135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 1171 — 530. mál.
Frumvarp til laga
um fiskeldi.
(Eftir 2. umr., 28. maí.)
I. KAFLI
Markmið, gildissvið og skilgreiningar.
1. gr.
Markmið.
Við framkvæmd laganna skal þess ávallt gætt að sem minnst röskun verði á vistkerfi villtra fiskstofna og að sjálfbærri nýtingu þeirra sé ekki stefnt í hættu.
2. gr.
Gildissvið.
3. gr.
Skilgreiningar.
1. Alifiskur: Fiskur sem alinn er eða látinn ganga sjálfala í tjörnum eða ílátum.
2. Eldisdýr: Lifandi fiskur, krabbadýr eða lindýr frá eldisstöð, óháð þroskastigi, að meðtöldum dýrum sem lifa upprunalega villt en eru ætluð fyrir eldisstöð.
3. Fiskeldi: Geymsla, gæsla og fóðrun vatnafiska, annarra vatnadýra og nytjastofna sjávar, klak- og seiðaeldi, hvort sem er í söltu eða ósöltu vatni.
4. Fiskeldisstöð: Staður þar sem vatn, sjór, land eða mannvirki er nýtt í þágu fiskeldis.
5. Fiskrækt: Hvers konar aðgerðir sem ætla má að skapi eða auki fisk í veiðivatni eða sjó.
6. Fiskræktarslepping: Slepping samstofna smáseiða eða gönguseiða í því skyni að auka fiskigengd í veiðivatni eða sjó.
7. Fiskstofn: Hópur fiska sömu tegundar sem hrygnir á tilteknum stað og tíma en gerir það ekki í neinum mæli með öðrum hópum á öðrum stað eða tíma.
8. Fiskur: Fiskur í merkingu laga þessara tekur til allra tegunda lagardýra sem lifa í vatni og sjó, hvort sem er við náttúrulegar aðstæður eða í eldi.
9. Geldstofn: Fiskur sem ekki framleiðir frjóar kynfrumur.
10. Göngusilungur: Silungur er gengur úr sjó í ósalt vatn, svo sem sjóbirtingur (urriði) og sjóreyður (bleikja).
11. Hafbeit: Slepping gönguseiða til sjógöngu og föngun þeirra sem fullvaxta fiska á sleppistað þegar þeir ganga úr sjó í ferskt vatn, annaðhvort til slátrunar eða flutnings í annað veiðivatn til endurveiða.
12. Heilsárseldi: Hefðbundið eldi í sjókvíum frá 50 gramma göngustærð upp í markaðsstærð.
13. Kvíaeldi: Fiskeldi í netkvíum (netbúrum) í fersku vatni eða söltu.
14. Kynbætur: Markvisst val með tilliti til ákveðinna arfgengra eiginleika. Slíkir eiginleikar geta verið mikill vaxtarhraði eða síðbúinn kynþroski. Til undaneldis eru valdir fiskar sem sýna ákjósanlega eiginleika umfram aðra fiska í stofninum. Slíku vali er viðhaldið og það aukið með vali í hverri kynslóð.
15. Lagardýr: Öll dýr með kalt blóð sem lifa og geta afkvæmi í sjó eða fersku vatni.
16. Netlög: Vatnsbotn 115 metra út frá bakka landareignar að stöðuvatni, svo og sjávarbotn 115 metra út frá stórstraumsfjöruborði landareignar.
17. Nytjastofnar: Fiskar og sjávardýr, svo og sjávargróður, sem nytjuð eru eða kunna að verða nytjuð í íslenskri fiskveiðilandhelgi, íslensku landgrunni eða á landi með eldi.
