135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 1347 — 607. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Þuríðar Backman um tóbaksvarnir.
1. Hver er ástæða þess að tóbaksvarnaráð var ekki fullskipað og án formanns um nokkurra mánaða skeið?
Stýrihópur sem hafði það verkefni að endurskoða lög um Lýðheilsustöð var við störf þegar að því kom að endurskipa formann tóbaksvarnaráðs. Búist var við tillögum frá stýrihópnum og á meðan var talið rétt að bíða með að skipa í ráðið að nýju. Þegar ljóst var að dragast mundi að skila tillögum frá hópnum var ákveðið að skipa að nýju í ráðið.
2. Eru uppi hugmyndir um að breyta starfi sérfræðiráðs Lýðheilsustöðvar í tóbaksvörnum eða starfi annarra sérfræðiráða stöðvarinnar? Ef svo er, hvers eðlis eru þau áform?
Stýrihópurinn sem hefur það verkefni að endurskoða lög um Lýðheilsustöð hefur ekki lokið störfum.
3. Hvenær má vænta að reglur ESB um merkingar á tóbaksvörum verði teknar upp?
Reglur ESB um viðvörunarmerkingar á tóbaksvörum hafa þegar verið teknar upp og eru nú áberandi á tóbaksvörum. Reglur um myndmerkingar á tóbaksvörum eru heimilar samkvæmt reglum ESB en ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvenær þær verði teknar upp. Belgía er eina landið sem hefur tekið upp myndmerkingar innan ESB.
4. Hvernig er háttað tóbaksvörnum í grunn- og framhaldsskólum og hver ber ábyrgð á að fræðsla á þessu sviði fari þar fram?
Forvarnir á sviði tóbaksvarna takmarkast nú ekki lengur eingöngu við fræðslu í skólum. Á undanförnum árum hefur heildræn nálgun þar sem unnið er með marga áhættuþætti samtímis aukist. Þannig hefur Lýðheilsustöð í auknum mæli lagt áherslu á að draga úr tóbaksneyslu barna og unglinga með því að vinna með helstu áhættuþætti í umhverfi þeirra. Þessi stefna hefur gefið mjög góða raun og hefur dregið mjög úr reykingum í efstu bekkjum grunnskólans eins og sjá má á eftirfarandi mynd.
Mynd 1. Breytingar á hlutfalli íslenskra nemenda
í 10. bekk sem reykja daglega.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Tóbaksfræðsla í grunnskólum og framhaldsskólum
Samkvæmt lögum um tóbaksvarnir, nr. 6/2002, skal menntamálaráðuneytið í samráði við heilbrigðisráðuneytið og tóbaksvarnanefnd (tóbaksvarnaráð) sjá til þess að fram fari reglubundin fræðsla í því skyni að draga úr tóbaksneyslu. Sérstök áhersla er á að slík fræðsla fari fram í grunnskólum landsins og þeim skólum sem mennta fólk til starfa að uppeldis-, fræðslu- og heilbrigðismálum. Einnig skal fræðsla um áhrif tóbaksneyslu og leiðir til að draga úr henni veitt á heilsugæslustöðvum og sjúkrahúsum.
Lífsleikni er ný námsgrein í íslenskum grunnskólum og er henni meðal annars ætlað að auðvelda skólum að verða við áðurgreindum kröfum á heildstæðan hátt. Einnig að koma til móts við kröfur um aukið uppeldishlutverk skóla. Samkvæmt viðmiðunarstundaskrá skal vera að lágmarki ein kennslustund í greininni á viku frá og með 4. bekk til loka grunnskóla. Þar fyrir utan er það val stjórnenda skóla hvort þeir nýta sér þann möguleika að bæta við kennslustundum í lífsleikni.
Eitt af áfangamarkmiðum 7. bekkjar í lífsleikni er að nemendur geri sér grein fyrir áhættu samfara tóbaks- og áfengisneyslu.
Aðgerðir Lýðheilsustöðvar í tóbaksvörnum í grunn- og framhaldskólum
Eins og áður hefur komið fram vinnur Lýðheilsustöð með sannreyndum aðferðum þar sem áherslan er á heildræna nálgun með ólíkum aðferðum til að efla heilsu og fyrirbyggja áhættuhegðun. Þessi nálgun útilokar þó ekki beinar aðgerðir og verkefni tengd tóbaksvörnum.
