Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 31. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 31  —  31. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, með síðari breytingum.

Flm.: Guðjón A. Kristjánsson, Grétar Mar Jónsson, Jón Magnússon.



1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 22. gr. laganna:
     a.      Við 2. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Greiðslur úr skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum undir 1.200.000 kr. á ári skulu þó ekki skerða tekjutryggingu samkvæmt þessari málsgrein.
     b.      Í stað fjárhæðarinnar „300.000 kr.“ í 3. málsl. 3. mgr. kemur: 1.200.000 kr.

2. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2009.

Ákvæði til bráðabirgða.

    Þrátt fyrir ákvæði 1. gr. laga þessara skulu greiðslur úr skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum undir 600.000 kr. á ári ekki skerða tekjutryggingu skv. 2. mgr. 22. gr. laganna frá 1. janúar 2009 til 1. janúar 2010.

Greinargerð.


    Alþingi samþykkti á 135. þingi frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, og lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999, með síðari breytingum, sbr. lög nr. 17/2008. Þar var kveðið á um margvíslegar breytingar á greiðslum í þágu aldraðra og öryrkja í samræmi við tillögur verkefnisstjórnar félags- og tryggingamálaráðherra sem ríkisstjórnin gerði grein fyrir í yfirlýsingu 5. desember 2007. Í þeim lögum er m.a. kveðið á um að frítekjumark vegna atvinnutekna ellilífeyrisþega á aldrinum 67–70 ára verði hækkað úr rúmlega 27.000 kr. í 100.000 kr. á mánuði frá og með 1. júlí 2008. Á sama þingi var gerð sambærileg breyting vegna atvinnutekna öryrkja. Við þessar lagabreytingar var frítekjumark vegna lífeyrissjóðsgreiðslna ekki hækkað og er frumvarpi þessu ætlað að ráða bót á því.
    Með frumvarpi þessu er lagt til að bæta verulega hag ellilífeyrisþega og öryrkja með því að hækka frítekjumark lífeyrissjóðsgreiðslna lífeyrisþega í tveimur þrepum úr 25.000 kr. á mánuði í 100.000 kr. á mánuði.