Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 515. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 1230  —  515. mál.




Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 90/2003, um tekjuskatt, lögum nr. 94/1996, um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur, og lögum nr. 86/2007, um skattlagningu kaupskipaútgerðar, með síðari breytingum.

Frá efnahags- og skattanefnd.



     1.      Við 1. gr. B-liður falli brott.
     2.      Við 9. gr.
                  a.      Í stað orðsins „álagningu“ í b-lið komi: ákvörðun.
                  b.      Við bætist nýr liður, svohljóðandi:
                     c. (III.)
                     Frá tekjuskattsstofni skv. 2. tölul. og b-lið 3. tölul. 61. gr. vegna rekstrarársins 2007 er heimilt að draga fjárhæð gengishagnaðar umfram gengistap af hvers konar eignum og skuldum í erlendum verðmæli, sbr. 5. tölul. 1. mgr. 8. gr. og 4. tölul. 1. mgr. 49. gr., sem nemur allt að þeirri fjárhæð sem tekjuskattur hefði reiknast af á árinu 2008 vegna rekstrarársins 2007 og dreifa þeirri fjárhæð jafnt á rekstrarárin 2007, 2008 og 2009 til skattlagningar á álagningarárunum 2008, 2009 og 2010. Frestun tekjufærslu samkvæmt þessari málsgrein kemur því aðeins til greina að yfirfæranlegt tap hafi verið jafnað að fullu og að eigi hafi verið nýttar hlutfallslega lægri fyrningar skv. 37. gr. og niðurfærslur skv. 3. og 4. tölul. 31. gr. á rekstrarárinu 2007 en rekstrarárið 2006.
                     Frá tekjuskattsstofni skv. 2. tölul. og b-lið 3. tölul. 61. gr. vegna rekstrarársins 2008 er heimilt að draga fjárhæð gengishagnaðar umfram gengistap af hvers konar eignum og skuldum í erlendum verðmæli, sbr. 5. tölul. 1. mgr. 8. gr. og 4. tölul. 1. mgr. 49. gr., sem nemur allt að þeirri fjárhæð sem tekjuskattur hefði reiknast af á árinu 2009 vegna rekstrarársins 2008 og dreifa þeirri fjárhæð jafnt á rekstrarárin 2008, 2009 og 2010 til skattlagningar á álagningarárunum 2009, 2010 og 2011. Frestun tekjufærslu samkvæmt þessari málsgrein kemur því aðeins til greina að yfirfæranlegt tap hafi verið jafnað að fullu og að eigi hafi verið nýttar hlutfallslega lægri fyrningar skv. 37. gr. og niðurfærslur skv. 3. og 4. tölul. 31. gr. á rekstrarárinu 2008 en rekstrarárið 2007.
                     Félag sem tekur þátt í samsköttun skv. 55. gr. getur því aðeins frestað tekjufærslu skv. 1. og 2. mgr. að samnýtanlegt rekstrartap samsköttunarfélaganna hafi verið jafnað.
                     Heimild til frestunar tekjufærslu skv. 1. og 2. mgr. tekur ekki til fjármálafyrirtækja sem stunda starfsemi sem fellur undir 2. gr. laga nr. 87/1998, um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi.
     3.      Við 10. gr. Greinin falli brott.
     4.      Við 12. gr.
                  a.      1. mgr. orðist svo:
                      Ákvæði 1. og 3. gr. öðlast gildi 1. janúar 2009 og koma til framkvæmda við álagningu tekjuskatts á árinu 2010.
                  b.      Í stað orðanna „b-liðar 1. gr., 5., 7. og 10. gr.“ í 5. mgr. komi: 5. og 7. gr.
                  c.      Í stað orðanna „Ákvæði 8. og 11. gr. öðlast gildi 1. janúar 2008“ í 6. mgr. komi: Ákvæði 8. og 10. gr. öðlast þegar gildi.
     5.      Fyrirsögn frumvarpsins orðist svo: Frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum, og lögum nr. 86/2007, um skattlagningu kaupskipaútgerðar.