Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 89. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 125 — 89. mál.
viðskiptaráðherra við fyrirspurn Kristins H. Gunnarssonar um skuldir sjávarútvegsfyrirtækja.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hve miklar eru skuldir íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja í bönkunum þremur sem ríkið hefur nú yfirtekið, Glitni, Landsbankanum og Kaupþingi, eða fyrirtækjum sem ríkið hefur stofnað til þess að yfirtaka eignir og skuldir þeirra, sundurliðað eftir bönkum?
2. Hve mikið af skuldum sjávarútvegsfyrirtækjanna er tilkomið vegna kaupa á fiskveiðiheimildum og hvað eru þær skuldir til langs tíma?
3. Hver eru helstu veð fyrir skuldum sjávarútvegsfyrirtækjanna og sérstaklega hver eru veðin fyrir skuldum vegna kaupa á fiskveiðiheimildum og hvernig er veðstaðan í ljósi verulegrar lækkunar síðastliðið ár á verði þorskveiðiheimilda?
4. Hvað þarf að afskrifa mikið af skuldum sjávarútvegsfyrirtækjanna ef núverandi úthlutun fiskveiðiheimilda verður felld niður við upphaf næsta fiskveiðiárs og hvað þyrfti að afskrifa mikið af skuldum vegna kaupa á fiskveiðiheimildum? Hver verður afskriftaþörfin á hverju ári ef niðurfellingu heimildanna verður dreift á a) 10 ár, b) 20 ár?
5. Hvað er talið að skuldir sjávarútvegsfyrirtækjanna hafi verið miklar í þeirri starfsemi bankanna þriggja sem ríkið yfirtók ekki?
Viðskiptabankarnir Glitnir hf., Landsbanki Íslands hf. og Kaupþing banki hf. eru almenn hlutafélög og voru skráð á markaði þangað til í október sl. Þó svo að Fjármálaeftirlitið hafi gripið inn í rekstur bankanna á grundvelli laga nr. 125/2008 eru þeir eftir sem áður viðskiptabankar á samkeppnismarkaði og lúta sömu lögum og reglum og aðrir slíkir, m.a. lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki, og lögum nr. 87/1998, um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Af framangreindum ástæðum er ráðuneytinu ekki unnt að veita þær upplýsingar sem óskað er eftir í fyrirspurninni.
Nýi Glitnir hf., NBI hf. og Nýi Kaupþing banki hf. eru einnig almenn hlutafélög í eigu ríkisins og fer fjármálaráðherra með hlutinn í þeim bönkum. Viðskiptaráðuneytið hefur því ekki bein afskipti af rekstri bankanna og býr ekki yfir þeim upplýsingum sem óskað er eftir.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 125 — 89. mál.
Svar