Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 637. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 1311  —  637. mál.




Svar



samgönguráðherra við fyrirspurn Jóns Bjarnasonar um lokun póstafgreiðslna og fækkun póstburðardaga.

     1.      Hefur orðið stefnubreyting af hálfu stjórnvalda hvað varðar póstdreifingu og starfrækslu póstafgreiðslna, einkum í dreifbýli?
    Engin stefnubreyting hefur orðið af hálfu stjórnvalda varðandi póstdreifingu og starfrækslu póstafgreiðslna í dreifbýli. Um þá starfsemi fer samkvæmt póstlögum frá árinu 2002, reglugerð um alþjónustu og framkvæmd póstþjónustu, nr. 364/2003, reglum um staðsetningu, fyrirkomulag og öryggismál á afgreiðslustöðum fyrir póstþjónustu, nr. 504/2003, og ákvæðum í rekstrarleyfi Íslandspósts hf. sem gildir til 1. janúar 2011.

     2.      Hvernig hyggst ráðherra bregðast við kæru Vesturbyggðar og Reykhólahrepps vegna áforma Íslandspósts um fækkun vikulegra póstburðardaga?
    Íslandspóstur er opinbert hlutafélag sem starfar á grundvelli laga um hlutafélög, nr. 2/1995, samþykkta Íslandspósts frá 1. mars 2007 og starfsreglna stjórnar Íslandspósts frá 30. mars 2007. Stjórnun félagsins er í höndum stjórnar og forstjóra og ber þeim aðilum m.a. að fara eftir lögum og reglugerðum um póstþjónustu. Þar er kveðið á um að Póst- og fjarskiptastofnun hafi m.a. með höndum það verkefni að setja ákvæði um skyldu rekstrarleyfishafa í póstþjónustu, setja reglur um staðsetningu og fyrirkomulag afgreiðslustaða og hafa eftirlit með framkvæmd póstþjónustunnar.
    Ráðherra hefur ekki aðkomu að kæru Vesturbyggðar og Reykhólahrepps. Lögum samkvæmt fer Póst- og fjarskiptastofnun og eftir atvikum úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála með mál af þessu tagi. Ákvarðanir Póst- og fjarskiptastofnunar nr. 5 og 6/2008 um fækkun dreifingardaga til hluta af íbúum þessara sveitarfélaga voru staðfestar af hálfu nefndarinnar 11. ágúst 2008.

     3.      Er ráðherra kunnugt um að Íslandspóstur áformi að fækka póstburðardögum víðar og ef svo er, þá hvar?
    Ráðherra er kunnugt um að stjórn Íslandspósts tekur reglulega til athugunar einstaka þætti í rekstri fyrirtækisins og er þá m.a. horft til þess hvar sækja beri fram í rekstri þess og hvar draga megi saman. Ráðherra er ekki kunnugt um aðrar tillögur stjórnenda Íslandspósts um breytingar á póstburðardögum en nú hafa þegar komið fram og verið hafa til umfjöllunar hjá Póst- og fjarskiptastofnun, en Íslandspósti er ekki heimilt lögum samkvæmt að gera þar breytingar á án samþykkis stofnunarinnar.
    Með breytingum í búsetuþróun, endurbótum samgöngumannvirkja og tækniframförum á sviði fjarskipta má gera ráð fyrir breyttu fyrirkomulagi póstdreifingar. Í tillögum þeim sem Íslandspóstur hefur gert á undanförnum árum um breytingar á póstburðardögum hafa þær meðal annars verið rökstuddar með kröfum um hagkvæmni í rekstri, óvenjuháum kostnaði á dreifingarleið vegna fækkunar íbúa, nálægð við næsta pósthús, minnkandi póstmagni á dreifingarleið, samræmi milli snjómokstursreglna og auknum kröfum um takmörkun á mengandi starfsemi.

     4.      Hve mörgum póstafgreiðslum hefur verið lokað sl. tvö ár, hvar voru þær og hvaða póstafgreiðslum áformar Íslandspóstur að loka á næstu mánuðum og missirum?
    Síðastliðin tvö ár hefur átta afgreiðslustöðum Íslandspósts verið lokað en í stað þess hefur í flestum tilvikum þjónusta landpósta á viðkomandi svæðum verið aukin. Þessar lokanir hafa verið á Bakkafirði, Stokkseyri, Eyrarbakka, Stað í Hrútafirði og Flúðum, í 105 Reykjavík, 113 Reykjavík og á Keflavíkurflugvelli. Fyrir liggur nýlegt samþykki Póst- og fjarskiptastofnunar á lokun fjögurra afgreiðslna til viðbótar, þ.e. í Króksfjarðarnesi, að Laugum í Reykjadal, í Varmahlíð og í Reykholti í Borgarfirði. Aðrar tillögur um lokun póstafgreiðslna liggja ekki fyrir á þessari stundu.
    Ráðherra er kunnugt um að hjá Íslandspósti er til athugunar að efla landpóstaþjónustu og loka póstafgreiðslum þess í stað í Mjóafirði, Flatey og Hrísey, auk þess sem til skoðunar er að flytja starfsemi póstafgreiðslunnar á Hellissandi í húsnæði póstafgreiðslunnar í Ólafsvík en um þessar mundir standa yfir endurbætur á því húsnæði.

     5.      Hvernig hyggst ráðherra bregðast við áformum um lokun póstafgreiðslna, t.d. í Varmahlíð og víðar?
    Ráðherra hefur borist bréf frá Sveitarfélaginu Skagafjörður, dags. 5. ágúst 2008, varðandi Varmahlíð. Samkvæmt því verður afgreiðsla Íslandspósts opin í húsnæði Kaupfélags Skagfirðinga til loka nóvembers á þessu ári. Erindið hefur verið sent Póst- og fjarskiptastofnun til upplýsinga. Að öðru leyti vísast til svara við öðrum liðum fyrirspurnarinnar.