Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 9. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 9  —  9. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 44/1998, um húsnæðismál.

Flm.: Steingrímur J. Sigfússon, Atli Gíslason, Álfheiður Ingadóttir,
Árni Þór Sigurðsson, Jón Bjarnason, Katrín Jakobsdóttir,
Kolbrún Halldórsdóttir, Þuríður Backman, Ögmundur Jónasson.


1. gr.

    Orðskýringin „Almenn lán“ í 2. gr. laganna orðast svo: Almenn lán eru lán sem Íbúðalánasjóður veitir til kaupa, byggingar eða endurbóta á íbúðarhúsnæði gegn afhendingu ÍSL-veðbréfs sem og lán til endurfjármögnunar lána frá viðskiptabönkum eða sparisjóðum með veði í íbúðarhúsnæði.

2. gr.

    1. tölul. 15. gr. laganna orðast svo: Almenn lán skv. VI. kafla laga þessara til endurbóta, byggingar eða kaupa á íbúðarhúsnæði og til endurfjármögnunar lána frá viðskiptabönkum eða sparisjóðum með veði í íbúðarhúsnæði.

3. gr.

    Við 29. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Félagsmálaráðherra skal setja nánari ákvæði í reglugerð um framkvæmd endurfjármögnunarlána sbr. 1. tölul. 1. mgr. 15. gr.

4. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Frumvarp þetta er einfalt í sniðum. Það gerir Íbúðalánasjóði kleift að veita einstaklingum fyrirgreiðslu sem hafa að hluta eða öllu leyti fjármagnað íbúðakaup eða byggingu íbúðarhúsnæðis undanfarin ár með lánum frá viðskiptabönkum gegn veði í húsnæðinu. Að óbreyttum lögum getur Íbúðalánasjóður einvörðungu lánað þegar verið er að byggja húsnæði, þegar kaup eiga sér stað eða ef eigandi ræðst í endurbætur á húsi sínu. Á nokkru tímabili á undanförnum árum gerðust viðskiptabankarnir stórtækir í útlánum til eigenda íbúðarhúsnæðis og kepptust þeir við að auglýsa hagstæð lánskjör. Þótt lánin gengju undir nafninu húsnæðislán var í reynd eina skilyrði bankanna að til tryggingar endurgreiðslu lánsins stæði veð í íbúðarhúsnæði lántakandans. Að öðru leyti gat lánið verið ótengt því hvort lántakandinn hafði staðið í húsnæðiskaupum eða verið að byggja og hvort þörf viðkomandi fyrir lán spratt af fjárþörf vegna húsnæðisöflunar einnar saman eða hvort hluta lánsins var varið til annara þarfa.
    Þótt viðskiptabankarnir hafi nú að mestu leyti dregið sig út af húsnæðislánamarkaði stendur eftir að fjöldi fólks er nú með lán hvílandi á húsum sínum í gegnum bankakerfið. Í lánaskilmálum voru ákvæði um endurskoðun vaxta innan tiltekinna tímamarka, yfirleitt fimm ára, og allt útlit er nú fyrir verulega hækkun vaxta. Flutningsmenn frumvarps þessa telja einsýnt að fjöldi fólks geti lent í umtalsverðum erfiðleikum á næstunni ef við mikla hækkun greiðslubyrði á erlendum lánum vegna gengisfalls krónunnar og verðtryggðum innlendum lánum vegna óðaverðbólgu bætist umtalsverð hækkun vaxta hjá viðskiptabönkunum. Með frumvarpinu er opnuð leið fyrir Íbúðalánasjóð til að endurfjármagna, eftir því sem reglur um hámarksveðsetningu og upphæðir hámarkslána á hverjum tíma leyfa, lán af ofangreindu tagi sem húsnæðiseigendur eru með frá viðskiptabönkunum. Slík endurfjármögnunarlán yrðu sérstakur aðgreindur lánaflokkur innan hóps almennra húsnæðislána og um þau sett frekari ákvæði í reglugerð. Flutningsmenn eru þeirrar skoðunar að sjaldan hafi verið mikilvægara en nú að standa öflugan vörð um félagslegan Íbúðalánasjóð.