Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 595. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 1149 — 595. mál.
samgönguráðherra við fyrirspurn Álfheiðar Ingadóttur um fellihýsi, tjaldvagna og húsvagna í umferð.
1. Hversu mörg fellihýsi, tjaldvagnar og húsvagnar eru í umferð hér á landi?
2. Hver hefur fjölgunin verið undanfarin fimm ár?
3. Hversu mörg fellihýsi, tjaldvagnar eða húsvagnar hafa tengst umferðarslysum, þ.m.t. banaslysum, undanfarin fimm ár?
4. Telur ráðherra þörf á að herða eftirlit með þessum farartækjum og gera þau skoðunarskyld?
Eins og fram kemur í tölunum hér á undan hefur orðið mikil fjölgun hús- og tjaldvagna og fellihýsa í umferð hér á landi á undanförnum árum, svo og húsbifreiða. Jafnframt hefur stærð hjólhýsa og tjaldvagna í mörgum tilfellum aukist til muna. Enn fremur hefur orðið fjölgun á eftirvögnum minni en 750 kg að leyfðri heildarþyngd, einkum kerrum sem eru dregnar af fólksbifreiðum og notaðar til flutninga á farangri, byggingarefni og drasli sem flutt er á sorphauga.
Eins og staðan er núna eru slíkar kerrur undir 750 kg hvorki skráningar- né skoðunarskyldar. Hins vegar eru tengitæki, svo sem hjólhýsi, tjaldvagnar og fellihýsi, skráningarskyld en ekki skoðunarskyld.
Rannsóknarnefnd umferðarslysa hefur hvatt til þess að gera alla eftirvagna og tengitæki skráningar- og skoðunarskyld. Þar sem hjólhýsi, tjaldvagnar og fellihýsi eru ekki skoðunarskyld geta slík tæki verið í umferð án þess að vitað sé um ástand öryggisbúnaðar þeirra, svo sem tengi- og hjólabúnaðar og hemla. Brýnt er að koma þessum málum í viðunandi horf, en eins og tölur sýna hafa alvarleg umferðarslys og banaslys tengst eftirvögnum og tengitækjum. Í ráðuneytinu er nú unnið að mótun reglna um skráningu og skoðun eftirvagna og tengitækja bifreiða og verður í þeirri vinnu hugað að því að gera þau sem eru yfir 750 kg að þyngd skoðunarskyld.
Í þessari vinnu verður leitast við að koma á skilvirku kerfi á skoðun ökutækja og þá jafnframt eftirvagna og tengitækja til að tryggja öryggi vegfarenda í umferð, og að eftirliti með því að ökutæki og eftirvagnar og tengitæki séu færð til skoðunar verði þannig háttað að enginn geti skorast undan þeirri skyldu að mæta til skoðunar á réttum tíma.
Reglur um skoðun ökutækja eru enn fremur í athugun með tilliti til þess hversu oft skuli færa ökutæki til skoðunar. Hér á landi er gengið lengra hvað þetta varðar en í nágrannalöndunum. Í þessu sambandi hefur verið rætt um að skoða nýleg ökutæki sjaldnar eða fyrst eftir fjögur ár en síðan á tveggja ára fresti og leggja meiri áherslu á skoðun þeirra sem eldri eru og skoðun ýmissa atvinnuökutækja sem eru í stöðugri og mikilli notkun. Hið sama mundi þá gilda um skoðun á hjól- og fellihýsum, tjaldvögnum og kerrum yfir 750 kg.
Til upplýsingar þá voru 10.900 traktorar á landinu í árslok 2002 og alls 11.403 traktorar á landinu í lok árs 2007.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 1149 — 595. mál.
Svar
samgönguráðherra við fyrirspurn Álfheiðar Ingadóttur um fellihýsi, tjaldvagna og húsvagna í umferð.
1. Hversu mörg fellihýsi, tjaldvagnar og húsvagnar eru í umferð hér á landi?
Miðað við 1. janúar 2008 var talan þessi:
| Hjólhýsi | 2.758 |
| Tjaldvagnar | 10.417 |
| Fellihýsi | 1.012 |
| Húsbifreiðir | 2.312 |
| Samtals | 16.499 |
2. Hver hefur fjölgunin verið undanfarin fimm ár?
Miðað við 1. janúar 2003 var talan þessi:
| Hjólhýsi | 723 |
| Tjaldvagnar | 7.855 |
| Húsbifreiðir | 976 |
| Fellihýsi engin á skrá 2003 | |
| Samtals | 9.554 |
Aukning í prósentum frá árinu 2003 til ársins 2008:
| Hjólhýsi | 281% |
| Tjaldvagnar | 33% |
| Húsbifreiðir | 137% |
3. Hversu mörg fellihýsi, tjaldvagnar eða húsvagnar hafa tengst umferðarslysum, þ.m.t. banaslysum, undanfarin fimm ár?
| Banaslys | 1 |
| Slys með alvarlegum afleiðingum | 2 |
| Slys með litlum meiðslum | 15 |
| Óhöpp án meiðsla | 117 |
| Samtals | 135 |