Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 622. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Nr. 23/135.

Þskj. 1297  —  622. mál.


Þingsályktun

um staðfestingu samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2008.


    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd eftirtalda samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2008 sem gerðir voru í London 12. nóvember 2007:
     1.      Sameiginlega bókun um niðurstöður fiskveiðiviðræðna um stjórnun veiða úr norsk- íslenska síldarstofninum í Norðaustur-Atlantshafi á árinu 2008.
     2.      Samkomulag milli Íslands og Noregs um veiðiheimildir innan efnahagslögsögu Noregs norðan 62°N, fiskveiðilögsögu Jan Mayen og efnahagslögsögu Íslands á árinu 2008.
     3.      Samkomulag milli Íslands og Rússneska sambandsríkisins um veiðiheimildir innan efnahagslögsögu Íslands á árinu 2008.

Samþykkt á Alþingi 30. maí 2008.