Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 530. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 1132  —  530. mál.




Breytingartillögur



við frv. til l. um fiskeldi.

Frá sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd.



     1.      11. tölul. 3. gr. orðist svo: Hafbeit: Slepping gönguseiða til sjógöngu og föngun þeirra sem fullvaxta fiska á sleppistað þegar þeir ganga úr sjó í ferskt vatn, annaðhvort til slátrunar eða flutnings í annað veiðivatn til endurveiða.
     2.      Við síðari málslið 2. mgr. 4. gr. bætist: og leitað álits Sambands íslenskra sveitarfélaga, Landssambands fiskeldisstöðva og Landssambands veiðifélaga.
     3.      Í stað orðanna „og Hafrannsóknastofnunarinnar“ í 5. gr., 1. mgr. 6. gr. og 2. mgr. 7. gr. komi: Hafrannsóknastofnunarinnar og viðkomandi sveitarstjórnar.
     4.      Við 20. gr.
                  a.      Við bætist nýr málsliður sem verði 4. málsl., svohljóðandi: Einnig getur Matvælastofnun með sömu skilyrðum heimilað innflutning á öðrum eldisbúnaði enda þyki sannað að ekki berist smitefni með honum sem valda dýrasjúkdómum.
                  b.      Í stað orðanna „vísinda- og tæknibúnaði“ í 4. málsl., sem verður 5. málsl., komi: vísindatækjum, tæknibúnaði og eldisbúnaði.
     5.      Við ákvæði til bráðabirgða.
                  a.      Í stað orðsins „ellefu“ í 3. málsl. komi: tólf.
                  b.      Í stað orðanna „og Hafrannsóknastofnuninni“ í 3. málsl. komi: Hafrannsóknastofnuninni og Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
                  c.      Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Sker atkvæði formanns úr ef ágreiningur verður í nefndinni.