má endurráða hann án undangenginnar auglýsingar.
Starfsreglur undanþágunefndar skal ákveða nánar í reglugerð.
22. gr.
Undanþágunefnd framhaldsskóla.
Óheimilt er að ráða aðra en þá sem uppfylla ákvæði laga þessara til kennslu við framhaldsskóla, sbr. lög um framhaldsskóla.
Nú sækir enginn sem fullnægir ákvæðum þessara laga um auglýst kennslustarf þrátt fyrir endurtekna auglýsingu og getur skólameistari þá sótt um heimild til undanþágunefndar framhaldsskóla um að lausráða tiltekinn starfsmann til kennslustarfa til bráðabirgða, þó aldrei lengur en til eins árs. Undanþágunefnd er heimilt að víkja frá kröfu um endurtekna auglýsingu þegar sótt er um undanþágu til að endurráða einstakling sem er í námi til kennsluréttinda. Slíkri umsókn skal fylgja staðfesting á að viðkomandi sé í námi og áætlun um námsframvindu. Skólameistara er ekki skylt að leita til undanþágunefndar sé um að ræða kennslu sem nemur 240 mínútum á viku eða minna, sbr. 3. mgr. 16. gr.
Málsaðili getur skotið ákvörðun undanþágunefndar til ráðherra. Málskot frestar ekki réttaráhrifum ákvörðunar undanþágunefndar.
Ef hvorki skólameistari né að minnsta kosti tveir skólanefndarmenn mæla með ráðningu framhaldsskólakennara í kennslustarf getur skólameistari þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. leitað til undanþágunefndar og óskað eftir heimild nefndarinnar til að lausráða annan einstakling sem hefur sérmenntun í auglýstri kennslugrein.
Nú fæst heimild frá undanþágunefnd til að lausráða einstakling skv. 3. eða 5. mgr. og skal hann þá ráðinn með sérstökum ráðningarsamningi með þriggja mánaða gagnkvæmum uppsagnarfresti sem er þó einn mánuður á fyrstu þremur mánuðum í starfi. Slíkur starfsmaður má ekki bera starfsheitið framhaldsskólakennari og ekki má endurráða hann án undangenginnar auglýsingar.
Starfsreglur undanþágunefndar skal ákveða nánar í reglugerð.
VII. KAFLI
Almenn ákvæði.
23. gr.
Mat á umsóknum og forgangur til starfs.
Grunnskólakennari sem hefur sérhæft sig til kennslu í tiltekinni námsgrein, á tilteknu námssviði eða aldursstigi, skal við ráðningu hafa forgang til kennslu miðað við það.
Einstaklingar sem hafa lokið bakkalárprófi á sviði uppeldis- og kennslufræða, og aðrir þeir sem hafa sambærilega menntun sem nýtist til starfa í leikskólum, skulu njóta forgangs umfram aðra við ráðningu í störf í leikskólum.
Einstaklingar sem hafa lokið bakkalárprófi á sviði uppeldis- og kennslufræða, og aðrir þeir sem hafa sambærilega menntun sem nýtist til starfa í grunnskólum, skulu njóta forgangs umfram aðra við ráðningu í störf í grunnskólum.
Einstaklingar með starfsréttindapróf eða háskólapróf og a.m.k. 120 námseiningar í auglýstri kennslugrein skulu njóta forgangs umfram aðra við ráðningu í störf í framhaldsskólum.
Þrátt fyrir ákvæði 3.–5. mgr. skulu þeir einstaklingar ekki njóta forgangs umfram þá sem hlotið hafa starfsheitið leikskólakennari, grunnskólakennari eða framhaldsskólakennari skv. 3.–5. gr.
24. gr.
Um gildissvið leyfisbréfa og útgáfu þeirra.
1. Leyfisbréf grunnskólakennara sem sérhæft hefur sig í kennslu yngri barna veitir honum heimild til kennslu elstu aldursflokka í leikskólum.
2. Leyfisbréf leikskólakennara sem sérhæft hefur sig í kennslu eldri barna veitir honum heimild til kennslu í 1.–3. bekkjum grunnskóla.
3. Leyfisbréf framhaldsskólakennara veitir honum heimild til kennslu á sérsviði sínu í 8.–10. bekkjum grunnskóla.
4. Leyfisbréf grunnskólakennara sem lokið hefur a.m.k. 120 námseininga sérmenntun í kennslugrein veitir honum heimild til kennslu á sérsviði sínu í byrjunaráföngum framhaldsskóla.
Leikskólakennari sem lokið hefur a.m.k. 60 námseininga viðbótarmenntun í stjórnun eða sérkennslu á rétt á leyfisbréfi sem grunnskólakennari og starfa sem slíkur.
Grunnskólakennari sem lokið hefur a.m.k. 60 námseininga viðbótarmenntun í stjórnun eða sérkennslu á rétt á leyfisbréfi sem leikskólakennari og starfa sem slíkur.
Ráðherra er heimilt að fela háskólum, sem hlotið hafa viðurkenningu á grundvelli laga um háskóla og sinna menntun kennara eftir samningi við ráðuneytið, að annast útgáfu leyfisbréfa samkvæmt lögum þessum. Skal þá ráðherra veita hlutaðeigandi stofnunum sérstök fyrirmæli um hvernig útgáfu slíkra leyfisbréfa skuli nánar háttað.
Ráðherra er heimilt að setja nánari fyrirmæli um útgáfu leyfisbréfa í reglugerð.
25. gr.
Eldri réttindi.
Grunn- og framhaldsskólakennarar með leyfisbréf við gildistöku laga þessara halda fullum réttindum til jafns við þá sem öðlast starfsréttindi grunn- og framhaldsskólakennara samkvæmt lögum þessum.
26. gr.
Gildistaka.
Ákvæði 3., 4. og 5. gr. taka til þeirra sem hefja nám eftir gildistöku laga þessara.
Fram til 1. júlí 2011 skulu þeir sem fá leyfisbréf til kennslu í leik-, grunn- og framhaldsskólum hafa lokið bakkalárprófi og tilskildu námi í uppeldis- og kennslufræðum.
27. gr.
Breytingar á öðrum lögum.
a. Í stað 1. málsl. 1. mgr. koma tveir nýir málsliðir sem orðast svo: Auglýsa skal öll laus kennslu- og stjórnunarstörf í grunnskóla. Ekki er skylt að auglýsa þau störf sem getið er um í 15. gr. laga um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla.
b. 2. mgr. fellur brott.
Ákvæði til bráðabirgða.
Lög um réttindi og skyldur kennara og skólastjórnenda grunnskóla skulu endurskoðuð innan tveggja ára frá gildistöku laga þessara.
Starfsmenn sem ráðnir hafa verið án kennaramenntunar, sbr. 1. mgr. 12. gr. laga nr. 78/ 1994, um leikskóla, skulu þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 9. gr. halda starfi sínu. Um réttarstöðu þeirra að öðru leyti fer samkvæmt fyrirmælum í ráðningarsamningum og/eða kjarasamningum, sbr. 1. mgr. 57. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 45/1998.