Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 442. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 1337  —  442. mál.




Breytingartillaga



við frv. til l. um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands.

Frá Bjarna Benediktssyni.



    Í stað dagsetningarinnar 1. september 2008 í ákvæði til bráðabirgða II komi: 1. nóvember 2008.

Greinargerð.


    Breytingartillagan miðar að því að sá tími sem stjórn Þróunarsamvinnustofnunar heldur umboði sínu og starfar eftir að lög um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands hafa tekið gildi verði framlengdur til 1. nóvember 2008. Utanríkismálanefnd gerði ráð fyrir því að frumvarpið yrði að lögum á vorþingi, en þar sem afgreiðsla þess dróst fram á haustþing þarf að taka tillit til þess í ákvæði til bráðabirgða II. Breytingin gerir ráð fyrir að kosið verði í Þróunarsamvinnunefnd í október, eftir að þing kemur saman á ný, og því er hæfilegt að miða dagsetninguna við 1. nóvember 2008.