18. Sjávarfiskur: Fiskur sem lifir allan sinn lífsferil í sjó.
19. Sjókvíaeldi: Eldi á fiski í netbúrum sem komið er fyrir í sjó eða söltu vatni.
20. Sjór: Salt vatn utan árósa.
21. Skiptieldi: Eldi á fiski í strandeldi upp í 250–1.000 grömm og framhaldseldi í sjókvíum upp í markaðsstærð.
22. Strandeldi: Eldi fiska til slátrunar í tönkum eða kerum á landi.
23. Straumvatn: Ósalt vatn, á eða ósasvæði sem í er greinilegur straumur, þá er enginn vöxtur er í, og um stórstraumsfjöru.
24. Stöðuvatn: Ósalt vatn sem eigi er í greinilegur straumur annar en sá sem stafar af sjávarföllum, vindi eða aðrennsli í leysingum.
25. Vatn: Ósalt vatn með föstu legi eða farvegi, straumvatn eða stöðuvatn.
26. Vatnadýr: Öll dýr með kalt blóð sem lifa að hluta eða allan sinn lífsferil í fersku vatni.
27. Vatnafiskur: Lax (Salmo salar), silungur (urriði (Salmo trutta), bleikja (Salvelinus alpinus) og regnbogasilungur (Oncorhynchus mykiss)), áll (Anguilla anguilla) eða annar vatnafiskur ef ræktaður verður.
28. Vatnasilungur: Silungur sem elur allan aldur sinn í ósöltu vatni, svo sem vatnaurriði, vatnableikja (reyður), lækjasilungur og murta.
29. Veiðivatn: Á eða stöðuvatn sem veiði er í eða mætti í vera ef fiskur væri ræktaður þar.
30. Villtur fiskstofn: Fiskstofn þar sem meiri hluti fisks er klakinn í náttúrulegu umhverfi, elst þar upp og er kominn undan villtum foreldrum.
31. Örmerkingar: Merkingar á fiski með málmflísum í trjónuna.
II. KAFLI
Stjórnsýsla.
4. gr.
Stjórnsýsla.
Ráðherra skal í samræmi við fyrirmæli einstakra greina laga þessara setja nánari ákvæði um framkvæmd þeirra í reglugerð. Við setningu reglugerða skal ávallt leitað faglegrar umsagnar Fiskistofu, Matvælastofnunar, Veiðimálastofnunar og Hafrannsóknastofnunarinnar og leitað álits Sambands íslenskra sveitarfélaga, Landssambands fiskeldisstöðva og Landssambands veiðifélaga .
Allar fiskeldisstöðvar skulu hafa með sér samtök, Landssamband fiskeldisstöðva, sem gæta sameiginlegra hagsmuna fiskeldismanna.
5. gr.
Svæðaskipting fiskeldis.
6. gr.
Staðbundið bann við starfsemi.
Við ákvörðun ráðherra skv. 1. mgr. skal taka mið af því að markmið laga þessara er m.a. að vernda villta nytjastofna, hvort sem um er að ræða ferskvatnsfiska eða sjávarfiska, og hlífa þeim við fisksjúkdómum og öðrum neikvæðum vistfræðilegum áhrifum. Skal í því sambandi m.a. litið til staðsetningar eldisstöðva, stærðar þeirra, fjarlægðar frá veiðiám og veiðiverðmætis á viðkomandi svæði, þ.e. firði eða flóa. Jafnframt skal litið til þess hvort fiskeldissvæði séu á gönguleiðum lax og silungs og hvort straumar geti leitt sleppifisk í ár.
Um skaðabætur vegna tjóns, sem leiðir af banni eða takmörkun samkvæmt grein þessari, fer eftir því sem mælt er fyrir um í 18. gr.
III. KAFLI
Rekstrarleyfi til fiskeldis.
7. gr.
Rekstrarleyfi.
Áður en leyfi skv. 1. mgr. er veitt skal Fiskistofa afla umsagnar Matvælastofnunar. Einnig skal stofnunin leita umsagnar Veiðimálastofnunar, Hafrannsóknastofnunarinnar og viðkomandi sveitarstjórnar eftir því sem við á um hvort náttúrulegar aðstæður á fyrirhuguðu starfssvæði fiskeldisstöðvar eða fyrirhugaðar eldistegundir, eldisstofnar eða eldisaðferðir gefi tilefni til hættu á neikvæðum vistfræði- eða erfðafræðiáhrifum sem leitt getur af leyfisskyldri starfsemi.
