Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 97. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 162  —  97. mál.

Svar

viðskiptaráðherra við fyrirspurn Steingríms J. Sigfússonar um stöðu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

     1.      Hvernig hefur inngreiðslum í sjóðinn verið háttað frá árinu 2000, sundurliðað eftir árum til og með árinu 2007, og það sem af er þessu ári, og aðgreint fyrir innstæðudeild og verðbréfadeild?
    Almennt um greiðslur í innstæðudeild.
    Samkvæmt 6. gr. laga nr. 98/1999, um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta, skal heildareign innstæðudeildar sjóðsins að lágmarki nema 1% af meðaltali tryggðra innstæðna í viðskiptabönkum og sparisjóðum á næstliðnu ári. Nái heildareign ekki 1% lágmarkinu skulu allir viðskiptabankar og sparisjóðir greiða eigi síðar en 1. mars ár hvert gjald til sjóðsins sem nemur 0,15% af meðaltali tryggðra innstæðna í hlutaðeigandi viðskiptabanka eða sparisjóði á næstliðnu ári, nema lægri upphæð dugi til að ná 1% markinu.
    Ef greiðsla á 0,15% af meðaltali tryggðra innstæðna dugar ekki til að ná 1% lágmarkinu skal hver viðskiptabanki og sparisjóður leggja fram ábyrgðaryfirlýsingu. Í yfirlýsingunni skal hver viðskiptabanki og sparisjóður ábyrgjast að hann muni inna af hendi sérstaka greiðslu til deildarinnar þegar henni ber að endurgreiða innstæður í einhverjum viðskiptabanka eða sparisjóði sem aðild á að sjóðnum. Ábyrgðaryfirlýsingin skal hljóða upp á sama hlutfall þeirrar fjárhæðar er vantar á lágmarkið og nemur hlutfalli tryggðra innstæðna hlutaðeigandi af samanlögðum tryggðum innstæðum. Kröfur um innborgun í deildina á grundvelli ábyrgðaryfirlýsinga geta þó ekki verið hærri á ári hverju en sem nemur einum tíunda af lágmarksstærð sjóðsins.
    Nýr viðskiptabanki eða sparisjóður skal greiða sérstaklega til deildarinnar 1. mars ár hvert frá því að hann hefur starfsemi hér á landi 0,15% af meðaltali tryggðra innstæðna í hlutaðeigandi viðskiptabanka eða sparisjóði á næstliðnu ári þar til 1% lágmarkinu er náð. Auk þess leggur hlutaðeigandi viðskiptabanki eða sparisjóður fram ábyrgðaryfirlýsingu sem stjórn sjóðsins metur gilda fyrir mismun á greiðslu til sjóðsins og lágmarkinu.

