Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 122. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 132 — 122. mál.
til fjármálaráðherra um húsaleigusamninga ríkisins og ríkisstofnana.
Hafa fyrir hönd ríkissjóðs verið gerðir húsaleigusamningar með þeim skilmálum að leigufjárhæð sé bundin erlendri mynt að hluta eða öllu leyti, og ef svo er:
a. hversu margir slíkir samningar eru í gildi nú, hver var samanlögð fjárhæð þeirra á mánuði 1. nóvember sl. og hversu stór hluti er háður gengi erlendra gjaldmiðla,
b. hversu margir slíkir samningar hafa verið gerðir frá 1. júlí 2007,
c. hver eru áhrif þessa á húsaleigukostnað ríkisins og ríkisstofnana frá 1. janúar sl.,
d. til hversu langs tíma eru samningar sem hér um ræðir og hvernig eru uppsagnarákvæði þeirra,
e. hefur ráðherra hug á að láta fara fram endurskoðun og/eða uppsögn þessara samninga?
Skriflegt svar óskast.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 132 — 122. mál.
Fyrirspurn
til fjármálaráðherra um húsaleigusamninga ríkisins og ríkisstofnana.
Frá Álfheiði Ingadóttur.