Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 534. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 1143  —  534. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um framkvæmdaáætlun í barnaverndarmálum fram til næstu sveitarstjórnarkosninga árið 2010.

Frá félags- og tryggingamálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Láru Björnsdóttur frá félags- og tryggingamálaráðuneytinu, Evu Dögg Þorsteinsdóttur frá Landssamtökum vistforeldra í sveitum, Eyrúnu B. Jónsdóttur frá Neyðarmóttöku vegna nauðgana og miðstöð áfallahjálpar á Landspítala og Ólaf Proppé frá Kennaraháskóla Íslands. Þá bárust nefndinni umsagnir frá Landssamtökum vistforeldra í sveitum, Biskupsstofu, Fangelsismálastofnun ríkisins, Heilsugæslustöðinni á Grundarfirði, Rannsóknarsetri Háskóla Íslands í barna- og fjölskylduvernd, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Viðskiptaráði Íslands, Neyðarmóttöku vegna nauðgana og miðstöð áfallahjálpar á Landspítala, félagsmálanefnd sveitarfélagsins Árborgar, Heilbrigðisstofnun Suðurlands, fjölskyldunefnd Mosfellsbæjar, Kennaraháskóla Íslands, barnaverndarnefnd Reykjavíkurborgar, umboðsmanni barna, ríkislögreglustjóra, Brunamálastofnun og Bláskógabyggð.
    Tillagan felur í sér samþykkt framkvæmdaáætlunar til tveggja ára í barnaverndarmálum til að tryggja að börn sem búa við óviðunandi aðstæður eða stofna heilsu sinni og þroska í hættu fái nauðsynlega og árangursríka aðstoð. Er þetta í fyrsta sinn sem lögð er fram heildstæð framkvæmdaáætlun í þessum málaflokki og er hún gerð með vísan í 5. gr. barnaverndarlaga, nr. 80/2002, sem kveður á um að félagsmálaráðherra skuli leggja fyrir Alþingi framkvæmdaáætlun til fjögurra ára í senn að loknum sveitarstjórnarkosningum. Helstu atriði sem lögð er áhersla á með tillögunni eru aðgerðir til eflingar barnavernd á vegum félags- og tryggingamálaráðuneytisins og Barnaverndarstofu sem og að efla þjónustu og verklag. Til að ná þessu fram felur tillagan í sér ýmis verkefni varðandi rannsóknir, þróun, ný meðferðarúrræði, námskeið, árangursmat, erlent samstarf, skjalastjórnun og tölfræði. Nefndin vekur athygli á að framkvæmdaáætlunin er fyrst og fremst um aðgerðir ríkisvaldsins, þ.e. félags- og tryggingamálaráðuneytis og annara fagráðuneyta og Barnaverndarstofu, til að bæta framkvæmd og eftirlit með barnavernd.
    Nefndin telur jákvætt að sett sé fram framkvæmdaáætlun í svo þýðingarmiklum málaflokki en telur þó nauðsynlegt að breyta formi og framsetningu framkvæmdaáætlana af þessu tagi. Fullt tilefni er til að setja markmið og afmarka þá flokka verkefna sem vinna skal að en álitamál hvort rétt sé að nefndin taki afstöðu til einstakra verkefna og aðferða sem nefnd eru í áætluninni. Nákvæm útfærsla einstakra verkefna eða val á aðferðum er ekki á færi nefndarinnar að samþykkja enda býr hún ekki yfir sérfræðiþekkingu hvað varðar sérstakar uppeldisaðferðir, fósturúrræði, foreldrafærninámskeið o.s.frv. Almennt bendir nefndin á nauðsyn þess að útiloka ekki önnur meðferðarúrræði en þau sem nefnd eru sérstaklega í áætluninni, þar sem henni hafa verið kynnt árangursrík dæmi annarra úrræða. Jafnframt er mikilvægt að nýjum aðferðum fylgi rannsóknir á árangri slíkra úrræða. Nefndin tekur undir ábendingar sem fram komu í nefndinni um að Barnaverndarstofa gæti þess að vera ekki bæði framkvæmdar- og eftirlitsaðili að verkefnum sem hún hefur á hendi.
