Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 2. máls.

Þskj. 2  —  2. mál.












Þjóðhagsáætlun

fyrir árið 2009.

(Lögð fram af forsætisráðherra 2. október 2008.)




























Forsætisráðuneytið.

Inngangur.
    Erfiðar ytri aðstæður þrengja nú að íslensku efnahagslífi. Alþjóðleg lánsfjárkreppa veldur því að bankar víða um lönd hafa horfið af sjónarsviðinu, þar á meðal ýmsir af stærstu bönkum heims. Erlendir og innlendir bankar halda að sér höndum og fyrirtæki fá takmarkað lánsfé. Þótt enn sé fullsnemmt að kveða upp endanlegan dóm virðist öflug viðspyrna stjórnvalda víða um heim og kröftugt inngrip á fjármálamörkuðum, fyrst og fremst í Bandaríkjunum, hafa forðað heiminum frá mjög alvarlegum efnahagshamförum. Hins vegar er ljóst að það mun taka alþjóðlega fjármálastarfsemi og heimsbúskapinn langan tíma að jafna sig.

Helstu niðurstöður þjóðhagsspár.
    Í forsendum fjárlagafrumvarps er gert ráð fyrir að hagvöxtur í ár verði 1,7%. Fjármunamyndun atvinnuvega hefur haldið áfram að dragast saman á þessu ári og verulega hefur dregið úr íbúðabyggingum. Einkaneysla, sem hélt áfram að aukast fyrri part árs, tók að dragast saman síðastliðið vor í kjölfar kaupmáttarrýrnunar sem fylgdi gengislækkun og verðbólgu. Reiknað er með að þjóðarútgjöld dragist saman um 3,1% en á móti vegur að útflutningur áls hefur aukist og dregið hefur úr innflutningi.

Hagvöxtur.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.















    Árið 2009 er spáð 1,6% samdrætti í hagkerfinu. Reiknað er með frekari samdrætti í einkaneyslu, eða sem nemur 4,7% á árinu. Þessi mikli samdráttur í einkaneyslu skýrist einkum af því að gert er ráð fyrir að gengi krónunnar verði áfram veikt, kaupmáttur ráðstöfunartekna dragist saman annað árið í röð og fasteignaverð haldi áfram að lækka að raunvirði. Spáð er 3% samdrætti í fjármunamyndun árið 2009 en það sem dregur úr samdrættinum eru fjárfestingar vegna álversins í Helguvík. Íbúðafjárfesting mun halda áfram að dragast saman en þó ekki nema um 1,2% þar sem mesti samdrátturinn verður þegar kominn fram á þessu ári. Líklegt þykir að það hægi á vexti útflutnings þar sem aukning framleiðslugetu í áliðnaði verður að mestu gengin um garð og þrátt fyrir innflutning vegna álversframkvæmda í Helguvík er reiknað með að innflutningur í heild dragist saman um 1,6%, einkum vegna þess að innflutningur vara til einkaneyslu mun minnka. Það stefnir því í að viðskiptajöfnuðurinn nái meira jafnvægi en verið hefur en áætlað er að viðskiptahalli muni nema 8,2% af landsframleiðslu árið 2009.



Vísitala neysluverðs.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.















    Áætlað er að hækkun vísitölu neysluverðs muni nema 11,5% á milli áranna 2007 og 2008 og 5,7% á milli áranna 2008 og 2009. Hækkunin skýrist fyrst og fremst af gengislækkun íslensku krónunnar en gert er ráð fyrir að lækkunin muni nema 26% á milli áranna 2007 og 2008. Erfitt er að spá fyrir um gengi krónunnar þar sem gengisþróun tengist stöðunni á alþjóðlegum fjármálamörkuðum en samkvæmt spá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er gert ráð fyrir að horfur í alþjóðlegum efnahagsmálum batni upp úr miðju ári 2009 og því er reiknað með að aðstæður hér á landi taki í kjölfarið að glæðast á ný og gengið að styrkjast hægum skrefum. Reiknað er með að vaxtamunur milli Íslands og annarra landa haldist nokkur þrátt fyrir að Seðlabanki taki að lækka stýrivexti á árinu en einnig má búast við auknu innstreymi gjaldeyris, m.a. vegna framkvæmda í Helguvík. Í heildina er því spáð að gengið styrkist um 3% frá ársmeðaltali þessa árs.

Gengisvísitala íslensku krónunnar.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.















    Þar sem verðlag hefur hækkað meira en laun á þessu ári mun kaupmáttur launa minnka en það er í fyrsta sinn í sjö ár sem það gerist. Áætlað er að kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann muni einnig rýrna á þessu ári, um 4,9%. Á næsta ári er gert ráð fyrir að kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann haldi áfram að rýrna en þó minna en á þessu ári þar sem hækkun persónuafsláttar í byrjun árs 2009 mun milda rýrnunina sem áætlað er að verði um 1,4%.

Kaupmáttur ráðstöfunartekna.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.















    Atvinnuleysi hefur verið lítið á Íslandi undanfarin ár en nú þykir ljóst að spenna á vinnumarkaði hafi náð hámarki og að meira jafnvægi muni einkenna markaðinn á næstu árum. Reiknað er með að atvinnuleysi verði að meðaltali 1,2% af vinnuafli árið 2008 en aukist í 2,7% árið 2009. Horfur varðandi atvinnuleysi eru þó óvenju óljósar sökum þess að ekki liggur fyrir hve stór hluti vinnumarkaðarins er erlent vinnuafl. Gera má ráð fyrir að það dragi úr aðflutningi erlends vinnuafls hingað til lands og hluti þess flytji af landi brott eftir að kaupmáttur innlendra launa erlendis hefur minnkað og dregið hefur úr eftirspurn vinnuafls á innlendum vinnumarkaði.

Atvinnuleysi.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.















    Ríkissjóður gegnir mikilvægu hlutverki í fjármálastjórn hins opinbera með því að hafa sveiflujafnandi áhrif á efnahagsframvinduna. Áætlað er að ríkissjóður verði rekinn með töluvert minni afgangi á þessu ári en gert var ráð fyrir í fjárlögum, eða 0,2% af VLF, og á næsta ári er gert ráð fyrir verulegum halla á rekstri ríkissjóðs, eða sem nemur tæpum 57 milljörðum króna, um 3,7% af VLF. Þessi mikli viðsnúningur í afkomu ríkissjóðs frá árinu 2007 endurspeglar sem fyrr segir hagsveiflujafnandi eiginleika ríkisfjármála. Þegar hægir á í efnahagsstarfseminni taka tekjur ríkissjóðs að dragast saman og útgjöld að aukast, að mestu á sjálfvirkan hátt en einnig vegna meiri framkvæmda sem milda áhrif niðursveiflunnar með því að sporna við samdrætti í innlendri eftirspurn og hægja á aukningu atvinnuleysis. Hallinn mun þó ekki verða til þess að auka skuldir ríkissjóðs þar sem hann stendur það vel að vígi að unnt verður að fjármagna tekjuhalla næstu ára með innstæðum ríkissjóðs hjá Seðlabanka Íslands.