Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 633. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 1349  —  633. mál.




Svar



heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Ögmundar Jónassonar um komugjöld aldraðra og öryrkja.

1.    Hvernig hafa komugjöld í heilsugæslunni og til sérfræðinga hækkað hlutfallslega hjá öldruðum og öryrkjum frá því að núverandi ríkisstjórn tók við völdum?
    
Ákveðið var með reglugerð nr. 1265/2007, sem tók gildi um síðustu áramót að fella niður komugjöld barna á heilsugæslustöðvum og á sjúkrahúsum.
    Komugjöld fullorðinna á heilsugæslustöðvar hafa verið óbreytt frá árinu 2005, en hækkuðu nú um 300 krónur, úr 700 í 1.000 krónur fyrir komu til heilsugæslulæknis á dagvinnutíma. Engin breyting var gerð á því fyrirkomulagi að elli- og örorkulífeyrisþegar greiða hálft gjald fyrir komu á heilsugæslustöð.
    Komugjöld elli- og örorkulífeyrisþega tóku því eftirfarandi breytingum (þegar ekki er um afsláttarkort að ræða):

Komugjald í heilsugæslu 2007 2008 Hækkun %
Á dagvinnutíma 350 500 150 42,9
Utan dagvinnutíma 800 1.100 300 37,5
Komur til sérfræðilækna 2007 2008 Hækkun %
Að fullu fyrstu 900 1.100 200 22,2

    Sé kostnaður umfram nefnt lágmark greiðir sjúklingur 1/3 af 40% af umsömdu eða ákveðnu heildarverði, og hefur það hlutfall ekki breyst.

Dæmi um komugjöld: 2007 2008 Hækkun %
Augnlæknir I 1 3.662 4.068 406 11,1
Augnlæknir II 2 1.845 2.105 260 14,1
Gigtarlæknir 3 1.642 1.884 242 14,7
Skurðlæknir og svæfingalæknir, æðahnútaaðgerð 18.000 21.000
Vegna útgáfu afsláttarkorts, endurgreitt -8.383 -10.626
Greitt í raun 9.617 10.374 757 7,87

    Gegn framvísun afsláttarskírteinis eru komugjöld elli- og örorkulífeyrisþega eftirfarandi:

Komugjald í heilsugæslu 2007 2008 Hækkun %
Á dagvinnutíma 230 350 120 52,2
Utan dagvinnutíma 500 600 100 20,0
Komur til sérfræðilækna 2007 2008 Hækkun %
Að fullu fyrstu 450 550 100 22,2

    Gjaldið er 1/9 af fullu gjaldi sjúkratryggðs, sem er 3.100 kr., og til viðbótar 40% af umsömdu eða ákveðnu heildarverði. Lágmarksgjald er þó 550 kr. Hlutfallið (1/9) er óbreytt frá því sem verið hefur.

Dæmi um komugjöld (sama þjónusta og að ofan): 2007 2008 Hækkun %
Augnlæknir I 1.141 1.245 104 9,1
Augnlæknir II 535 590 55 10,3
Gigtarlæknir 467 550 83 17,8

2.    Á hvern hátt hafa hámarksgreiðslur til þessara hópa breyst hlutfallslega?

    Hámarksgreiðsla í einni komu til sérfræðilæknis hefur breyst með eftirfarandi hætti:

2007 2008 Hækkun %
Hámark í einni komu 18.000 21.000 3.000 16,7
Réttur til afsláttarskírteinis 4.500 5.200 700 15,6

    Þar sem réttur til afsláttarskírteinis myndast jafnan við lægri fjárhæð en nemur hámarki í hverri komu, reynir yfirleitt ekki á það hámark.
    Til samanburðar fylgja hér á eftir upplýsingar um komugjöld annars staðar á Norðurlöndunum.

Yfirlit um sjúklingagjöld á annars staðar á Norðurlöndum.
    
Reglur á Norðurlöndunum eru nokkuð mismunandi og fróðlegt að skoða þær í þessu samhengi. Töflunum hér á eftir er ætlað að gefa nokkurt yfirlit yfir sjúklingagjöld m.a. með tilliti til þeirra hópa sem um er rætt í fyrirspurninni. Í Svíþjóð heilbrigðisþjónustan að mestu rekin af millistjórnsýslustiginu, landsþingssvæðunum, en þau eru 21. Það er á þeirra valdi að ákveða gjöldin á hverju svæði, en kostnaðarþök gilda fyrir landið allt.

