Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 119. máls.

Þskj. 129  —  119. mál.



Frumvarp til laga

um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki,
nr. 161/2002, með síðari breytingum.

(Lagt fyrir Alþingi á 136. löggjafarþingi 2008–2009.)




1. gr.

    Við 9. gr. laganna bætist ný málsgrein sem verður 3. mgr., svohljóðandi:
    Þrátt fyrir afturköllun starfsleyfis skv. 6. tölul. 1. mgr. er þeim sem annast skiptastjórn þrotabús fjármálafyrirtækis heimilt, með samþykki og undir eftirliti Fjármálaeftirlitsins, að annast áfram tiltekna leyfisbundna starfsemi að svo miklu leyti sem hún er nauðsynleg vegna bústjórnar og ráðstöfunar hagsmuna þrotabús.

2. gr.

    Við 98. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Veiti héraðsdómari fjármálafyrirtæki heimild til greiðslustöðvunar skv. 12. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. skal heimildin veitt til ákveðins dags og stundar innan sex vikna frá uppkvaðningu úrskurðarins. Fallist héraðsdómari á framlengingu greiðslustöðvunar skv. 17. gr. sömu laga skal þing haldið til að taka málefnið fyrir á ný innan sex mánaða frá því að beiðni um framlengingu var lögð fram á dómþingi. Héraðsdómari getur þó aldrei heimilað greiðslustöðvun í lengri tíma en alls 12 mánuði talið frá því þinghaldi þegar heimild var veitt skv. 1. málsl. Fundarboð skv. 2. mgr. 13. gr. og tilkynning skv. 5. mgr. 17. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. telst fullnægjandi ef hún er birt í að minnsta kosti tveimur dagblöðum hér á landi og í hverju þeirra ríkja þar sem útibú hafa verið rekin.

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Ákvæði til bráðabirgða.


    Ef heimild til greiðslustöðvunar hefur verið veitt á grundvelli 3. mgr. 98. gr. laganna, sbr. 2. gr. laga þessara, fyrir gildistöku laga þessara, en fundur með lánardrottnum skv. 1. mgr. 13. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. hefur enn ekki farið fram, er héraðsdómara heimilt að fenginni rökstuddri beiðni skuldara að fresta þegar ákveðinni fyrirtöku en þó ekki til lengri tíma en kveðið er á um í 1. málsl. 3. mgr. 98. gr. laganna, sbr. 2. gr. laga þessara. Skal héraðsdómari fallast á beiðni um frest nema hann telji hana augljóslega tilefnislausa. Fallist héraðsdómari á beiðni skuldara skal hann framlengja greiðslustöðvunina með úrskurði skv. 3. mgr. 12. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl.


Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Í frumvarpi þessu eru lagðar til breytingar á lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki, sem nauðsynlegar eru til að auðvelda það ferli sem fram undan er hjá þeim fjármálafyrirtækjum sem Fjármálaeftirlitið hefur tekið yfir stjórn í, á grundvelli laga nr. 125/2008, um heimild til fjárveitingar úr ríkissjóði vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði o.fl.
    Ákvæði frumvarpsins miða í fyrsta lagi að því að heimila skiptastjóra þrotabús fjármálafyrirtækis að annast áfram tiltekna leyfisbundna starfsemi þrátt fyrir að Fjármálaeftirlitið hafi afturkallað starfsleyfi fjármálafyrirtækis. Í öðru lagi miða breytingarnar að því að lengja fresti og auðvelda tilkynningu fyrir aðstoðarmann fyrirtækis sem veitt hefur verið greiðslustöðvun. Loks er í frumvarpinu lagt til að bætt verði við lögin ákvæði til bráðabirgða sem heimilar frestun fyrirtöku þrátt fyrir að greiðslustöðvun hafi verið veitt fyrir gildistöku laganna.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.