Sé um endurnýjun á rekstrarleyfi að ræða telst ekki nauðsynlegt að afla slíkra umsagna enda sé ekki um verulegar breytingar að ræða á eðli og umfangi reksturs.
8. gr.
Umsókn um rekstrarleyfi.
Umsókn skulu fylgja skilríki um heimild til afnota lands, vatns og sjávar. Umsókn skulu einnig fylgja áætlun um fjármögnun mannvirkja og annars búnaðar, rekstraráætlun, leyfi til mannvirkjagerðar, leyfi til starfsemi samkvæmt ákvæðum annarra laga sem varða slíkan atvinnurekstur, svo og önnur gögn sem Fiskistofu eru nauðsynleg til að meta hvort skilyrði til útgáfu rekstrarleyfis séu fyrir hendi.
9. gr.
Málsmeðferð umsóknar.
Veiti fyrirliggjandi gögn ekki nægilegar upplýsingar til þess að mat verði lagt á þá þætti sem um getur í 1. mgr. getur Fiskistofa lagt fyrir umsækjanda að láta í té frekari upplýsingar áður en rekstrarleyfi er veitt. Í því skyni getur stofnunin lagt fyrir hann að rannsaka á eigin kostnað hvort fyrirhuguð starfsemi fiskeldisstöðvar feli í sér aukna hættu á fisksjúkdómum eða hvort um neikvæð vistfræðileg áhrif geti orðið að ræða.
Rannsóknir umsækjanda skv. 2. mgr. geta m.a. falist í merkingum á fiski, samantekt á veðurfars- og haffræðilegum upplýsingum, samantekt um aðra hagsmuni í veiðimálum og fiskeldi á svæðinu, mati á stöðu fiskstofna í helstu ám á svæðinu og mati á göngu laxfiska í nágrenni fyrirhugaðrar eldisstöðvar. Ráðherra getur í reglugerð mælt nánar fyrir um þau atriði sem rannsókn lýtur að.
10. gr.
Efni og útgáfa rekstrarleyfis.
Í rekstrarleyfi skulu vera ákvæði um stærð fiskeldisstöðvar og hvort um sé að ræða seiðaeldi, strandeldi, skiptieldi eða heilsárseldi. Þá skal í rekstrarleyfi kveðið á um leyfilegar tegundir í eldi, leyfilega eldisstofna, leyfilegt framleiðslumagn og skyldu rekstrarleyfishafa til að annast vöktun og rannsóknir á nánasta umhverfi sínu. Jafnframt skulu í rekstrarleyfi vera ákvæði um varúðarráðstafanir til að koma í veg fyrir að fiskur sleppi vegna eldis eða flutnings á fiski, og ákvæði um áætlun um aðgerðir til að endurheimta fisk sem sleppur.
Ráðherra er í reglugerð heimilt að mæla fyrir um nánari skilyrði sem setja má í rekstrarleyfi. Slík skilyrði geta m.a. falið í sér skyldu leyfishafa til að standa að rannsóknum sambærilegum þeim sem greinir í 2. og 3. mgr. 9. gr. og skyldu til vöktunar á nærliggjandi veiðivötnum, vöktunar á kynþroska og heilbrigði fiska í eldi o.fl.
Við útgáfu rekstrarleyfis skal þess ávallt gætt að fullnægt sé ákvæðum laga um mat á umhverfisáhrifum og laga um hollustuhætti og mengunarvarnir.
IV. KAFLI
Starfræksla fiskeldisstöðva.
11. gr.
Upphaf starfsemi.
Fiskeldisstöðvum er óheimilt að flytja eldisfisk eða seiði í fiskeldisstöð fyrr en rekstrarleyfi er fengið og úttekt hefur farið fram.
