Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 616. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 1244 — 616. mál.
fjármálaráðherra við fyrirspurn Álfheiðar Ingadóttur, Árna Þórs Sigurðssonar og Kolbrúnar Halldórsdóttur um kostnað við Kárahnjúkavirkjun.
Þar sem fyrirspurnin, að undanskildum 7. lið hennar, snýr annars vegar að Landsvirkjun sf. og hins vegar að Landsneti hf., sem eru sérstök félög í eigu ríkisins, óskaði fjármálaráðuneytið eftir að þessir aðilar veittu ráðuneytinu svör við þeim hlutum fyrirspurnarinnar.
1. Hver er heildarkostnaður við flutningsmannvirki Kárahnjúkavirkjunar frá stöðvarhússvegg að álveri Fjarðaáls í Reyðarfirði?
Í svari Landsnets hf. segir: Kostnaður flutningsmannvirkja vegna Kárahnjúkavirkjunar og tengingar við álver Fjarðaáls er 12,79 milljarðar.
2. Hversu mikið er tap Landsvirkjunar og hvert er áætlað tap Alcoa Fjarðaáls vegna tafa sem urðu á gangsetningu Kárahnjúkavirkjunar? Óskað er upplýsinga um mismun á áætlaðri og raunverulegri/raunáætlaðri orkusölu Landsvirkjunar á árunum 2007 og 2008.
Í svari Landsvirkjunar sf. segir: Upphaflegar áætlanir Landsvirkjunar gerðu ráð fyrir að tekjur af raforkusölu til Alcoa Fjarðaáls mundu nema 3.857 millj. kr. á árinu 2007 og 7.124 millj. kr. á árinu 2008. Eins og kunnugt er varð nokkur seinkun á afhendingu orku til Alcoa Fjarðaáls á síðasta ári sem hafði í för með sér að afhent magn varð minna en ráð var fyrir gert og tekjur ársins af sölunni námu 1.161 millj. kr. Áætlanir Landsvirkjunar gera ráð fyrir að tekjur af orkusölu til Alcoa Fjarðaáls muni nema 8.643 millj. kr. á yfirstandandi ári. Vert er að geta þess að í áætluninni er ekki gert ráð fyrir að álverið starfi á fullum afköstum allt árið. Samtals er munurinn um 1.177 millj. kr. þar sem tekjurnar áætlast lægri en upphaflega var gert ráð fyrir. Vegna þess hve álverð er hátt um þessar mundir má gera ráð fyrir að munurinn verði talsvert minni og hafa verður í huga að orkusölusamningurinn við Alcoa Fjarðaál er til 40 ára. Auk þess er gert ráð fyrir að Alcoa Fjarðaál kaupi 40 MW til viðbótar frá virkjuninni og eykur það enn tekjur af orkusölunni.
3. Hefur verið samið um skaðabætur við Alcoa vegna þessara tafa?
Í svari Landsvirkjunar sf. segir: Ekki hefur verið samið við Alcoa Fjarðaál sf. um skaðabætur vegna tafa við gangsetningu Kárahnjúkavirkjunar. Ekki stendur til að gera það enda hafa báðir aðilar lýst því yfir að þeir muni ekki gera neinar kröfur á hendur hinum vegna gangsetningartafa.
4. Hver var kostnaður Landsvirkjunar við raforkuöflun/raforkukaup, sem og við flutning raforku til Reyðarfjarðar þann tíma sem gangsetning Kárahnjúkavirkjunar tafðist? Var framkvæmdum við aðrar línulagnir eða virkjanir flýtt vegna tafanna?
Í svari Landsvirkjunar sf. segir: Seint á árinu 2006 var fyrirsjáanlegt að seinkun yrði á uppkeyrslu fyrstu vélar Kárahnjúkavirkjunar, sem upphaflega átti að koma í rekstur 1. apríl 2007. Við þessu var brugðist og ákveðið standa við þá dagsetningu og afhenda Alcoa Fjarðaáli 100 MW frá landsnetinu, sem framleitt var í öðrum virkjunum Landsvirkjunar. Gera varð nokkrar breytingar á einum rafala Fljótsdalsstöðvar af þessu tilefni, en þær kostuðu alls um 65 millj. kr.
Flutningskostnaður á uppkeyrslutímabili var greiddur eftir stóriðjugjaldskrá Landsnets og hefði verið sá sami og ef orkan hefði komið frá Kárahnjúkavirkjun. Ekki var því um að ræða viðbótarkostnað vegna raforkuflutnings.