    Í greininni eru lagðar til breytingar á 9. gr. laga um fjármálafyrirtæki, en þar er kveðið á um afturköllun starfsleyfis fjármálafyrirtækja. Lagt er til að skiptastjóra þrotabús fjármálafyrirtækis verði heimilað, með samþykki og undir eftirliti Fjármálaeftirlitsins, að annast áfram tiltekna leyfisbundna starfsemi fjármálafyrirtækis þrátt fyrir afturköllun starfsleyfis þess samhliða kröfu um gjaldþrotaskipti. Slík heimild er mikilvæg til að hægt sé að halda áfram ákveðinni starfsemi fjármálafyrirtækis sem miðar að því að verja eignir þeirra og hámarka virði þeirra. Ákvæðið er í samræmi við ákvæði 12. gr. tilskipunar Evrópusambandsins nr. 2000/12/EB um stofnun og rekstur lánastofnana.

Um 2. gr.


    Í greininni eru lagðir til sérstakir frestir þegar fjármálafyrirtæki fær heimild til greiðslustöðvunar. Samkvæmt 3. mgr. 12. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. er kveðið á um að telji héraðsdómari skilyrðum fullnægt til að verða við beiðni um heimild til greiðslustöðvunar skuli tiltekið í úrskurði að heimildin sé veitt til ákveðins dags og stundar innan þriggja vikna frá uppkvaðningu úrskurðarins þegar þing verður háð til að taka málefnið fyrir á ný. Gert er ráð fyrir í greininni að samsvarandi frestur verði sex vikur ef fjármálafyrirtæki fær heimild til greiðslustöðvunar. Þá er gert ráð fyrir að greiðslustöðvun fjármálafyrirtækis geti alls verið 12 mánuðir, en í 3. mgr. 18. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. er kveðið á um það að héraðsdómari geti aldrei heimilað skuldara greiðslustöðvun í lengri tíma en alls sex mánuði talið frá þinghaldi sem hann hefur ákveðið í úrskurði.
    Í 2. mgr. 13. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. er gert ráð fyrir að fundarboð til lánardrottna skuli vera skriflegt og sent öllum þekktum lánardrottnum skuldarans með hæfilegum fyrirvara í útbornu ábyrgðarbréfi, símskeyti eða á annan sannanlegan hátt. Þá er gert ráð fyrir í 5. mgr. 17. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. að aðstoðarmaður skuldara tilkynni öllum þekktum lánardrottnum um úrskurð héraðsdómara um áframhaldandi greiðslustöðvun, eða synjun þar að lútandi, í útbornu ábyrgðarbréfi, símskeyti eða á annan sannanlegan hátt. Í síðasta málslið ákvæðisins er gert ráð fyrir að vikið verði frá þessum ákvæðum þegar fjármálafyrirtæki á í hlut þannig að tilkynning teljist fullnægjandi ef hún er birt í að minnsta kosti tveimur dagblöðum hér á landi og í hverju þeirra ríkja þar sem útibú hafa verið rekin.

Um 3. gr.


    Greinin þarfnast ekki skýringa.

Um ákvæði til bráðabirgða.


    Ákvæðið heimilar frestun á fyrirtöku máls þrátt fyrir að greiðslustöðvun hafi verið veitt fyrir gildistöku laganna.



Fylgiskjal.


Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:

Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki,
nr. 161/2002, með síðari breytingum.

    Markmið frumvarpsins er að gera breytingar á núgildandi lögum er snúa að gjaldþrotaskiptum og greiðslustöðvun fjármálafyrirtækja sem Fjármálaeftirlitið hefur tekið yfir stjórn á. Í frumvarpinu er meðal annars gert ráð fyrir að skiptastjóra þrotabús fjármálafyrirtækis verði heimilað að annast áfram tiltekna leyfisbundna starfsemi þrátt fyrir að Fjármálaeftirlitið hafi afturkallað starfsleyfi fjármálafyrirtækis. Einnig eru lagðar til breytingar sem miða að því að lengja fresti og auðvelda tilkynningu fyrir aðstoðarmann fyrirtækis sem er í greiðslustöðvunarferli ásamt því að heimila frestun fyrirtöku þrátt fyrir að greiðslustöðvun hafi verið veitt fyrir gildistöku laganna.
    Verði frumvarpið óbreytt að lögum verður ekki séð að það muni hafa í för með sér aukin útgjöld fyrir ríkissjóð.