Hér á eftir eru talin þau verkefni sem snúa að tóbaksvörnum beint eða óbeint:
* Reyklaus bekkur er verkefni sem styrkt er af Evrópusambandinu og hefur náð mjög góðri útbreiðslu í grunnskólanum. Um 70% 7. og 8. bekkja hafa tekið þátt í verkefninu á undanförnum árum.
* 6H heilsunnar er samstarfsverkefni Miðstöðvar heilsuverndar barna (MHB) og Lýðeilsustöðvar. Markmið verkefnisins er að útbúa kennslugögn fyrir starfsfólk skólaheilsugæslunnar til að nota við heilbrigðisfræðslu 6–16 ára skólabarna. Fræðslan er liður í heildrænni og samræmdri heilsueflingu grunnskólabarna.
Sex hugtök sem byrja öll á H mynda umgjörð 6H heilsunnar. Þetta eru hugtökin: Hollusta, hreyfing, hamingja, hugrekki (tóbak, áfengi …), hvíld, og hreinlæti. Sjöunda hugtakið, sem er kynheilbrigði, hefur síðan skírskotun til tölustafsins 6.
Að lokum eru slysavarnir, neytendaheilsa og umhverfisheilsa efnisflokkar sem ganga þvert á hina sjö efnisflokkana. Börnin sjá þá fljótt ákveðna heildarmynd þeirra þátta sem hafa áhrif á heilbrigðan lífsstíl.
Í hugrekkispakkanum fyrir 7. og 8. bekk eru teknir fyrir þeir þættir hjá nemendum sem vitað er að hafa áhrif á líkurnar á notkun tóbaks og áfengis ásamt skaðsemi sem fylgir neyslu þessara efna.
* Quit and win („Frítt til Evrópu fyrir reyklausa“) Verkefnið miðar að því að hvetja 15.20 ára fólk til að byrja ekki að nota tóbak og þau sem hafa ánetjast eru hvött til að hætta tóbaksnotkun. Unga fólkið fær tækifæri til að tjá sig um málefnið með örsögum.
* Vertu reyklaus frjáls fyrir 8., 9. og 10. bekk er árangursprófað kennsluefni ætlað kennurum, t.d. til að nota í lífsleiknitímum. Námsefnið hefur verið gert aðgengilegt á heimasíðu Lýðheilsustöðvar.
Fræðsla um skaðsemi tóbaks í formi fyrirlestrar er á heimasíðu Lýðheilsustöðvar með glósum fyrir kennara og hjúkrunarfræðinga.
Reyklaus.is er gagnvirk heimasíða þar sem nemendur og aðrir geta fengið aðstoð við að hætta að reykja.
Lýðheilsustöð er í nánu samstarfi við Reyksímann og styrkir rekstur hans með árlegum framlögum.
Lýðheilsustöð gefur reglulega út bæklinga og veggspjöld um skaðsemi tóbaks sem sérstaklega eru ætluð nemendum, bæði grunn- og framhaldskólans.
* „Ekki segja sísss“ er gagnvirkur leikur sem snýr að munntóbaki og skaðsemi þess, m.a. fyrir grunn- og framhaldsskólanemendur. Nemendur taka þátt í léttum leik og skrifa örsögur um hvers vegna þau noti ekki munntóbak og þeirra sýn. Þátttakan fór fram úr öllum vonum.
* Framhaldskólaverkefni (HOFF). Þar sem sérstök ástæða er til að efla forvarnir- og heilsueflingu í framhaldsskólum undirrituðu menntamálaráðuneyti, heilbrigðisráðuneyti, Lýðheilsustöð, Samband íslenskra framhaldsskólanema (SÍF) og Félag íslenskra framhaldsskólanema (HÍF) viljayfirlýsingu í nóvember 2007. Markmiðið með verkefninu er að efla samvinnu í heilsueflingu og forvörnum í framhaldsskólum. Helstu áherslur verkefnisins eru geðrækt, hreyfing og næring. Eins verður markvisst unnið að því að styðja skólana í að draga úr neyslu áfengis, tóbaks og ólöglegra vímuefna á meðal nemenda og starfsmanna.
5. Eru reglulega gerðar kannanir á notkun fínkorna tóbaks hér á landi? Ef svo er, hver hefur þróunin verið frá árinu 2000 hjá öllum aldurshópum?