12. gr.
Friðunarsvæði í sjó.
Ef sannað þykir að veiðitakmarkanir skv. 1. mgr. hafi í för með sér tjón á fjárhagslegum hagsmunum eiganda sjávarjarðar skulu þeir bæta honum tjónið sem takmörkunin er til hagsbóta fyrir. Bætur skulu ákveðnar með mati skv. VII. kafla laga um lax- og silungsveiði.
13. gr.
Veiðar fisks sem sleppur.
Rekstrarleyfishafa er skylt að grípa til allra þeirra ráðstafana, sem nauðsynlegar eru og í hans valdi standa, til þess að varna því að slíkur atburður, sem greinir í 1. mgr., valdi vistfræðilegu tjóni. Er honum í því skyni m.a. skylt, þrátt fyrir friðun á villtum fiski á svæðinu og án tillits til réttar eigenda sjávarjarða í netlögum, að gera allt sem í hans valdi stendur til að veiddur verði slíkur fiskur á svæði innan 200 metra frá stöðinni. Skal hver eldisstöð eiga og viðhalda nauðsynlegum búnaði í því skyni. Ráðherra skal í reglugerð setja nánari fyrirmæli um hvernig að slíkum veiðum skal staðið.
Skylda til veiða skv. 2. mgr. takmarkast við þrjá sólarhringa frá því að ljóst er að fiskur hafi sloppið út, ef slíkur atburður gerist á göngutíma laxfiska, en veiðitíminn í slíkum tilvikum skal að öðru leyti háður ákvörðun Fiskistofu. Veiðar þær sem hér um ræðir skulu ávallt fara fram í samráði við fulltrúa Fiskistofu.
Ef rekstrarleyfishafi hefur ekki hafið aðgerðir skv. 2. mgr. innan tólf klukkustunda frá því að ljóst er að eldisfiskur slapp út getur Fiskistofa, ef þörf krefur, gefið út almenna heimild til veiða á svæðinu með sömu skilyrðum og fram koma í 2. mgr.
Allan kostnað Fiskistofu og annarra stjórnvalda vegna nauðsynlegra aðgerða samkvæmt þessari grein skal rekstrarleyfishafi greiða.
14. gr.
Eftirlit og skýrslugjöf.
Til að Fiskistofa geti framkvæmt eftirlit skv. 1. mgr. skal rekstrarleyfishafi árlega gefa Fiskistofu skýrslu um starfsemi sína. Þar skulu m.a. koma fram upplýsingar um framleiðslumagn stöðvar, eldisrými, fóðurnotkun, birgðir af fiski, uppruna hans, sjúkdóma og önnur óhöpp í rekstri, svo og önnur þau atriði sem stofnuninni eru nauðsynleg til virks eftirlits samkvæmt lögum þessum. Þá skal færð dagbók um starfsemina í fiskeldisstöðvum samkvæmt reglugerð sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra setur. Fiskistofu skal ætíð vera heimill aðgangur að eldisstöð og dagbók hennar.
Ráðherra skal í reglugerð mæla nánar fyrir um eftirlitshlutverk Fiskistofu. Fiskistofu er heimilt að fela aðilum sem hlotið hafa faggildingu samkvæmt lögum um faggildingu o.fl. að annast framkvæmd eftirlitsins samkvæmt sérstökum samningi. Þeir skulu bundnir þagnarskyldu um það sem þeir fá vitneskju um við framkvæmd eftirlitsins og leynt á að fara. Um þagnarskylduna gilda ákvæði 18. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, og skal brot á henni varða refsingu skv. 136. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940.
Fyrir eftirlit Fiskistofu eða faggiltra eftirlitsaðila á hennar vegum skulu fiskeldisstöðvar greiða árlegt eftirlitsgjald sem miðast við raunkostnað við eftirlitið samkvæmt gjaldskrá sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra staðfestir. Eftirlitsgjald skal innheimt með einni greiðslu á ári eigi síðar en 1. nóvember ár hvert. Fiskistofa skal annast innheimtu eftirlitsgjaldsins. Ef eftirlitsgjald er ekki greitt á eindaga reiknast hæstu lögleyfðir dráttarvextir af fjárhæð þess frá gjalddaga til greiðsludags. Eftirlitsgjald má innheimta með fjárnámi.