Almennt yfirlit yfir Norðurlönd. 4
Danmörk Finnland Noregur Svíþjóð
Almennt gjald við komu til heilsugæslu/ heimilislæknis Án endurgjalds hjá heimilislæknum tengdum opinbera heilbrigðiskerfinu og hjá sérgreinalæknum gegn tilvísun. Með greiðslu á 22 evrum (2.792 ISK) á ári fær sjúklingur endurgjaldslausan aðgang að heilsugæslustöðvum og sérfræðiþjónustu hins opinbera, en greiðir annars 11 evrur (1.396 ISK) í hvert skipti, 15 evrur (1.903 ISK) utan dagvinnutíma. Komugjald hjá sjálfstætt starfandi heimilislæknum 125 NOK (1.950 ISK), en 150 NOK (2.340 ISK) hafi læknirinn sérfræðiviðurkenningu sem heimilislæknir. Gjöld eru mismunandi eftir hinum 21 landsþingssvæðum, lægst 100 SEK (1.330 ISK), hæst 200 SEK (2.660 ISK).
Sérgreinalæknar Án endurgjalds hjá sérgreinalæknum gegn tilvísun. Sama gildir um komur til sérfræðiþjónustu á vegum ríkisins. Sjúkratryggingakerfið endurgreiðir 60% komugjaldi til sjálfstætt starfandi sérfræðinga samkvæmt opinberum taxta, sem er í reynd u.þ.b. 30% af rauntaxta. Komugald til sérgreinalækna er 265 NOK (4.134 ISK). Almennt gjald til sérgreinalækna er yfirleitt á bilinu 200 – 300 SEK (2.660 – 3.990 ISK) án tilvísunar, en frá 0 upp í 300 með tilvísun.
Kostnaðarþök Stuðningur við eftirlaunafólk í heilbrigðisvanda samkvæmt sérstökum reglum. Ef sjúklingur verður fyrir kostnaði vegna lyfja o.fl. umfram 627,47 evrur
(79.626 ISK) á almanaksári geta sjúkratryggingar greitt það sem fram yfir fer að fullu.
Kostnaðarþak vegna þjónustu lækna, sálfræðinga, heilsugæslu, mikilvæg lyf o.fl. er NOK 1615 (25.194 ISK). Þegar því þaki er náð er þjónustan endurgjaldslaus það sem eftir er ársins. Hafi sjúklingur greitt 900 SEK (11.970 ISK) á 12 mánaða tímabili fær hann endurgjaldslausan aðgang að heislugæslu og sérfæðiþjónustu ríkisins það sem eftir er af þeim því tímabili. Hafi kostnaður við lyf o.fl. náð 1800 SEK (23.940 ISK) á 12 mánaða tímabili fær han lyf án endurgjalds eftir það.
Aflsáttur til aldraðra Ekki sérstakir afslættir til aldraðra eða öryrkja. Ekki sérstakir afslættir til aldraðra eða öryrkja. Á þremur landsþingssvæðum af 21 eru sérstakir afslættir til aldraðra.
Sjúklingagjöld í Svíþjóð.
Heilsugæsla - heimilislæknar Sérgreinalæknar almennt Sérgreinalæknar afsláttargjald aldraðra
Landsþingssvæði Alm. gjald Afslgj. aldraðra Alm. gjald Gegn tilvísun Alm. gjald Gegn tilvísun
SEK ISK SEK ISK SEK ISK SEK ISK SEK ISK SEK ISK
Stockholm*** 140 1.862     260 3.458 120 1.596 140 1.862 0 0
Uppsala 140 1.862     230 3.059 80 1064        
Sörmland 100 1.330     200 2.660 100 1330        
Östergötland 100 1.330     250 3.325 150 1995        
Jönköping 150 1.995     300 3.990 150 1995        
Kronoberg 150 1.995     300 3.990 150 1.995        
Kalmar* 150 1.995 70 931 250 3.325 100 1.330        
Blekinge 120 1.596     250 3.325 80 1064        
Skåne 150 1.995     300 3.990 150 1995        
Halland 130 1.729     260 3.458 80 1064        
Västra Götland 120 1.596     300 3.990 80 1064        
Värmland 150 1.995     250 3.325 100 1330        
Örebro 120 1.596     250 3.325 130 1729        
Västmanland 120 1.596     300 3.990 300 3990        
Dalarna** 100 1.330 50 665 200 2.660 100 1.330 100 1.330 50 665
Gävleborg 150 1.995     300 3.990 150 1995        
Västnorrland 150 1.995     300 3.990 150 1995        
Jämtland 140 1.862     200 2.660 100 1330        
Västerbotten 100 1.330     300 3.990 300 3990        
Norrbotten 150 1.995     250 3.325 0 0        
Gotland 200 2.660     300 3.990 0 0        
*Í Kalmar er afsláttargjald háð því tilvísun sé frá heimahjúkrun.
**Í Dalarna er afsláttargjald fyrir 65 ára og eldri.
*** Í Stokkhólmi er afsláttur til aldraðra vegna sérgreinalækna.
Neðanmálsgrein: 1
1     Viðtal og skoðun, refractionsmæling, fluorecein angiografil, alls 92 einingar.
Neðanmálsgrein: 2
2     Viðtal og skoðun, refractionsmæling, smásjárskoðun á augnbotni, alls 34 einingar.
Neðanmálsgrein: 3
3     Viðtal og skoðun, inndæling í sinafestur, 27,5 einingar.
Neðanmálsgrein: 4
4     Í útreikningi á gjöldum yfir í íslenskar krónur er miðað við gengi 11. september: Sænsk króna (SEK) = 13,3 ísl. krónur, norsk króna (NOK) = 15,6 ísl. krónur, dönsk króna (DKK) = 17,0 ísl. krónur, evra = 126,9 ísl. krónur.