    Almennt um greiðslur í verðbréfadeild.
    Í 7. gr. laga nr. 98/1999 segir að heildareign verðbréfadeildar Tryggingarsjóðs skuli að lágmarki nema 100 millj. kr. Ef heildareign sjóðsins nær ekki því lágmarki skulu aðildarfyrirtæki greiða eigi síðar en 1. mars ár hvert gjald til sjóðsins sem nemur samtals 20 millj. kr., þar til sjóðurinn hefur náð tilskilinni lágmarksstærð. Hvert aðildarfyrirtæki skal greiða lágmarksgjald að fjárhæð 50.000 kr. Árleg greiðsla að frádregnu lágmarksgjaldi skiptist í tvo jafna hluta eftir eftirfarandi gjaldstofnum:
     1.      Hlut aðildarfyrirtækis í samanlagðri fjárhæð verðbréfaviðskipta aðildarfyrirtækja á næstliðnu ári við þá viðskiptavini sem tryggðir eru.
     2.      Hlut aðildarfyrirtækis í samanlögðum fjölda viðskiptareikninga hjá aðildarfyrirtækjum í tengslum við viðskipti með verðbréf.
    Ef þessar greiðslur duga ekki til þess að heildareign deildarinnar nái 100 millj. kr. lágmarkinu skal hvert aðildarfyrirtæki leggja fram ábyrgðaryfirlýsingu. Í yfirlýsingunni skal hvert aðildarfyrirtæki ábyrgjast að það muni inna af hendi sérstaka greiðslu til deildarinnar þegar henni ber að endurgreiða verðbréf eða reiðufé í einhverju fyrirtæki sem aðild á að sjóðnum. Skal ábyrgðaryfirlýsingin hljóða upp á sama hlutfall þeirrar fjárhæðar er vantar á lágmarkið og nemur hlutfalli greiðslna aðildarfyrirtækis af samanlögðum greiðslum allra aðildarfyrirtækja við fyrstu greiðslu eftir að ljóst er að heildareign deildarinnar nær ekki tilskildu lágmarki. Kröfur um innborgun í deildina á grundvelli ábyrgðaryfirlýsinga geta á ári hverju þó ekki verið hærri en sem nemur einum fimmta af lágmarksstærð sjóðsins.
    Nýtt aðildarfyrirtæki sem nýtir sér heimildir laga til að stunda viðskipti með verðbréf í samræmi við lög um verðbréfaviðskipti skal greiða sérstaklega til deildarinnar 1. mars ár hvert í fimm ár frá því að það hefur starfsemi hér á landi. Greiðslan skal nema því hlutfalli af 20 millj. kr. sem nemur hlutfalli þess í gjaldstofnum. Greiðslan skal innt af hendi í fyrsta sinn fullu ári eftir upphaf starfseminnar. Auk þess leggur hlutaðeigandi fyrirtæki fram ábyrgðaryfirlýsingu sem jafngildir fjórfaldri greiðslu fyrsta ársins.

     Greiðslur í sjóðinn frá 2000 til 2007.
    Við stofnun Tryggingarsjóðs 28. desember 1999 yfirtók sjóðurinn eignir og skuldbindingar Tryggingarsjóðs viðskiptabanka og innstæðudeildar Tryggingarsjóðs sparisjóða. Innheimta árgjalda hófst á árinu 2000. Í eftirfarandi töflu er yfirlit yfir greiðslur til Tryggingarsjóðs vegna áranna 2000 til og með 2007. Allar fjárhæðir í töflunni eru í þús. kr.

Ár 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008
Verðbréfadeild 20.000 20.000 20.000 20.000 19.950 20.000 14.325 0 786
Innstæðudeild 0 0 0 366.415 459.371 506.498 914.054 1.315.767 2.537.393
Samtals 20.000 20.000 20.000 386.415 479.321 526.498 928.379 1.315.767 2.538.179

     2.      Hvert hefur verið hlutfall raunverulegra inngreiðslna og hlutfall ábyrgðaryfirlýsinga, sundurliðað eftir árum á sama hátt?
    Eins og fram kemur í svari við 1. tölul. er lögbundið hvernig innheimtu í sjóðinn skal háttað, en í lögum nr. 98/1999 kemur skýrt fram að ekki má innheimta meira en sem nemur 0,15% af meðaltali tryggðra innstæðna í hlutaðeigandi viðskiptabanka eða sparisjóði á næstliðnu ári.
    Í svari við 1. tölul. er sundurliðað hvernig inngreiðslum í verðbréfadeild og innstæðudeild var háttað á árunum 2000–2007.
    Í eftirfarandi töflu er gerð grein fyrir ábyrgðaryfirlýsingum sem gefnar voru út á þessum árum í samræmi við 2. mgr. 6. gr. laganna. Allar fjárhæðir í töflunni eru í þús. kr.