V. KAFLI
Afturköllun rekstrarleyfis.
15. gr.
Forsendubrestur.
Áður en gripið er til afturköllunar leyfis skv. 1. mgr. skal Fiskistofa ávallt veita rekstrarleyfishafa skriflega viðvörun og hæfilegan frest til úrbóta.
16. gr.
Afturköllun rekstrarleyfis.
Áður en gripið er til afturköllunar leyfis skv. 1. mgr. skal Fiskistofa ávallt veita rekstrarleyfishafa skriflega viðvörun og hæfilegan frest til úrbóta.
VI. KAFLI
Ýmis ákvæði.
17. gr.
Framsal.
18. gr.
Skaðabætur.
Ef sannað þykir að missir eldisfisks úr fiskeldisstöð valdi tjóni á hagsmunum veiðiréttarhafa, sem verndar njóta samkvæmt lax- og silungsveiðilögum, skal viðkomandi rekstrarleyfishafi bæta tjónið á grundvelli mats skv. VII. kafla laga um lax- og silungsveiði. Hið sama á við um tjón annarra þeirra sem hafbeit, fiskeldi eða fiskrækt stunda.
Ef sannað þykir að starfsemi samkvæmt lögum þessum valdi tjóni í veiðivatni samkvæmt lax- og silungsveiðilögum í öðrum tilvikum en þeim sem greinir í 2. mgr. skal það tjón bætt eftir mati skv. VII. kafla þeirra laga, ef eigi semur.
19. gr.
Tilflutningur eldisfisks.
Flutningur eldistegunda, sem ekki eru tilgreindar í rekstrarleyfi, milli fiskeldisstöðva, svo og flutningur og sleppingar lifandi fisks og frjóvgaðra hrogna milli ótengdra vatnasvæða, er óheimill.
Að fenginni umsögn Matvælastofnunar getur Fiskistofa veitt rekstrarleyfishafa undanþágu til flutnings á eldistegundum, sem ekki eru tilgreindar í rekstrarleyfi, milli fiskeldisstöðva ef ástæður mæla ekki gegn slíku. Fiskistofa skal í þeim tilvikum einnig leita umsagnar Hafrannsóknastofnunarinnar eða Veiðimálastofnunar um hvort náttúrulegar aðstæður á fyrirhuguðu starfssvæði fiskeldisstöðvar eða vatnasvæði eða sjávarsvæði gefa tilefni til neikvæðra vistfræðilegra áhrifa.
20. gr.
Eldisbúnaður.
VII. KAFLI
Reglugerðarheimild, refsiákvæði o.fl.
21. gr.
Reglugerðarheimild o.fl.
Fiskistofu er, eftir því sem þörf krefur, heimilt að setja svæðis- eða tímabundnar reglur á grundvelli slíkra reglugerða.
22. gr.
Um refsingar.
a. ef eldisfiskur sleppur úr fiskeldisstöð þar sem umbúnaði við fiskeldið hefur verið áfátt vegna athafna eða athafnaleysis þeirra sem framið hefur verið af ásetningi eða gáleysi,
b. ef þeir brjóta gegn ákvæðum 1. eða 2. mgr. 13. gr. laga þessara af ásetningi eða gáleysi,
c. ef fiskeldisstöðvar gefa ekki lögboðnar skýrslur um starfsemi sína eða veita eftirlitsmönnum rangar upplýsingar,
d. ef fiskeldisstöðvar gerast að öðru leyti brotlegar gagnvart lögum þessum.
VIII. KAFLI
Gildistökuákvæði.
23. gr.
Gildistaka o.fl.
Ákvæði til bráðabirgða.