Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 67. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 67  —  67. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008.

Flm.: Kristinn H. Gunnarsson.



1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 20. gr. laganna:
     a.      1. mgr. orðast svo:
             Sjúkratryggingar taka til tannlækninga aldraðra, öryrkja og þeirra sem yngri eru en 25 ára og samið hefur verið um skv. IV. kafla.
     b.      2. málsl. 2. mgr. fellur brott.

2. gr.

    Lög þessi taka gildi 1. janúar 2009.

Ákvæði til bráðabirgða.


    1. janúar 2010 hækka aldursmörk skv. 1. mgr. 20. gr. laganna í 28 ár og síðan um þrjú ár hver áramót þar til þau hafa náð 40 árum.

Greinargerð.


    Með frumvarpinu eru lagðar til verulegar breytingar á greiðsluþátttöku ríkissjóðs í tannlæknakostnaði landsmanna. Frumvarpið var lagt fram á síðasta þingi en er nú lagt fram breytt vegna tilkomu nýrra laga um sjúkratryggingar, nr 112/2008. Í lögin voru færð ákvæði V. kafla laga um almannatryggingar, nr. 100/2007, að mestu efnislega óbreytt. Því er ekki gert ráð fyrir að 42. gr. almannatryggingalaga verði breytt, eins og í upphaflegu frumvarpi, heldur efnislega samhljóða ákvæði sjúkratryggingalaga.
    Með frumvarpi þessu eru lagðar til verulegar breytingar á greiðsluþátttöku ríkissjóðs í tannlæknakostnaði landsmanna. Gert er ráð fyrir að tannréttingar verði felldar inn í tannlæknaþjónustuna og greiddar með sama hætti og sjúkratryggingin og látin ná til fleiri en nú er. Aldursmörkin verði hækkuð strax úr 18 árum í 25 ár við næstu áramót og síðan árlega um þrjú ár þar til allir 40 ára og yngri, auk aldraðra og öryrkja, falla undir sjúkratrygginguna 1. janúar 2014. Ekki er lagt til að stíga skrefið til fulls að svo stöddu, en af hálfu flutningsmanns er markmiðið að kostnaður sjúklings við tannlækningar, án tillits til aldurs, verði meðhöndlaður eins og annar lækniskostnaður og falli að lokum inn í sjúkratrygginguna.
    Gert er ráð fyrir að greiðsluþátttaka sjúklings verði föst fjárhæð, sambærileg við kostnað við aðra læknisþjónustu utan sjúkrahúsa og ákveðin í gjaldskrá sem ráðherra setur en horfið frá því fyrirkomulagi sem verið hefur að endurgreiðsla ríkisins miðist við gjaldskrá sem ráðherra setur án tillits til þess gjalds sem tannlæknar innheimta fyrir þjónustu sína.
    Á þessum tímapunkti hefur Sjúkratryggingastofnunin ekki samið við tannlækna á grundvelli heimilda skv. 5. gr. sjúkratryggingalaga, sbr. og 20. gr., og því má gera ráð fyrir að greiðsluþátttaka ríkisins verði enn um sinn ákvörðuð í gjaldskrá heilbrigðisráðherra. Flutningsmaður leggur til að á meðan svo háttar verði greiðsluþátttaka sjúklings föst fjárhæð og taki mið af raunverulegu gjaldi sem tannlæknar innheimta fyrir þjónustu sína.
    Rétt þykir að minna á frétt í Ríkisútvarpinu frá 14. mars 2007 með fyrirsögninni Tannverndarstefna stjórnvalda í molum. Þar er haft eftir Sigurjóni Benediktssyni, formanni Tannlæknafélags Íslands, að stjórnvöld hafi brugðist í tannverndarmálum barna. Segir hann að tannheilsa barna fari eftir því hvort foreldrar þeirra hafi efni á því að senda þau til tannlæknis. Sem dæmi þá kosti tannskoðun þriggja ára barns hjá barnatannlækni um 11.000 kr. en aðeins um 3.000 kr. fáist endurgreiddar og því greiði foreldrar um 8.000 kr. úr eigin vasa. Þann kostnað sé svo ekki hægt að telja með við umsókn um afsláttarkort vegna lækniskostnaðar. Annars staðar á Norðurlöndum greiði stjórnvöld yfirleitt allan kostnað af tannvernd barna. Sigurjón segir að nýlegar rannsóknir heilbrigðisráðuneytisins bendi til þess að stefna íslenskra stjórnvalda hafi reynst illa. Nýlegar tölur benda til þess að fimmtungur barna og unglinga á aldrinum 4–18 ára fari ekki til tannlæknis.
    Ekki liggja fyrir nákvæmar upplýsingar um kostnað við tannlækningar, en lauslegt mat gerir ráð fyrir að heildarkostnaður, að tannréttingum meðtöldum, geti verið allt að 7–8 milljarðar kr. Hlutur ríkisins er um 1.300 millj. kr. eða tæplega 20% af heildarkostnaði. Ætla má, verði frumvarpið að lögum, að kostnaður nemi í fyrstunni um 1 milljarði kr. árlega, en að fullu komið til framkvæmda nái það til ríflega helmings kostnaðar þeirra sem í dag eru ekki sjúkratryggðir og að kostnaður verði þá 3–4 milljarðar kr.