Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 11. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 11  —  11. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um aukinn þorskafla á fiskveiðiárinu 2008–2009.

Flm.: Guðjón A. Kristjánsson, Grétar Mar Jónsson, Jón Magnússon.



    Alþingi ályktar að leyfilegur þorskafli fiskveiðiársins 2008–2009 verði aukinn um 90.000 tonn og að heildarafli þorsks verði alls 220.000 tonn á yfirstandandi fiskveiðiári. Úthlutað aflamark þorsks og þorskaflamark krókabáta verði hækkað sem nemur hlutdeild þeirra í 40.000 tonna viðbót við þann leyfða þorskafla sem úthlutað var til fiskiskipa í lok ágúst sl.

Greinargerð.


    Margar ástæður eru fyrir því að þingmenn Frjálslynda flokksins leggja til að þorskaflinn á fiskveiðiárinu 2008–2009, 1. september 2008 til 31. ágúst 2009, verði aukinn alls um 90 þúsund tonn. Nú hagar svo til í þjóðmálum að höfuðnauðsyn er að auka tekjur og atvinnu í landinu. Útflutningsverðmæti þess þorskafla sem hér er lagður til gæti verið um 40–50 milljarðar kr. í nýjum tekjum fyrir þjóðina. Þingmenn Frjálslynda flokksins telja að það sé ábyrg afstaða að leggja til auknar þorskveiðar og að árferði í lífríki sjávar við landið sé nú með þeim hætti að ávinningurinn sé vís en líffræðileg áhætta sé engin. Þeim 50 þúsund tonnum af þorski sem umfram er þau 170 þúsund sem við leggjum til að varið sé í aflahlutdeildarkerfið verði ráðstafað til leigu um viðskiptamarkað. Nauðsynlegt er að sett verði löggjöf um sölu og leigu á aflaheimildum. Leiga og sala aflaheimilda fari aðeins um þann farveg sem markaður er um slík viðskipti. Megininntakið verði að útgerðum beri að nýta aflaheimildir til veiða. Við sölu eða leigu á aflaheimild verði hún skilgreind sem afnotaréttur í takmarkaðan tíma gegn leigugjaldi. Tekjum ríkissjóðs af viðskiptum með aflaheimildir verði skipt að jöfnu milli ríkis og sveitarfélaga. Ákveðnum þúsundum tonna af þorski verði markaður farvegur til leigu, sérstaklega frá þeim svæðum þar sem verulegur samdráttur hefur orðið í aflaheimildum og hagvöxtur síðustu ára hefur verið hvað minnstur og jafnvel neikvæður. Þær heimildir verði leigðar með þeim skilyrðum að gert verði út frá viðkomandi landsvæði og aflinn seldur þar á markaði og unninn. Leigutekjum ríkisins af þessum sérúthlutuðu veiðiheimildum verði ráðstafað til atvinnuuppbyggingar á sömu landsvæðum. Engin sérlög eru til um leigu eða sölu aflaheimilda eða lög sem marka ríki og sveitarfélögum tekjur af þeim viðskiptum. Þess vegna er sérstaklega á það bent í þessari greinargerð að setja þurfi slík lög ef vilji er til þess á Alþingi að ráðstafa aflaheimildum og tekjum með sérstökum hætti eins og hér er lagt til. Umræður á Alþingi um aðalefni þessarar tillögu um aukinn þorskafla um 90 þúsund tonn munu leiða það í ljós.