Niðurstöður kannana eru tiltækar fyrir nemendur í 10. bekk, nemendur í framhaldsskóla auk könnunar meðal fullorðinna Íslendinga í símakönnun Capacent Gallup fyrir Lýðheilsustöð frá árinu 2007 þar sem spurt var um notkun munn- og neftóbaks.
Í þeim könnunum sem gerðar hafa verið hérlendis á notkun munn- og neftóbaks hefur ekki verið spurt sérstaklega um það hversu fínkorna nef- eða munntóbakið er. Spurt hefur verið um notkun munntóbaks annars vegar og neftóbaks hins vegar.
Það er tilfinning þeirra sem hafa sinnt forvarnastarfi tóbaksvarna hjá Lýðheilsustöð að munntóbaksnotkun hafi aukist meðal ungra karlmanna. Aukin sala á neftóbaki ÁTVR bendir til þess að neyslan sé að aukast ef gert er ráð fyrir að neftóbak sé notað sem munntóbak meðal þessa hóps þegar ekki er nægt framboð á ólöglegu munntóbaki.
Ólöglegur innflutningur munntóbaks (snus) kemur einkum frá Svíþjóð þar sem það er framleitt og er neysla þess u.þ.b. helmingi meiri meðal ungra sænskra karlmanna en meðal ungra íslenskra karlmanna. (Sjá tölur hér að neðan um munntóbaksnotkun 18.34 ára karlmanna.)
Á síðasta ári var hrundið af stað verkefni á vegum Lýðheilsustöðvar til að vekja athygli á slæmum hliðum munntóbaksneyslu. Þar koma þessar tölur m.a. fram.
http://www.lydheilsustod.is/ munntobak
Nemendur í 10. bekk grunnskóla.
Reglulega eru gerðar rannsóknir á áfengis-, vímuefna- og tóbaksnotkun meðal nemenda í efri bekkjum grunnskóla landsins. Samevrópska ESPAD-könnunin var lögð fyrir meðal nemenda í 10. bekk grunnskóla á Íslandi árin 1995, 1999, 2003 og 2007.
Tafla 1. Hlutfall pilta og stúlkna sem notað hafa munntóbak um ævina.
| Hversu oft notað munntóbak um ævina | Piltar |
Stúlkur | |
| 2003 | Aldrei | 69,3 | 91,3 |
| 1.2 sinnum | 9,6 | 4,7 | |
| 3 sinnum eða oftar | 21,1 | 4,0 | |
| 2007 | Piltar | Stúlkur | |
| Aldrei | 74,7 | 90,4 | |
| 1.2 sinnum | 7,7 | 7,0 | |
| 3 sinnum eða oftar | 17,6 | 2,6 |
Tafla 2. Hlutfall pilta og stúlkna sem notað hafa neftóbak um ævina.
| Hversu oft notað neftóbak um ævina | Piltar |
Stúlkur | |
| 2003 | Aldrei | 48,6 | 77,3 |
| 1.2 sinnum | 13,4 | 10,9 | |
| 3 sinnum eða oftar | 37,9 | 11,8 | |
| 2007 | Piltar | Stúlkur | |
| Aldrei | 60,4 | 75,9 | |
| 1.2 sinnum | 10,2 | 9,6 | |
| 3 sinnum eða oftar | 29,4 | 14,6 |
Nemendur í framhaldsskóla.
Fyrirtækið Rannsóknir og greining ehf. hefur einnig staðið fyrir rannsóknum í framhaldsskólum síðustu ár. Niðurstöður má finna í skýrslum.
(Sjá: www.rannsoknir.is/Framhsk-2004-vimuefnaneysla.pdf.)
Tafla 3. Hlutfall pilta og stúkna í framhaldsskólum árin 2000 og 2004
eftir því hversu oft þau hafa notað munntóbak um ævina.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Tafla 4. Hlutfall stráka og stelpna í framhaldsskólum árin 2000 og 2004
eftir því hversu oft þau hafa notað neftóbak um ævina.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Beðið er eftir niðurstöðum frá Rannsóknum og greiningu um tíðni munn- og neftóbaks meðal nemenda í framhaldsskólum á Íslandi haustið 2007.
Íslendingar 18.75 ára.