Ár 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008
Verðbréfadeild 79.000 56.000 35.000 40.000 35.000 14.000 0 0 0
Innstæðudeild 0 0 0 0 0 0 111.690 656.987 6.045.000

    Eftirfarandi er sundurliðun á hlutfalli inngreiðslna og ábyrgðaryfirlýsinga í innstæðudeild og verðbréfadeild á árunum 2000–2007. Allar fjárhæðir í töflunum eru í þús. kr.

Innstæðudeild
Ár 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008
Inngreiðslur 0 0 0 366.415 459.371 506.498 914.054 1.315.767 2.537.393
Ábyrgðaryfirlýsingar 0 0 0 0 0 0 111.960 656.987 6.045.000

Verðbréfadeild

Ár 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008
Inngreiðslur 20.000 20.000 20.000 20.000 19.950 20.000 14.325 0 786
Ábyrgðaryfirlýsinga r 79.000 56.000 35.000 40.000 35.000 14.000 0 0 0

     3.      Hvernig hafa heildareignir innstæðudeildar sjóðsins staðist viðmið um að þær nemi að lágmarki 1% af meðaltali tryggðra innstæðna í viðskiptabönkum og sparisjóðum á næstliðnu ári á hverju ári fyrir sig á ofangreindu tímabili?
    Í ársreikningum áranna 2003 til og með 2007 kemur fram að heildareignir innstæðudeildar nái ekki því lágmarki sem tilgreint er í 6. gr. laganna og þess vegna skuli innheimt og gefnar út ábyrgðaryfirlýsingar svo því lágmarki verði náð. Hefur sjóðurinn í kjölfarið séð til þess að aðildarfyrirtækin inni af hendi greiðslur í samræmi við 1. mgr. 6. gr. laganna og gefi út ábyrgðaryfirlýsingar í samræmi við 2. mgr. sama ákvæðis. Um hlutföll á milli inngreiðslna og ábyrgðaryfirlýsinga vísast í svar við 2. tölul.

     4.      Hefur ákvæðum um viðbótargreiðslur sem nemur 0,15% af meðaltali tryggðra innstæðna verið beitt, sundurliðað eftir árum á þessu tímabili með sama hætti?
    Vísað er til svars við 1. tölul. þar sem fram kemur hvernig greiðslum í sjóðinn hefur verið háttað á tímabilinu 2000–2007. Ákvæði 1. mgr. 6. gr. laga nr. 98/1999 hefur verið beitt þegar lagaskilyrði til þess hafa verið uppfyllt.

     5.      Hefur komið til vanskila á inngreiðslum, sundurliðað á þessu tímabili, og ef svo er hverjir hafa átt í hlut?
    Ekki hefur komið til vanskila á inngreiðslum á þessu tímabili.

     6.      Hverjir hafa annast fjárvörslu fyrir sjóðinn á ofangreindu tímabili og með hvaða skilmálum?
    Í mars 2000 var gerður samningur á milli Seðlabanka Íslands og Tryggingarsjóðs um rekstur og vörslu sjóðsins, en þar kom meðal annars fram að Seðlabankinn hefði eftirlit með vörslu verðbréfa sjóðsins og að stjórn sjóðsins tæki ákvarðanir um ávöxtun á fé og ráðstöfun eigna hans. Síðar á árinu 2000 var útboð um fjárvörslu eigna sjóðsins og var óskað eftir tilboðum frá níu fyrirtækjum á grundvelli fjárfestingarstefnu sem samþykkt hafði verið af stjórn sjóðsins. Tilboð bárust frá átta aðilum og voru þau metin af ráðgjöfum sjóðsins. Í febrúar 2001 var gengið frá samningum um fjárvörslu og ávöxtun eigna sjóðsins við Búnaðarbankann – verðbréf og Landsbankann – verðbréf. Fjárvarsla sjóðsins var í höndum þessara tveggja aðila, þ.e. annars vegar Landsbankans og hins vegar Búnaðarbankans og síðar KB banka og Kaupþings banka, fram til ársins 2007 þegar nýir samningar við MP fjárfestingarbanka og Kaupþing banka tóku gildi.
    Samningar um fjárvörslu fela almennt í sér það markmið Tryggingarsjóðs og fjárvörsluaðila að tryggja góða ávöxtun og öryggi eigna Tryggingarsjóðs með því að beita markvissum aðgerðum við ávöxtun fjármuna sjóðsins í samræmi við fjárfestingarstefnu hans. Fjárvörsluaðilinn tekur til vörslu, ávöxtunar og umsýslu þá fjármuni sem sjóðurinn afhendir honum, en kveðið er nánar á um þjónustu og skyldur fjárvörsluaðilans í viðkomandi samningum. Gert er ráð fyrir að fjárvörsluaðili láti Tryggingarsjóði í té upplýsingar um vörslu eigna sjóðsins, ávöxtun og fleiri atriði með reglulegu millibili. Í samningunum er jafnframt m.a. mælt fyrir um þóknun til fjárvörsluaðila, ábyrgð fjárvörsluaðila og hvernig haga skal samskiptum eignastýranda og Tryggingarsjóðs.