Í svari Landsnets hf. segir: Engum línulögnum var flýtt vegna frestunar á gangsetningu Kárahnjúkavirkjunar. Viðhaldsáætlun flutningskerfisins var endurskoðuð og eftirlit fór fram á byggðalínunni á öðrum tímum en ráðgert var til að tryggja betur flutninga eftir byggðalínunni, en ekki hlaust af aukakostnaður vegna þessa.
5. Hvaða kröfur hafa komið fram og hverjar hafa verið boðaðar frá Impregilo og öðrum verktökum og hver er fjárhæð hverrar um sig? Hefur verið samið um kröfurnar og ef svo er, hve stóran hlut hefur Landsvirkjun þurft að bera vegna hverrar kröfu fyrir sig?
Í svari Landsvirkjunar sf. segir: Eðlilegt er að verktakar geri kröfur, þegar að þeirra mati, aðstæður eru ekki með þeim hætti sem lýst er í útboðsgögnum enda getur slíkt valdið þeim kostnaðarauka sem þeir bera ekki ábyrgð á. Meðal annars af þessum ástæðum er ávallt gert ráð fyrir ófyrirséðum kostnaði við slíkar framkvæmdir, umfram þann kostnað sem áætlaður er út frá magntölum og einingaverðum. Í Kárahnjúkavirkjun var ófyrirséður kostnaður áætlaður 11–20%, mismunandi eftir verkþáttum og hönnunarstigi.
Stærstu og tæknilega erfiðustu verkþættirnir hafa tvímælalaust verið Kárahnjúkastífla og aðrennslisgöngin en þá verkþætti annaðist Impregilo. Í fylgiskjali II við skýrslu iðnaðarráðherra sem lögð var fram fyrir Alþingi í mars sl. er gerð grein fyrir nokkrum af helstu erfiðleikum sem upp komu við þá verksamninga.
Landsvirkjun hefur leitast við að semja við verktaka um aukaverk og/eða kröfur eftir því sem verkinu hefur miðað áfram. Gildir það fyrir alla verksamninga, stóra sem smáa. Þann 22. febrúar sl. náðist þannig samkomulag við Impregilo um allar útistandandi kröfur frá júlí 2006 til þess dags. Samkomulagið rúmast innan kostnaðaráætlunar fyrir Kárahnjúkavirkjun frá september 2007 en gerð var grein fyrir henni í fyrra svari iðnaðarráðherra (þskj. 751) til Alþingis. Í þeirri áætlun kemur fram að gert var ráð fyrir 4 milljörðum kr. í viðbótarkostnað vegna breytinga og uppgjörs á kröfum. Samið hefur verið við nánast alla aðra verktaka á svæðinu um kröfur og aukaverk til loka síðastliðins árs og má því telja að langstærstur hluti framkvæmdakostnaðar sé þegar greiddur eða kominn fram.
Landsvirkjun telur ekki gerlegt að birta lista yfir allar kröfur sem komið hafa frá verktökum við Kárahnjúkavirkjun. Það sem máli skiptir er hvort umsamdar kröfur og aukaverk rúmist innan þeirrar áætlunar sem gerð hefur verið fyrir verkið. Fram kom í fyrra svari til Alþingis hver áætlaður lokakostnaður við Kárahnjúkavirkjun er og hvernig honum ber saman við upphaflega kostnaðaráætlun. Einnig kom þar fram nýtt mat á arðsemi virkjunarinnar sem auðvitað skiptir Landsvirkjun meginmáli.
6. Hver var munurinn á tilboði Impregilo sem samið var um og endanlegum greiðslum vegna tveggja stærstu verksamninganna, þ.e. byggingar Kárahnjúkastíflu og gangagerðar með heilborun, að teknu tilliti til krafna verktaka, uppgjörs á þeim, viðbótarverka vegna endurhönnunar og tafa?
Í svari Landsvirkjunar sf. segir: Í fylgiskjali I við skýrslu iðnaðarráðherra frá janúar sl. er gerð grein fyrir grunnkostnaðaráætlun hinna ýmsu verksamninga sem og áætluðum lokakostnaði sömu verksamninga. Tölur voru uppfærðar til verðlags í september 2007. Eins og fram kemur í svari við 5. lið hér að framan hefur náðst samkomulag við Impregilo um útistandandi kröfur til 22. febrúar sl. Verkefni þess verktaka lýkur hins vegar ekki fyrr en í lok 2008. Ekkert bendir hins vegar nú til þess að áætlaður lokakostnaður sem fram kemur í ofangreindu fylgiskjali muni ekki standast.
