135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 1169 — 531. mál.
Frumvarp til laga
um breytingar á ýmsum lögum vegna flutnings stjórnsýslu- og eftirlitsverkefna á sviði lax- og silungsveiði, fiskræktar o.fl. til Fiskistofu.
(Eftir 2. umr., 28. maí.)
I.
KAFLI
Breytingar á lögum nr. 58/2006, um fiskrækt, með síðari breytingum.
1. gr.
2. gr.
a. Í stað orðanna „eldi vatnafiska“ í 1. málsl. kemur: fiskeldi.
b. Í stað orðsins „ellefu“ í 3. málsl. kemur: tólf.
c. Í stað orðanna „og sjávarútvegsráðuneyti“ í 3. málsl. kemur: Hafrannsóknastofnuninni og Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
d. Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Sker atkvæði formanns úr ef ágreiningur verður í nefndinni.
II. KAFLI
Breytingar á lögum nr. 59/2006, um Veiðimálastofnun,
með síðari breytingum.
3. gr.
4. gr.
Við 5. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Veiðimálastofnun er heimilt að eiga aðild að rannsóknar- og þróunarfyrirtækjum, sem eru hlutafélög eða önnur félög með takmarkaðri ábyrgð, er þróa hugmyndir og hagnýta rannsóknar- og þróunarverkefni sem stofnunin vinnur að hverju sinni.
5. gr.
a. Í stað orðanna „eldi vatnafiska“ í 1. málsl. kemur: fiskeldi.
b. Í stað orðsins „ellefu“ í 3. málsl. kemur: tólf.
c. Í stað orðsins „landbúnaðarráðherra“ í 3. og 4. málsl. kemur: sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
d. Í stað orðanna „og sjávarútvegsráðuneyti“ í 3. málsl. kemur: Hafrannsóknastofnuninni og Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
e. Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Sker atkvæði formanns úr ef ágreiningur verður í nefndinni.
III. KAFLI
Breytingar á lögum nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum,
með síðari breytingum.
6. gr.
7. gr.
a. Í stað orðanna „eldi vatnafiska“ í 1. málsl. kemur: fiskeldi.
b. Í stað orðsins „ellefu“ í 3. málsl. kemur: tólf.
c. Í stað orðanna „og sjávarútvegsráðuneyti“ í 3. málsl. kemur: Hafrannsóknastofnuninni og Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
d. Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Sker atkvæði formanns úr ef ágreiningur verður í nefndinni.
IV. KAFLI
Breytingar á lögum nr. 61/2006, um lax- og silungsveiði,
með síðari breytingum.
8. gr.
a. 1. mgr. orðast svo:
Framkvæmd stjórnsýslu og eftirlits samkvæmt lögum þessum skal vera á sérstöku sviði Fiskistofu sem nefnist lax- og silungsveiðisvið. Fiskistofustjóri ræður sviðsstjóra til að stýra því sviði. Skal hann hafa háskólapróf sem nýtist honum í starfi og heyra undir fiskistofustjóra.
b. Í stað orðsins „Matvælastofnun“ í 3. mgr. og sama orðs hvarvetna annars staðar í lögunum kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Fiskistofa.
c. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Lax- og silungsveiðisvið.
9. gr.
Við lögin bætist ný grein, 4. gr. a, og orðast svo ásamt fyrirsögn:Veiðieftirlitsmenn.
Fiskistofu er heimilt að skipa eftirlitsmenn með því að bann við laxveiðum í sjó sé virt. Kostnaður við störf þeirra greiðist úr ríkissjóði.
Eftirlitsmenn skulu hafa nákvæmar gætur á því að veiði í umdæmi þeirra sé stunduð með löglegum hætti. Þeir safna skýrslum, m.a. skulu þeir gera skrár um veiðivélar, lagnir og drætti í umdæmum sínum og sjá um merkingu veiðarfæra. Nánari fyrirmæli um starfsemi eftirlitsmanna setur Fiskistofa í erindisbréfi.
Eftirlitsmenn skulu eiga frjálsa för um veiðivatn, meðfram því og um netlög í sjó eftir því sem þörf krefur. Þeir hafa vald til að taka upp ólögleg veiðitæki eða veiðitæki sem notuð eru á óleyfilegum tíma eða óleyfilegum stað.
10. gr.
a. 2. mgr. orðast svo:
Veiðimálastofnun safnar veiðiskýrslum í samræmdu formi sem stofnunin útbýr og leggur til í umboði Fiskistofu. Veiðiskýrslur teljast opinber gögn og almennar upplýsingar úr veiðiskýrslum skulu jafnframt vera aðgengilegar almenningi sem og öðrum rannsóknar- og ráðgjafaraðilum samkvæmt ákvörðun Fiskistofu.
b. 2. málsl. 3. mgr. fellur brott.
11. gr.
a. Í stað orðanna „eldi vatnafiska“ í 1. málsl. kemur: fiskeldi.
b. Í stað orðsins „ellefu“ í 3. málsl. kemur: tólf.
c. Í stað orðanna „og sjávarútvegsráðuneyti“ í 3. málsl. kemur: Hafrannsóknastofnuninni og Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
d. Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Sker atkvæði formanns úr ef ágreiningur verður í nefndinni.
V.
KAFLI
Breytingar á lögum nr. 80/2005, um Matvælastofnun, með síðari breytingum.
12. gr.
a. Orðin „lögum nr. 33/2002, um eldi nytjastofna sjávar“ í a-lið falla brott.
b. J-liður fellur brott.
13. gr.
VI. KAFLI
Breytingar á lögum nr. 36/1992, um Fiskistofu, með síðari breytingum.
14. gr.
a. Á eftir orðinu „sjávarútvegsmála“ í 1. málsl. kemur: lax- og silungsveiði, fiskræktar, fiskeldis o.fl.
b. Í stað orðsins „sjávarútvegsráðherra“ í 2. málsl. kemur: sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
15. gr.
a. Við bætist nýr málsliður sem verður 2. málsl., svohljóðandi: Einnig skal Fiskistofa annast stjórnsýslu og eftirlit samkvæmt lögum um lax- og silungsveiði, lögum um fiskrækt o.fl.
b. Á eftir orðinu „sjávarútvegsmála“ í 2. málsl., er verður 3. málsl., kemur: lax- og silungsveiði, fiskræktar, fiskeldis o.fl.
16. gr.
VII. KAFLI
Gildistaka.
17. gr.
Ákvæði til bráðabirgða.
I.
II.