Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 119. máls.
við frv. til l. um breyt. á l. um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, með síðari breytingum.
1. Á eftir 1. gr. komi ný grein sem orðist svo:
Við 50. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Kjararáð ákveður laun og starfskjör bankastjóra fjármálafyrirtækja sem eru í meirihlutaeigu ríkisins og annarra starfsmanna þegar svo er háttað um laun þeirra og starfskjör að þau geta ekki ráðist með samningum á venjulegan hátt vegna eðlis starfanna eða samningsstöðu, sbr. 1. gr. laga nr. 47/2006, um kjararáð.
2. Á eftir 2. gr. komi ný grein sem orðist svo:
Á eftir 116. gr. laganna kemur ný grein, svohljóðandi:
Um fjármálafyrirtæki sem eru í meirihlutaeigu ríkisins gilda ákvæði stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, og upplýsingalaga, nr. 50/1996.
3. Á undan 1. gr. komi ný kaflafyrirsögn sem orðist svo: I. kafli, Breyting á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, með síðari breytingum.
4. Við bætist nýr kafli, II. kafli, Breyting á lögum um kjararáð, nr. 47/2006, með síðari breytingum, með einni grein sem orðist svo:
Á eftir orðunum „forstöðumanna ríkisstofnana“ í 1. gr. laganna kemur: bankastjóra og annarra starfsmanna fjármálafyrirtækja sem eru í meirihlutaeigu ríkisins.
5. Fyrirsögn frumvarpsins orðist svo: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, og lögum um kjararáð, nr. 47/2006.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Prentað upp.
Þskj. 152 — 119. mál.
Minni hluti.
Breytingartillögur
við frv. til l. um breyt. á l. um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, með síðari breytingum.
Frá minni hluta viðskiptanefndar (AtlG).