7. Hversu hárri fjárhæð nema skattakröfur Impregilo á hendur ríkinu? Hefur verið samið um greiðslu í samræmi við dóm Hæstaréttar þar um? Hver er áfallinn kostnaður ríkissjóðs vegna tafa á uppgjöri skattskuldarinnar við Impregilo?
Impregilo S.p.A, útibú á Íslandi hefur höfðað mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur á hendur íslenska ríkinu til endurgreiðslu oftekinna skatta í framhaldi af dómi Hæstaréttar Íslands í málinu nr. 523/2006, Impregilo S.p.A. útibú á Íslandi gegn íslenska ríkinu, sem kveðinn var upp þann 20. september 2007. Í málinu er krafist endurgreiðslu oftekinna skatta að fjárhæð 1.230.708.381 kr. auk vaxta og málskostnaðar.
Ekki hefur verið samið um greiðslu í samræmi við dóm Hæstaréttar þar sem ágreiningur er uppi um endurgreiðslukröfuna. Sem áður segir er það mál nú til meðferðar hjá Héraðsdómi Reykjavíkur og hefur íslenska ríkið skilað inn greinargerð í málinu.
Ekki er litið svo á að um sé að ræða tafir á uppgjöri skattskuldar við Impregilo S.p.A, útibú á Íslandi. Sem áður segir er málið til meðferðar hjá Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem ágreiningur er uppi um endurgreiðslukröfuna.
8. Hvernig hafa áhrif verðlagsbreytinga verið reiknuð? Óskað er samantektar þar sem fram kemur við hvaða vísitölur er stuðst í útreikningi á áhrifum verðlagsbreytinga.
Í svari Landsvirkjunar sf. segir: Eins og fram kemur í áðurnefndu svari iðnaðarráðherra til Alþingis liggja ýmsar vísitölur til grundvallar við útreikning á verðbótum hinna fjölmörgu verksamninga. Þyngst vegur íslenska byggingarvísitalan og því þótti réttast að uppfæra grunnkostnaðaráætlun miðað við byggingarvísitölu enda tekur hún mið af bæði innlendum og erlendum verðbreytingum sem og gengisbreytingum. Samkvæmt þessu var grunnkostnaðaráætlun framreiknuð til verðlags í september 2007. Niðurstaðan var 115,5 milljarðar kr. án vaxta og fjármagnskostnaðar.
Til hliðsjónar voru hönnunarráðgjafar beðnir að endurmeta grunnkostnaðaráætlun og reikna hana upp á nýtt með sömu magntölum og í upphafi en á verðlagi í september 2007. Niðurstaða ráðgjafa var 118,8 milljarðar kr. án vaxta og fjármagnskostnaðar eða nokkru hærri en framreiknuð tala Landsvirkjunar.
9. Hver var áfallinn fjármagnskostnaður vegna byggingar Kárahnjúkavirkjunar og flutningskerfisins miðað við 6. mars 2008?
Í svari Landsvirkjunar sf. segir: Í lok mars nam uppsafnaður fjármagnskostnaður alls 9,7 milljörðum kr.
Í svari Landsnets hf. segir: Áfallinn fjármagnskostnaður vegna flutningsmannvirkja er reiknaður fram að þeim tíma er flutningsvirkin voru tekin í rekstur, en það var í nóvember 2007. Eftir þann tíma er fjármagnskostnaður ekki reiknaður af flutningsvirkjunum.
10. Hvernig dreifist áfallinn og áætlaður kostnaður á mánuði frá upphafi til loka framkvæmda miðað við gjalddaga reikninga annars vegar og miðað við framvindu verksins hins vegar?
Í svari Landsvirkjunar sf. segir: Meðfylgjandi er línurit yfir kostnað og kostnaðardreifingu frá upphafi verks að meðtöldum fjármagnskostnaði. Tekið skal fram að kostnaður er greiddur í samræmi við framvindu verksins og samninga.
Í greinargerð með fyrirspurninni er fullyrt að upplýsingar í skýrslu iðnaðarráðherra (þskj. 751) gefi ekki rétta mynd af heildarkostnaði við byggingu Kárahnjúkavirkjunar. Landsvirkjun mótmælir þessari fullyrðingu og ítrekar að upplýsingar í áðurnefndri skýrslu sýna greinilega áætlaðan heildarkostnað fyrir Kárahnjúkavirkjun.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 1244 — 616. mál.
Svar

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.