Ekki eru gerðar reglulegar kannanir á munn- og neftóbaksnotkun fullorðinna Íslendinga utan framhaldsskóla. Árið 2007 var hins vegar spurt um notkun á munn- og neftóbaki í símakönnun CAPACENT Gallup fyrir Lýðheilsustöð. Úrtak var of lítið fyrir nákvæma aldursgreiningu.
Tafla 6. Munntóbaksnotkun 18–75 ára Íslendinga árið 2007
samkvæmt símakönnun CAPACENT Gallup.
| Munntóbaksnotkun | Karlar | Konur |
| Fullorðnir (18–75 ára) árið 2007 | 3,1% nota daglega 3,4% annað slagið 6,5% samtals |
0,3% nota daglega 0,3% annað slagið 0,6% samtals |
| Ungir fullorðnir (18–34 ára) árið 2007 | 7,2% nota daglega 8,7% annað slagið 15,9% samtals |
0,8% nota daglega 0,8% annað slagið 1,6% samtals |
Neftóbaksnotkun er fátíðari en munntóbaksnotkun. Í 795 manna úrtaki kváðust 36 nota neftóbak (þar af ein kona). Stærð úrtaks gefur ekki tilefni til að greina notkun neftóbaks eftir aldri.
Tafla 7. Neftóbaksnotkun 18.75 ára Íslendinga árið 2007
samkvæmt símakönnun CAPACENT Gallup.
| Notar þú neftóbak daglega eða sjaldnar? | Karlar | Konur | Samtals | |
| Nota ekki neftóbak | 90,9% | 99,8% | 95,5% | |
| Nota neftóbak annað slagið (sjaldnar en daglega) | 6,5% | 0,2% | 3,3% | |
| Nota neftóbak daglega | 2,6% | 1,3% | ||
6. Hverjar hafa sérmerktar tekjur til tóbaksvarna af innflutningi á tóbaki verið undanfarin fimm ár og hvernig hefur þeim verið varið?
Lýðheilsustöð skal fá 0,9% af brúttósölu tóbaks til ráðstöfunar til tóbaksvarnastarfs og skal fénu ráðstafað í samráði við ráðherra, að fengnum tillögum tóbaksvarnaráðs. Tóbaksvarnaráð skal gera tillögur til Lýðheilsustöðvar um ráðstöfun þess fjár sem stöðin fær til tóbaksvarnastarfs skv. 4. mgr. 9. gr. laga um Lýðheilsustöð, nr. 18/2003, og má gera ráð fyrir að hluta af því fé sé varið til fræðslu í skólum.
Tekjur.
| Ár | Brúttósala tóbaks m.kr. | Af brúttósölu 0,9% m.kr. | Fjárlög, lögbundið framlag m.kr. | Fjáraukalög m.kr. | Fjárlög + fjáraukalög m.kr. | Mismunur af lögbundnu m.kr. |
| 0,0 | ||||||
| 2003/2 | 3.479,1 | 31,3 | 28,0 | 11,8 | 39,8 | 8,5 |
| 2004 | 7.032,8 | 63,3 | 61,1 | 61,1 | -2,2 | |
| 2005 | 7.523,7 | 67,7 | 61,1 | 1,9 | 63,0 | -4,7 |
| 2006 | 7.833,3 | 70,5 | 61,1 | 12,1 | 73,2 | 2,7 |
| 2007 | 8.214,4 | 73,9 | 65,0 | 65,0 | -8,9 | |
| Alls | 34.083,30 |
306,7 | 276,3 | 25,8 | 302,1 | -4,6 |
Ráðstöfun.
a. Verkefni í tóbaksvörnum.
b. Rekstur Lýðheilsustöðvar.
| a. | b | ||||
|
Staða tóbaksvarna í byrjun |
Fjárheimildir til tóbaksvarna | Verkefni í tóbaks- vörnum alls |
Rekstur LHS (hlutdeild í sameiginlegum rekstri) | Staða tóbaks- varna í lok | |
| Ár | m.kr. | m.kr | m.kr. | m.kr. | m.kr. |
| 2003/2 | -26,6 | 13,2 | 16,8 | 4,9 | -3,6 |
| 2004 | 61,1 | 52,1 | 9,8 | 9,0 | |
| 2005 | 63,0 | 52,2 | 14,3 | 10,8 | |
| 2006 | 73,2 | 57,1 | 12,5 | 16,1 | |
| 2007 | 65,0 | 75,2 | 11,0 | -10,2 | |
| 275,5 | 253,4 | 22,1 |