     7.      Hver hefur verið fjárfestingarstefna sjóðsins, sundurliðað á ofangreindu tímabili, og hvert hefur verið hlutfall eigna sjóðsins í innlendum ríkisskuldabréfum, erlendum ríkisskuldabréfum og erlendum hlutabréfum á hverju ári um sig?
     2000.
    Ekki liggja fyrir gögn um fjárfestingarstefnu sjóðsins á árinu 2000.
    Eftirfarandi tafla sýnir hlutfall innlendra ríkisskuldabréfa, erlendra ríkisskuldabréfa og erlendra hlutabréfa. Tölur eru í þús. kr.

Tegund bréfa Innstæðudeild Verðbréfadeild
Innlend ríkisskuldabréf 2.931.176 19.424
Erlend ríkisskuldabréf 0 0
Erlend hlutabréf 0 0

     2001.
    Eignir sjóðsins voru í fjárvörslu samkvæmt samningum þar um hjá Búnaðarbankanum – verðbréfum og Landsbankanum – verðbréfum.
    Fjárfestingarstefna sjóðsins var í meginatriðum að innlend ríkisskuldabréf væru 25–55% af eignum sjóðsins, erlend ríkisskuldabréf 35–60% og erlend hlutabréf 0–15%.
    Eftirfarandi tafla sýnir hlutfall innlendra ríkisskuldabréfa, erlendra ríkisskuldabréfa og erlendra hlutabréfa í innstæðudeild og verðbréfadeild. Tölur eru í þús. kr.

Tegund bréfa Innstæðudeild Verðbréfadeild
Innlend ríkisskuldabréf 1.789.156 32.081
Erlend ríkisskuldabréf 1.411.682 9.185
Erlend hlutabréf 113.390 738

     2002.
    Eignir sjóðsins voru í fjárvörslu samkvæmt samningum þar um hjá Búnaðarbankanum – verðbréfum og Landsbankanum – Landsbréfum.
    Fjárfestingarstefna sjóðsins var í meginatriðum að innlend ríkisskuldabréf væru 30–60% af eignum sjóðsins, erlend ríkisskuldabréf 30–55% og erlend hlutabréf 0–15%.
    Eftirfarandi tafla sýnir hlutfall innlendra ríkisskuldabréfa, erlendra ríkisskuldabréfa og erlendra hlutabréfa í innstæðudeild og verðbréfadeild. Tölur eru í þús. kr.