    Nefndinni barst fjöldi umsagna þar sem kom fram ánægja með áætlunina ásamt því að gerðar voru nokkrar athugasemdir við einstaka framkvæmdarhluta hennar. Þá var í nokkrum þeirra bent á knappan tímaramma einstakra verkefna. Nefndin vísar til þess sem segir að framan að hún hafi ekki sérfræðiþekkingu til að ákvarða um einstaka verkefnaþætti.
    Nefndin fagnar því að efla skuli þjónustu Barnaverndarstofu þannig að hún verði markvissari og skilvirkari og að bæta eigi ráðgjöf, fræðslu, eftirlit og rekstur heimila og stofnana á vegum stofnunarinnar. Þá tekur nefndin undir mikilvægi þess að jafnræðis sé gætt gagnvart þeim sem nýta þjónustu ríkisins og að gætt skuli jafnræðis í þjónustu milli sveitarfélaga.
    Nefndin telur áætlaða innleiðingu íslenskra gæðastaðla um vistun barna utan heimilis mikilvægt verkefni enda hafa dæmi sýnt að faglegar kröfur til vistunar- og meðferðarúrræða þurfa að vera nákvæmar og skýrar. Nefndin leggur áherslu á að eftirlit með þessum úrræðum sé með skýrum og gagnsæjum hætti. Hvað kynningu staðlanna varðar áréttar nefndin að ekki er nægilegt að kynna staðlana fyrir starfsfólki meðferðarheimila og barnaverndarnefnda. Einnig þurfi að kynna þá fyrir vistforeldrum þar sem þeir gegna mikilvægu hlutverki við vistun barna.
    Nefndir tekur undir ábendingar sem fram komu um að finna þurfi meðferðarúrræði fyrir gerendur í kynferðisafbrotamálum. Skoða þarf einnig með hvaða hætti hagsmuna barna fíkla sé best gætt.
    Þá telur nefndin að samræma þurfi vinnubrögð og starfshætti á öllum sviðum barnaverndar og tryggja eftirfylgni þegar fjölskyldur flytja sig milli sveitarfélaga. Voru nefndinni kynnt dæmi þar sem börn urðu illa úti þegar byrjað var frá grunni á meðferð þeirra við flutning þar sem vitneskja um þau úrræði sem þegar hafði verið beitt fluttist ekki með. Einnig virðist sem engin vitneskja flytjist milli sveitarfélaga ef fjölskylda flytur eftir að barnaverndarnefnd tekur mál hennar til skoðunar, t.d. vegna grunar um heimilisofbeldi. Leggur nefndin áherslu á að gæta þurfi verndunar barna í slíkum tilvikum og setja verklagsreglur sem leysi þennan vanda að teknu tilliti til persónuverndarsjónarmiða.
    Nefndin áréttar að samþykkt tillögunnar fylgir ekki fjárveiting. Taka þarf sjálfstæða ákvörðun um fjárveitingar við fjárlagagerð en viljayfirlýsing áætlunarinnar er skýr.
    Með vísan til þess sem fyrr segir leggur nefndin ekki til breytingar varðandi efni áætlunarinnar. Þó leggur nefndin til að uppsetningu verði breytt og að tekin verði út ensk heiti sem hún telur óeðlilegt að hafa í sjálfri ályktuninni.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt með framangreindum breytingum sem gerð er tillaga um í sérstöku þingskjali.
    Ásta R. Jóhannesdóttir og Árni Johnsen voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
    Kristinn H. Gunnarsson skrifar undir álit þetta með fyrirvara.

Alþingi, 26. maí 2008.



Guðbjartur Hannesson,


form., frsm.


Ármann Kr. Ólafsson.


Jón Gunnarsson.



Pétur H. Blöndal.


Birkir J. Jónsson


Kristinn H. Gunnarsson,


með fyrirvara.



Ögmundur Jónasson.