Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 630. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 1348 — 630. mál.
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Valgerðar Sverrisdóttur um námsstöður í heimilislækningum.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hyggst ráðherra fjölga námsstöðum í heimilislækningum til að bregðast við því að á næstu árum munu meira en 60 heimilislæknar hætta störfum sökum aldurs?
Árið 1995 voru settar á laggirnar tvær námsstöður í heimilislækningum með fjárhagslegum stuðningi heilbrigðisráðuneytisins, en einnig komu að þessum þætti læknadeild Háskóla Íslands og Læknafélag Íslands, en báðir þessir aðilar án fjárveitinga. Þessar námsstöður voru ætlaðar til þriggja ára.
Fljótlega varð ljóst að mikill áhugi var fyrir þessum námsstöðum og hefur þeim því verið fjölgað hægt og bítandi undanfarin ár.
Er nú svo komið að á hverjum tíma geta um tíu einstaklingar verið formlega í þessum stöðum. Nokkuð mismunandi hefur verið hvort viðkomandi námslæknir hefur nýtt ráðninguna til þriggja ára eða skemur. Hefur það m.a. ráðist af því að viðkomandi hefur ekki þurft allan þennan tíma til sérfræðiviðurkenningar eða haldið úr landi til að ljúka námi erlendis.
Í þessu sambandi er rétt að minna á að samkvæmt núgildandi reglugerð um veitingu lækningaleyfa og sérfræðileyfa er kveðið svo á um að sérnám í heimilislækningum sé fimm ára nám. Engar formlegar kröfur eru um það að viðkomandi sé í þessum auglýstu stöðum, heldur eru þær eingöngu til stuðnings. Það hefur því viðgengist til fjölda ára að læknar hafa sótt sér sérnám í heimilislækningum án þess að hafa fengið þessar auglýstu stöður. Ýmist hefur það farið fram hérlendis að hluta eða erlendis. Auk þess hafa margir sótt námið að öllu leyti til nágrannalandanna.
Ljóst er að þessar námsstöður hvetja lækna til að sækja sérnám í heimilislækningum og hefur ráðherra því fullan hug á að styðja við það. Ráðherra er líka vel kunnugt að þeir sem hafa verið í þessum námsstöðum hafa notið mjög öflugrar og skipulagðrar tilsagnar og handleiðslu af hálfu kennara heimilislæknadeildar Háskóla Íslands. Í því sambandi má geta þess að vorið 2008 voru átta af þessum stöðum auglýstar lausar til umsóknar. Umsækjendur voru um 16 talsins. Þeir sem hlutu stöðurnar hafa nú hafið störf í námsstöðunum víða um land. Ljóst er því að stöður þessar og sérgreinin sem slík er áfram eftirsótt. Ráðherra mun því fylgjast vel með þróun þessara mála og taka afstöðu til þess hvort þessum námsstöðum verður fjölgað eða ekki á síðari stigum.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 1348 — 630. mál.
Svar