Tegund bréfa Innstæðudeild Verðbréfadeild
Innlend ríkisskuldabréf 1.864.315 53.721
Erlend ríkisskuldabréf 1.065.782 7.063
Erlend hlutabréf 344.600 2.284

     2003.
    Eignir sjóðsins voru í fjárvörslu samkvæmt samningum þar um hjá KB banka – verðbréfum og Landsbankanum – Landsbréfum.
    Fjárfestingarstefna sjóðsins var í meginatriðum að innlend ríkisskuldabréf væru 30–75% af eignum sjóðsins, erlend ríkisskuldabréf 15–55% og erlend hlutabréf 0–15%.
    Eftirfarandi tafla sýnir hlutfall innlendra ríkisskuldabréfa, erlendra ríkisskuldabréfa og erlendra hlutabréfa í innstæðudeild og verðbréfadeild. Tölur eru í þús. kr.

Tegund bréfa Innstæðudeild Verðbréfadeild
Innlend ríkisskuldabréf 2.648.364 61.599
Erlend ríkisskuldabréf 759.239 17.659
Erlend hlutabréf 436.147 10.144

     2004.
    Eignir sjóðsins voru í fjárvörslu samkvæmt samningum þar um hjá KB banka – verðbréfum og Landsbankanum – Landsbréfum.
    Fjárfestingarstefna sjóðsins var í meginatriðum að innlend ríkisskuldabréf væru 30–75% af eignum sjóðsins, erlend ríkisskuldabréf 15–55% og erlend hlutabréf 0–15%.
    Eftirfarandi tafla sýnir hlutfall innlendra ríkisskuldabréfa, erlendra ríkisskuldabréfa og erlendra hlutabréfa í innstæðudeild og verðbréfadeild. Tölur eru í þús. kr.

Tegund bréfa Innstæðudeild Verðbréfadeild
Innlend ríkisskuldabréf 3.158.022 79.930
Erlend ríkisskuldabréf 875.138 22.150
Erlend hlutabréf 475.394 12.032

     2005.
    Eignir sjóðsins voru í fjárvörslu samkvæmt samningum þar um hjá Kaupþingi banka og Landsbankanum.
    Fjárfestingarstefna sjóðsins var í meginatriðum að innlend ríkisskuldabréf væru 30–75% af eignum sjóðsins, erlend ríkisskuldabréf 15–55% og erlend hlutabréf 0–15%.
    Eftirfarandi tafla sýnir hlutfall innlendra ríkisskuldabréfa, erlendra ríkisskuldabréfa og erlendra hlutabréfa í innstæðudeild og verðbréfadeild. Tölur eru í þús. kr.

Tegund bréfa Innstæðudeild Verðbréfadeild
Innlend ríkisskuldabréf 2.786.100 64.006
Erlend ríkisskuldabréf 1.471.038 33.676
Erlend hlutabréf 848.146 19.416

     2006.
    Eignir sjóðsins voru í fjárvörslu samkvæmt samningum þar um hjá Kaupþingi banka og Landsbankanum.
    Fjárfestingarstefna sjóðsins kvað í meginatriðum á um að óheimilt væri að hafa vægi ríkisskuldabréfa lægra en 70% af vörslufé, en með því var bæði átt við innlend og erlend ríkisskuldabréf. Þá var gert ráð fyrir að lágmarksvægi innlendra skuldabréfa með ríkistryggingu væri 30%.
    Eftirfarandi tafla sýnir hlutfall innlendra ríkisskuldabréfa, erlendra ríkisskuldabréfa og erlendra hlutabréfa í innstæðudeild og verðbréfadeild. Tölur eru í þús. kr.

Tegund bréfa Innstæðudeild Verðbréfadeild
Innlend ríkisskuldabréf 3.283.059 64.231
Erlend ríkisskuldabréf 2.651.023 51.865
Erlend hlutabréf 911.753 17.838

     2007.
    Eignir sjóðsins voru í fjárvörslu samkvæmt samningum þar um hjá Kaupþingi banka og MP fjárfestingarbanka.
    Fjárfestingarstefna sjóðsins var í meginatriðum að innlend ríkisskuldabréf væru 30–75% af eignum sjóðsins, erlend ríkisskuldabréf 15–55% og erlend hlutabréf 0–15%.
    Eftirfarandi tafla sýnir hlutfall innlendra ríkisskuldabréfa, erlendra ríkisskuldabréfa og erlendra hlutabréfa í innstæðudeild og verðbréfadeild. Tölur eru í þús. kr.

