Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 102. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 109 — 102. mál.
um breytingu á eignarhaldi og varðveislu listaverka ríkisbankanna.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að afhenda Listasafni Íslands til eignar og varðveislu listaverk í eigu hinna nýju ríkisbanka.
Við einkavæðingu ríkisbankanna, Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands, árið 2003 rann mikill fjöldi listaverka sem verið höfðu í eigu bankanna og þar með í sameign þjóðarinnar til einkaaðila. Sætti það gagnrýni enda virtist sem hvorki væri tekið tillit til eiginlegra verðmæta né menningarsögulegs mikilvægis listaverkaeignarinnar við sölu bankanna.
Við yfirtöku ríkisins á bönkunum dagana 7.–10. október sl. bættust listaverk bankanna við eignir ríkissjóðs. Þar með er þessi verðmæta þjóðareign skyndilega komin í eigu fólksins í landinu á nýjan leik. Fram hefur komið að á þeim fimm árum sem listaverkin voru í eigu einkaaðila hefur verið hlúð að safneigninni, hún skráð og við hana bætt nýjum og gömlum listaverkum. Ein frægasta viðbótin er málverk Jóhannesar Kjarvals „Hvítasunnudagur“, sem hann málaði í kúbískum anda á árunum 1917–1919, en málverkið var slegið þáverandi eigendum Landsbanka Íslands á 1,3 millj. dkr. á listaverkauppboði í Kaupmannahöfn í febrúar 2007.
Samkvæmt lögum um Listasafn Íslands, nr. 58/1988, og reglugerð nr. 703/2007, um sama efni, er Listasafn Íslands meginsafn íslenskrar myndlistar í eigu íslenska ríkisins og miðstöð rannsókna í myndlistarefnum, heimildarsöfnunar og kynningar á íslenskri myndlist. Með skírskotun til þessa er gerð tillaga um að ríkisstjórnin hlutist þegar í stað til um að Listasafn Íslands fái listaverk ríkisbankanna afhent til varðveislu og eignar án tafar. Slík ráðstöfun er sjálfsögð og eðlileg í ljósi sögunnar auk þess sem vandséð er að fjármálaráðherra, sem fer með eignarhald ríkisins á bönkunum, eða ráðuneyti hans, hafi þá sérfræðiþekkingu sem nauðsynleg er til að tryggja faglega varðveislu þessa menningararfs. Hvort tveggja er til staðar í Listasafni Íslands. Skv. 12. gr. laganna og 8.–10. gr. reglugerðarinnar er heimilt að lána listaverk safnsins til opinberra stofnana að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Samþykkt tillögunnar útilokar því ekki að listaverkin verðin áfram sýnd í húsakynnum bankanna og gerir 12. gr. laganna, sbr. 10. gr. reglugerðarinnar, ráð fyrir því að setja megi á fót sérstaka útlánadeild á vegum Listasafnsins til að sjá um útlán listaverka sem sérstaklega hafa verið keypt eða gefin í því skyni.
Markmið tillögunnar er að tryggja varðveislu þessa menningararfs og að listaverkin verði ekki seld eða með öðrum hætti færð úr eigu almennings á nýjan leik enda þótt eignarhald á bönkunum breytist í framtíðinni.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 109 — 102. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um breytingu á eignarhaldi og varðveislu listaverka ríkisbankanna.
Flm.: Álfheiður Ingadóttir, Kolbrún Halldórsdóttir.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að afhenda Listasafni Íslands til eignar og varðveislu listaverk í eigu hinna nýju ríkisbanka.
Greinargerð.