Tegund bréfa Innstæðudeild Verðbréfadeild
Innlend ríkisskuldabréf 4.768.339 78.400
Erlend ríkisskuldabréf 2.826.075 46.466
Erlend hlutabréf 797.847 13.118

     2008.
    Fjárfestingarstefna sjóðsins var í meginatriðum að innlend ríkisskuldabréf væru 30–75% af eignum sjóðsins, erlend ríkisskuldabréf 15–55% og erlend hlutabréf 0–15%.
    Eftirfarandi tafla sýnir hlutfall innlendra ríkisskuldabréfa, erlendra ríkisskuldabréfa og erlendra hlutabréfa í innstæðudeild og verðbréfadeild miðað við 30. september 2008, en upplýsingarnar liggja enn sem komið er ekki fyrir sundurliðaðar milli deilda. Tölur eru í þús. kr.

Tegund bréfa Innstæðudeild og verðbréfadeild
Innlend ríkisskuldabréf 7.866.332
Erlend ríkisskuldabréf 6.429.387
Erlend hlutabréf 707.539

     8.      Hefur sjóðurinn tapað fé sem ávaxtað var í erlendum hlutabréfum, sundurliðað eftir árum, og hvernig hefur slík ávöxtun þróast?
    Ekki liggja fyrir nákvæmar upplýsingar um ávöxtun af erlendum hlutabréfum í eigu sjóðsins sundurliðað eftir árum eða um þróun slíkrar ávöxtunar. Hins vegar er vísað til meðfylgjandi ársreikninga sjóðsins 2000–2007 þar sem gerð er grein fyrir eignum sjóðsins í verðbréfum, þar á meðal erlendum hlutabréfum.

     9.      Hver var heildareign deilda sjóðsins 1. september sl. og hvaða hlutfall var hún í tilviki innstæðudeildar af öllum tryggðum innstæðum aðildarfyrirtækja sjóðsins, sbr. 3. gr. laga nr. 98/1999?
    Heildareign sjóðsins í fjárvörslu miðað við 30. september 2008 nam að markaðsverðmæti 15.003.257.642 kr. og jafnframt voru 70.621.113 kr. á bankareikningum utan fjárvörslu.
    Tryggingarsjóður innstæðueigenda og fjárfesta aflar einungis upplýsinga um innstæður aðildarfyrirtækja sjóðsins eftir hver áramót í tengslum við ákvörðun um það hvort innheimta þurfi í sjóðinn á grundvelli 6. og 7. gr. laga nr. 98/1999. Rétt er að taka fram að Seðlabankinn safnar reglulega saman og gefur út upplýsingar um innlán í íslenskum bankastofnunum, en endurskoðendur sjóðsins fara yfir þær upplýsingar og meta hvaða hlutfall af þessum innlánum eru tryggð í skilningi laga nr. 98/1999. Endurskoðendur hafa ekki farið yfir upplýsingar vegna ársins 2008 og hefur sjóðurinn því ekki undir höndum upplýsingar um heildarfjárhæð tryggðra innstæðna aðildarfyrirtækja 1. september sl.

     10.      Hvaða upplýsingum öðrum en að ofan er beðið um er varða stöðu og starfsemi sjóðsins telur ráðherra rétt að koma á framfæri við Alþingi?
    Framangreindar upplýsingar eru tæmandi um inngreiðslur í Tryggingarsjóð innstæðueigenda og fjárfesta og fjárhagsstöðu sjóðsins. Fylgiskjal I.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.

Fylgiskjal II.

Fylgiskjal III.

Fylgiskjal IV.

Fylgiskjal V.

Fylgiskjal VI.

Fylgiskjal VII.

Fylgiskjal VIII.